Frækorn - 15.12.1902, Page 5
F R Æ K O R N.
165
»Þegar ég er burt farinn og hefi til-
búið yður stað, þá mun ég koma aftur
og taka yður til mín, svo að þér séuð
þar sem eg er.« Jóh. r4, 3.
9. Trúði Enok á þetta?
»Um þetta spáði og Enok, sjöundi
maður frá Adam, segandi: Sjá drottinn
kemur með sínum heilögu þúsundum.«
Júd. 14. 15.
10. Hvað var von Davíðs í þessu efni?
»Hann kemur til að dæma jörð-
ina, hann kemur að dœma jarðríkið
með réttvísi, og þjóðirnar með sinni
sannsýni.« Sálm. Dav. 96, 13.
11. Hvað vitnar Daníel um tilkomu
drottins ?
»Á þeim tíma mun Mikael höfuðeng-
ill fram ganga og á þeim tíma munu
landsmenn Jjínir frelsaðir verða, allir
þeir sem skráðir finnast í bókinni.«
Dan. 12, 1.
12. Hversu dýrðleg verður tilkoma
drottins ?
»Hann kemur í dýrð sinni og föður
síns og helgra engla« Lúk. 9, 26.
13. Hvað er oss sagt af dýrð Krists,
meðan hann var hér á jörðu?
»Og‘, hann ummyndaðist að þeim ásjá-
andi, og ásýnd hans skein, sem sól,
en klæði hans urðu björt eins og ljós«.
Matt. 17, 2.
14. Hvað segir ritningin um dýrð
eins engils?
»Líkami hans var sem gullsteinn, hans
ásjóna sem leiftur, hans augu sem elds-
logar, armleggirnir og fæturnir sem
skygður eirmálmur og rómurinn yfir máli
hans sem manngnýr«. Dan. io, 6.
15. Hvað vitnar Daníel um dýrð
Guðs ?
»Nú sá eg, að stólar voru settir fram
og hinn Gamli settist niður, hans klæði
voru hvít sem snjór, og hans höfuðhár
sem hrein ull, hans hásæti var eldslogi
og hjólin undir því eldur brennandi,
framundan honum gekk út fljótandi elds-
straumur; honum þjónuðu þúsundirþús-
unda og frammi honum stóðu 10 þús-
undir þúsunda«. Dan. 7, 9, 10,
16. Hvað er von allra þeirra, sem
clska dýrðlega tilkomu drottins ?
»Að öðru leyti er handa mér afsíðis
lögð kóróna réttlætisins, sem drottinn,
sá hinn réttláti dómari, mun gefa mér
á þeim (ákveðna) degi, en ekki einung-
is mér, heldur og öllum, sem þráð hafa
tilkomu hans.« 2 Tim. 4, 8.
17. Hvaða umbreyting mun verða á
guðs börnum, þegar þau sjá frelsara
sinn?
Ælskanlegir, nú þegar erum vér guðs
börn, en það er enn þá ekki opinbert,
hvað vér verða munum, en það vitum
vér, að þegar hann birtist, þá munum
vér verða honum líkir, því að vér mun-
um sjá hann. eins og hann er«. 1 Jóh.
3, 2.
18. Hvað mun Kristur segja til allra
sinna á þeim degi ?
»Komið, þér ástvinir míns föður, og
eignist það ríki, sem yður er fyrirbúið
frá upphafi veraldar« Matt. 25, 34.
UNDRAVERK HEILBRIGÐINNAR.
Eftir Dr. Med. J. H. Kellogg.
—o—
F.nginn niaður hefur kraft til að lækna.
Guðs kraftur einn gettir gert það, því lækning
er sköpun. Ef einhver óskar að fá betri
taugar, þá verður hann að útvega sér nýjar
taugar. Ef einhver óskar að fá betri maga,
þá verður hann að fá sér nýjan niaga, fá hann
skapaðan nýjan. Hinn mikli guðdóntskraflur,
sem verkar í alheintinum, mun lækna og reisa
við þá, sem þurfa lækningar og viðreisnar.
Allt það, sem nokkur mannleg vera getur gert
í þessu efni, er að leiða athygli til þessarar
lífsuppsprettu og kenna mönnum, hvernig þeir
eiga að komast í samræmi og samvinnu við
hana.
En vandinn hjá svo mörgunt er sá, að þeir
stríða gegn guði. Þeir rífa sjálfa sig niður
fljótar en guð getur byggt þá upp. Hugsum
oss tnann, sent hefur lítið sár á arntlegg sín-
um. A hverjum degi rífur hann burt hrttðrið,
sem náttúran hefur niyndað á nóttunni. Með
því móti verður sárið aidrei læknað. Vér