Breiðablik - 01.03.1908, Blaðsíða 10
154
BREIÐABLIK
KONGO-HNEYKSLID.
AUMAST er um nokkurn konung'
lakar talað eins og stendur en I.eo-
pold Belgiu-konung' fyrir nieöferð hans á
málum Kongó-ríkis í Suðurálfu. Ríki
þetta var tnvndað í febrúarmánuði árið
1885 með samningum milli stórveldanna,
sem gjörðir voru með hátíðlegum hætti í
Berlín og er þetta upphaf þeirra: ,,í
nafni almáttugs guðs takast stórveldin
öll, er fullveldis réttindi hafa eða áhrif í
þessum löndum, á hendur að vaka yfir
verndan hinna innfæddu þjóðflokka og
koma fram umbótum í siðferðislegum og
hagsmunalegum lífsástæðum þeirra“.
Ekki vantar orðgnótt og dýra eiða.
Þeim kom saman um að gjöra Leopold
að konungi ríkis þessa. Hann gjörði há-
tíðlega yfirlýsing um, að henn ætti þang-
að ekkert erindi sem konungur annað en
siðmenningarinnar. Hann hefir reynzt
einn argasti og samvizkulausasti harð-
stjóri, sem nokkurar sögur fara af.
Kristniboðar hafa um langan tíma flutt
þaðan sögur svo hrtdlilegar af pynding-
um, blóðsúthellingum og ofbeldisverk-
um, sem hann lætur hafa í frammi við
þessa aumingja blökkunienn, að enginn
skvldi trúa, að grimdarverk svo óskap-
leg væri framin nokkurs staðar í heimi á
þessari öíd í nafni kristins konungs.
Helzta afurð landsins er eins konar rauð-
ur guttaperka (rubberj, sem mikil eftir-
spurn er eftir og selst við háu verði.
Þetta pínir hann út úr þessari blökku-
mannaþjóð með áfergju svo mikilli, að
sagt er, að harðstjórn Neró keisara og
hryðjuverk hafi verið barnaglingur í sam-
anburði við þetta. Hvað lítið sem þeir
ætla að þrjóskast við þeirri þrælavinnu,
sem þeir eru miskunnarlaust píndir við,
eru hermenn látnir brytja þá niður eins
og fé. Stundum koma þeir heini með af-
högnar hendur ættingja sinna, sem þá
hafa myrtir verið, til sannindamerkis.
Konum þeirra hefir verið haldið í gisling
í hlekkjum og járnum, þangað til menn
þeiria skiluðu eins miklum guttaperka og'
til er ætlast. Hvað eftir annað eru þeir
niiskunnarlaust hýddir. Konur liggja
næringarlausar og einmana marga daga
eftir barnsburð, sökuni tjarveru mann-
anna.
Svo mikið eru menn búnir að hevra af
hryðjuverkum þessum, að á Englandi
hefir hver stórfundurinn verið haldinn á
fætur öðrum til að skora á stjórnina að
skerast í leikinn. Hún hefir hingað til
verið að bíða þess, að Belgir sýndi rögg
af sér og tæki í taumana. En það hefir
hingað til strandað á konungi, sem nú
er orðinn svo auðugur, að hann getur
boðið byrginn. Grey lávarður hefir nú
lýst vfir því í parlamentinu, að England
sjái sér nú fært að skerast í leik óháð
ölluni öðrutn. Bandaríkin ætla sér að
hafa hönd í bagga með, svo vonandi er,
að þessi óskaplegi ósórni verði látinn
falla niður hið bráðasta. Það er oflengi
búið að ganga í nafni kristindóms og sið-
menningar.
Síðustu fréttir eru þær, að Belgir ætli
að taka stjórn Kongó-ríkis úr höndum
konungs síns; tryggja hana stórveldun-
með föstum samningum um, að gagn-
gerðar umbætur skuli verða á högum
blökkumannanna og bætt úr þessu
Kongó-hneyksli að fullu.
NÝTT KIRKJUBLAD.
O TT breyting er þar á orðin, að síra
Jón Helgason er hættur sem rit-
stjóri, en síra Þórhallur Bjarnarson, lekt-
or, tekinn við. Síra Jón langar að beina
ritstörfum sínum í aðra átt. En síra
Þórhallur nú laus við störf við land-
búnaðarfélagið, þar sem öllum kemur
saman um, að hann hafi unnið stórvirki.