Frækorn - 15.12.1902, Side 7

Frækorn - 15.12.1902, Side 7
FRÆKORN. 167 »Þá mælti hinn æðsti prestur: Eg sœri þig við hinn lifandi guð, að þú segir oss það, ef þú ert Kristur, sonur guðs. Jesús svaraði : »Svo er sem þú sagð- ir«. Svar Jesú verður ekki á annan veg skilið, en að hann undirgengst eiðinn, því að æðsti presturinn segir rétt á eft- ir: »Hvað þurfum vér nú framar vitn- anna við? Nú heyrðuð þér sjálfir hans guðlöstun.» Eftir þessu er varla hægt að segja annað, en að guðs barni sé Ieyfilegt að vinna eið, þegar þess er krafizt og nauð- synlegt. er. Sá eini staður, sem virðist tala móti því að sverja, er Matt. 5, 33 — 36, en þar mun vera átt við daglegt tal og ónauðsynlegar staðfestingar á orðum manna, og sér hver maður, að afarmikill munur er á því að sverja þannig og á því, að yfirvöldin krefjist þess, að mað- ur staðfesti framburð sinn, til þess að leiða sannleikann í ljós. I málum, sem miklu varðar, er oft afar nauðsynlegt að eiður sé unninn. Kristinn maður getur með þvf að bera vitni, tala sannleikann og vinna eið að honum fyrir rétti, ver- ið valdur að því, að saklaus maður verði dæmdur sýkn, sem annars gæti orðið fyrir óréttum dómi. Enginn ætti með öruggara hjarta að geta staðfest framburð sinn en guðs barn, því að það talar að eins sannleik- ann eftir beztu vitund, og getur sagt eins og postullinn : »Guð er mitt vitni«, og: »Eg kalla guð mér til vitnis«. Rom. 1, 9; 2. Kór 1.23. 2. A eg, ef vinur minn býður mér til máltíðar, að neyta »blóðmatar», ef hann verður settur fyrir mig, þótt eg Viti, að blóðnautn sé bönnuð í guðs orði ? — Sbr. 1. Kor. 25 — 30.— »Aðrianus«. Það, sem postullinn hér í hinum til ■ vitnaða ritningarstað á við, er ekki blóð- át, heldur nautn kjöts þess, sem fórnað hefði verið skurðgoðum (sjá 28. v.). Sumir hinna fyrstu kristnu héldu, að slíkt kjöt væri óhreint, aftur á móti skildu aðrir, eins og rétt var, að skurð- goðin sem í raun og veru eru ekkert, gætu ekki gert kjötið óhreint. Sakir þess gæti kristinn maður með góðri sam- vizku borðað slíkt kjöt; en ef einhver bræðranna væri órólegur út af þessu, þá væri það skylda þess, er betri skiln- ing hefði, að halda sér heldur frá nautn slíks kjöts, heldur en að hneyksla bróður sinn með því að eta í návi'st hans það, sem hann áliti »óhreint« eða bannað, þótt það væri það ekki í raun og veru. Þegar stendur : »Etið allt, sem fyrir yður verður sett«, verðum vér að hugsa um sambandið, sem þessi orð standa í, eins og áður er bent á; það ei áreiðanlegt, að ekki geta þessi orð með réttu náð til alls mögulegs, setn manni geti orðið boðið hjá öðrum Ekki getur nokkur maður hugsað sér t. d., að postulinn meini að ef einhverjum kristn- um manni yrði boðið til heiðingja á Suður- hafseyjunum sumum, þar sem menn eta mannakjöt, — að hann þá skyldi eta það. »Allt« í þessum teksta . hlýtur að vera takmarkað, eins og líka sambandið sýnir. Og það er einnig vist, að orðin eiga eigi við blóðmat. Guðs boð, í til- liti til blóðmatarins, getur hver og einn lesið nógu greinilega í Post. g. 15, 19, 20. 29. Neístar. — Þú, sem prédikar hatur og kær- leiksleysi gagnvart þeim, sem trúa öðru- vísi en þú, og prédikar þetta í nafni himins þíns — vei þér, veiztu ekki. að himininn umkringir jörðina og faðmar oss alla í faðmi sinum. Es. Tegnér. — Syndin er hið þ^ngsta í alheimin- um. C. H. Spurgeon. — Pi estur við drykkjumann : »Þú ættir að hætta að drekka, Jón; brennivínið er hinn versti óvinur þinn.« Jón: »En þér, herra prestur, kennið, að við ei,um að elska óvini okkar.« Prestur : »Já, rétt er það, Jón, en eg kenni ekki, að við eigutn að svelgja þá,« ■&€x> <x>g>

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.