Breiðablik - 01.12.1907, Side 2
g8
BREIÐABLIK
þeir gáfu sjálfa sig eins og hann.
Hann var þjónn, hlýðinn til dauð-
ans. Þeir urðu þjónar, hlýðnir
til dauðans. Vér eigum allir að
opinbera soninn, eins og hann op-
inberaði föðurinn.
Þetta er mannanna mikli fögn-
uður!
Myrkrið.
Nú líða yfir oss ársins styztu
dagar. Aldrei sýnist myrkrið eins
nálægt því að fá yfirhönd og nú.
Hvað er myrkrið? Er það nokk-
uð verulegt? Er það eitt af var-
anlep"um lífsöflum tilverunnar?
o
Nei. Myrkur er skuggi. Skugg-
inn sýnir, hvar ljós ætti að vera.
Það er blettur, þar sem enn hefir
eigi verið kveikt. Vér göngum
eftir stræti á nóttu. Ljóskerin
standa þar með löngum millibil-
um. Kring um hvert ljósker dá-
lítið glóbjart svæði. En mitt á
milli ljóskeranna niðamyrkur.
Skugginn þeim mun meiri, sem
mönnunum varð bjartara fyrir aug-
um í ljósinu. Hann er þarna til
að sýna mönnunum: Hér er eftir
að kveikja. Hver skuggi á að
hverfa. Skuggarnir hrópa til
mannanna: Komið með ljós !
Myrkrið þráir ljós. Alt annað
þráir að lifa, Myrkrið þráir að
hverfa. Guð kveikti stóru ljósin.
Hann ætlar mönnunum að kveikja
ljós á myrku svæðunum, sem eftir
eru.
Þegar þú sér skuggann á leið
þinni maður, mundu þá: Hingað
varst þú sendur til að kveikja.
Kuldinn.
Það er naumast unt að tala um
kulda í vetur. Svo mikil er veð-
urblíðan og óvanaleg. En vana-
lega ætlar kuldinn alt að nísta um
miðjan vetur. Sjaldan kaldara
en um jólaleytið. Hvað er kuld-
inn? Er hann eitthvað varanlegt?
Eða verulegt? Nei, kuldinn er
að eins skortur á hita. Þar sem
sólarylurinn nær ekki til að verma
nema að litlu leyti, þar er kalt.
En kuldanum er ætlað að hverfa.
Um kaldasta vetur gjöramennirnir
heitt í híbýlum sínum. í kaldasta
loftslagi klæðast þeir svo hlýjum
fötum, að kuldinn verður þeim
ekki að meini. En kuldinn á að
hverfa. Manninum er ætlað að
flytja með sér eld og eldfæri hvert
sem hann fer—gjöra heitt í kring
um sig. Það er erindi, sem guð
hefir gefið honum að reka. Hann
verðurlíkaað því, þangað til kuld-
inn er horfinn og kominn er nýr
himinn og ný jörð.
En þegar þú ert að hugsa um
kuldann og gjöra hlýtt í kringum
þig, mundu eftir hjartakuldanum.
Hann er skaðlegastur. Honum
er eigi síður ætlað að hverfa. Hver
maður getur náð í eld og eldfæri
til að eyða honum.
Hungrið.
Mikið er af hungri í heiminum.
Aldrei meir en um þetta leyti árs.
Hungur líka hér í þessu allsnægt-
anna landi, þessari allsnægtanna
borg. Sæll hver saddur, sem ein-