Frækorn - 15.12.1902, Side 6

Frækorn - 15.12.1902, Side 6
i66 F R Æ K O R N. verðum að vinna í sameiningu við guð, ef hann á að lækna oss. Ef maður hefur brotið hand- legg eða fótlegg, verður hann að fá brotin setta saman, og þá mun guð skapa efnið, sem sameinar þau. Kraftinn, sem gerir þetta köllum vér „náttúruna", en það er að eins annað nafn fyrir guð. Náttúran er ekki kraftur, er að eins nafn. En krafturinn á bak við náttúruna er guð. Ef einhver hefur slæman maga og heldur áfram að brjóta þau lög, sem eru sett fyrir góðri meltingu, verður magi hans aldrei góður Ef hann etur mat, sem er skaðsamlegur, og náttúran læknar hann á nóttunni, og hann svo dag frá degi gerir hið sama, þá verður hann með hverjum degi lakari og lakari, og smátt og smátt verður hann svo eyðilagður, að mag- inn missir kraftinn til að melta. Ef vér sáum heilbrigði, munum vér uþþskera heilbrigði, alveg eins víst og það er, að ef vér sáum sjúkdómi, munum vér uppskera sjúkdóm. Vér verðum að rækta heilbrigðina. Samt er enginn efi á því, að sumir menn verða lækn- aðir af skottulæknunum, sem ferðast um, og sumir af brúkun lífselexírs og þess háttar. En sannleikurinn er sá, að slíkt fólk líður ekki af verulegum sjúkdómum, heldur af ímynduðum veikindum. Slíka menn mætti lækna með hverju því, sem þeir reiddu sig á, sama hvað það væri. En maður, sem hefur eyðilagðan maga, verður ekki friskur eins fljótt. Einn vegur, sem guð notar til að hjálpa mönn- um, er að gefa þeim ljós eða uppfræðingu um það, hvernig þeir geta hjálpað sér sjálfir. Hann gefur honum réttar hugsanir, og það leiðir hann til að gera það rétta. Það er alltaf ein- hver staður í fjallinu, þar sem maður getur leitað skjóls í storminum. Það er líka hjálp fyr- ir sjúka menn, því að heilbrigði er alstaðar til. Biddu guð að hjálpa þér að finna heilbrigði. Það er til beinn og mjór vegur til heilbrigðis fyrir líkama og sál; sá beini og mjói vegur er: hlýðnastu lögum guðs! Líkaminn leitar alltaf að heilbrigðinni. Vér verðum sjúkir af því að vér á einhvern hátt syndgum móti oss sjálfum, en náttúran fer undireins að sínu verki, að lækna oss. Það er ekkert umsvifaverk eða óeðlilegt að verða frísk- ur. Það er eins eðlilegt að verða frískur eins og það, að draga að sér andann. Ef þú vilt hætta að gera sjálfan þig sjúkan, þá mun nátt- úran lækna þig. Ef húðin er rifin af hönd þinni, mun fljótt koma ný, frísk húð í staðinn. Þetta verður án þess að þú þurfir nokkuð að aðhafast til ' þess, hvort þú æskir þess eða ekki, af því að hinn læknandi kraftur, sem í þér er, er að leitast við að gera þig heilbrigð- an. Viljakraftur vor getur ekki læknað, en hann getur gert oss færa um að standast freisting- una til að leggjast niður og deyja. Á þann hátt mega menn reka veikina frá sér. Þeir menn eru til, sem eru mjög fljótir á að trúa því, að þeir hafi kóleru, inflúenzu eða aðrar farsóttir. Og margur maður verður veru- lega veikur af ótta. Það er furða, hve mikið hugarlífið hefur saman að sælda við heilbrigð- isástand manna. Sá, sem fellur í örvæntingu, getur ekkert gert. Von oggott traust eru hin- ir voldugustu kraftar til þess að. gefa mönnum afl til að berjast móti sjúkdómum, og eru oft hið eiria, sem nrargir sjúkir viðþurfa. Spurningabálkur —o— I. Má guðsbarn sverja eið fyrir ver- aldlegum rétti, ef þess er krafizt? Guðs orð segir: »Eiðurinn gjörir enda á allri þrætu til staðfestingar». Heb. 6, 16, Og að eiðurinn í sjálfu sér sé leyfilegur, sést á því, að guð sjálfur styrkti »heityrði sínu með eiði, þá hann enn yfirgnæfanlega vildi sýna erfingjum fyrirheitisins óraskanlegleika sinna álykt- ana.« Heb. 6, 17. Dæmi Jesú, þegar hann stóð fyrir rétti, tekur einnig burt öll tvímæli í þessu efni. í Matt. 26,63 lesum við:

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.