Breiðablik - 01.12.1907, Blaðsíða 12

Breiðablik - 01.12.1907, Blaðsíða 12
io8 BREIÐABLIK W JANKO OG FIOLAN. Eftir HENRYK SIENKIEWICZ. TJANN kom í heiminn veikbygður og veill. Konurnar stóðu í hnapp utan um rúmiö hans og hristu höfuð yfir móður og barni. Konan járnsmiðsins þóttist þeirra glöggskj'gnust og tók að hughreysta veiku konuna eins og bezt hún mátti. „Vertu nú ekki óróleg,“ sagði hún. ,,Eg skal kveikja á vígðu kerti fyrir þig — því öll von er úti. Bú þig nú undir annað líf. Við verðum að senda eftir presti, til að þjónusta þig. “ ,,Guð komi til!“ sagði önnur, ,,það verður að skíra drenginn þegar í stað. Líf hans treinist líklega ekki þangað til presturinn kemur. Hann er heppinn, eg segi ykkur satt, ef sál hans verður ekki á sveimi um jörðina, eins og óskírður andi. “ Með þessum orðum kveikti konan á vígðu kerti, tók barnið, stökti vígðu vatni á það, og kom augunum litlu til að depla. Svo hafði hún skírnarorðin yfir. „Egskíriþig í nafni föður, sonar og heilags anda — og þú átt að heita Jón—. Farðu nú, kristna sál, til þeirra heim- kynna, er þú komst frá. Amen.“ En kristna aálin hafði alls enga löngun til að hverfa aftur til þeirra heimkynna, er hún var komin frá, né til að yfirgefa tenglugranna líkamann. Hún fór þvert á móti að sparka með litlu líkams-fótunum eins hraustlega og henni var unt, og að skæla, lágt og raunalega, svo skírnar- vottarnir fóru að segja, að barnið mjálm- aði eins og köttur. Presturinn var sóttur. Hann kom, framkvæmdi athöfnina og fór. Sængur- konan hrestist, og að viku liðinni var hún farin að vinna. Líf barnsins hékk á veikum þræði. Menn urðu naumast varir við, að dreng- urinn drægi andann. En þegar hann var á fjórða árinu gól gaukurinn nokk- urum sinnum um vorið yfir þakinu; hon- um fór að fara fram og á tíunda árið komst hann með þolanlegri heilsu. Grannur var hann samt og linur. Maginn var belgdur upp, kinnarnar falln- ar inn, og hárlubbinn eins og bampur á lit — eða jafnvel hvítari — og hékk niður í björtu augun, sem störðu út í veröldina eins og ómælilegan geim. Á vetrum skreið hann á bak við ofninn, stynjandi af kulda og eigi sjaldan af hungri líka. A sumrum hljóp hann fram og afturí skyrtunni með vaðmálsbelti um mittið, hampkenda hárið lafði fram undan hatti, sem fléttaður var úr hálmi; en hann bar litla höfuðið hátt, eins og fugl. Móðir hans var blásnanður leiguliði, sem sjaldan hafði til næsta máls, og kúrði eins og svala undir annarra þaki. Henni þótti líklega vænt um hann, eftir sínum hætti, þó hún lemdi hann æði-oft og væri vön að kalla hann umskifting. Er hann var átta ára gamall, var hann þegar sendur burt til að hjálpa fjármanni til að gæta fjár. Eða hann var sendur langt út í skóg til að tína gorkúlur, ef ekkert var matarkyns heima fyrir. Það var mesta hepni, að úlfurinn gleypti hann ekki. Hann var ekki neitt sérlega gáfaður drengur. Ef einhver talaði við hann, stakk hann fingrinum í munn sér, eins og

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.