Breiðablik - 01.12.1907, Blaðsíða 1

Breiðablik - 01.12.1907, Blaðsíða 1
BREIÐABLIK. Mánaöarrit til stuöning:s íslenzkri menning. FRIÐRIK J. BERGMANN RITSTJÓRI II. Ár. D E SEM BER 1907. Nr. 7. MANNANNA MIKLI FÖGNUÐUR NN fag-nar heimur- inn jólunum. Nú eru þeir allir börn og bræður. Og aldrei jafn-sælir! Hver jól fyrirheit um friðarins og kærleikans ríki ájörðu. Konungy urinn kemur. Hver jól eru boð- skapur um komu hans. Fyrir nítján hnndruð árum fæddist hann á afviknum stað. Nú að einhverju leyti um heim allan. Síðan fyrstu jól stöðug" fæðing'arhátíð um heim- inn. Hug"sanir gmðs stöðugt að fæðast í fleiri og fleiri mannssál- um — hugsanir, sem hann færði oss, mannanna dyrlegi bróðir. Faðir hans — faðir vor. Eðlið hans—eðlið vort. Arfleifðin hans — a.fleifðin vor. Köllunin hans —kóllunin vor. Sigurlaunin hans —sigurlaun vor. Hann erekki einsogvinur, sem heima á í fjarlægu landi—eða fjar- læg im heimi. Hann er eins og sá, sem lifir í hvers manns sál, er lært hefir að nefna nafnið hans rétt. Hann kom fram á Gyðinga- landi fyrir nítján hundruð árum. Hann kemur fram í hvers manns sál, sem kemst til fullrar meðvit- undar um sjálfa sig. Traustið hans á að verða traustið vort. Trúin hans — trúin vor. Bænin hans—bænin vor. Samfélaghans við föðurinn — samfélag vort. Fórnarkærleikurinn hans—fórnar- kærleikur vor. Sannleiksástin hans—sannleiksást vor. Hann sýndi oss föðurinn. Vér eigum að sýna soninn. Hanu þýddi fyrir oss hugsanir föðursins. Vér eigum að láta hugsanir sonar- ins lifa með oss og þýða þær fyrir öðrum. Hann sýndi oss hjartalag föðursins. Vér eigum að eignast og sýna hjartalag sonarins. Svo elskaði guð heiminn, að hann gaf son sinn. Svo elskuðu þeir son- inn, er honum veittu viðtöku, að

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.