Frækorn - 15.12.1902, Blaðsíða 15

Frækorn - 15.12.1902, Blaðsíða 15
F R Æ K O R N . 175 Jíiít og þetta. —o— Yfirlýsing í stað eiðs 15. nóv. síðastl. samþykkti Landsþing- ið danska að láta yfirlýsing upp á æru og trú koma J stað eiðs fyrir rétti. Réttarmálaráðgjafinn var á móti þessu, en — þingið samþykkti það samt. Arið 1 go 1 seldi Danmörk til Englands: 6,654,000 pund ferskt kjöt. 47,759>00° pund smjör, 99,3^,000 pund flesk. 125,480,000 egg. Ffríkirkjan í Rvík hefur sagt presti sínum upp með sex mánaða fyrirvara. Séra Olafur Olafsson frá Arnarbæli, sem nýlega er hættur prestskap og fengið hefur eftiilaun, er ætlast til að taki við í stað séra Lárus- ar Halldórssonar, sem þjónað hefur söfn- uðinum frá stofnun hans. Bruni. 26, f. m. brunnu verzlunarhús Örum & Wulfs á Húsavík. Fyrirlestur um norskt þjóðlíf hélt hr. Helgi Val- týsson 14 þ. m. í Bindindisdúsinu á Fjarðaröldu Margir sóttu og þótti margt vel sagt í fyririestrinum. Um vínsöluna í SeyBisfjarðarkaupstað hefur séra Björn Þorláksson ritað mjög góða grein í 42. tbl. Austra. Að dómi hans hefur vínsala og aðflutningur víns stórum mínkað hér og í nærsveitunum síðan kaupmenn hættu við vínsölu, og þetta er auðvitað hið eina sennilega. Séra Björn er algerlega á móti því, að bær- inn taki að sér vínsöluna, Vínveitinga- húsið vill hann að hverfi alveg og hefur góða von Uin, að það verði. »Bjarki« þegir gagnvart þessu öllu frá séra Birni, »nennir« líklega ekki að verja málstað sinn. Grein séra Björns er svo glögg og greinileg, að það er líka skynsamlegast að »nenna« ekki að eigast við hana. »Bjarki« og »Frækorn.« Að »Norðurland« (eins og »Isafold«) muni vera á móti því fyrirkomulagi á vínsölunni, sem Bjarki ber fyrir brjóst- inu, þykjumst vér vita af persónulegri viðkynningu við ritstj. Tíminn mun lík- lega sýna það, að vér a'.ls eigi höfum »Norðurland« fyrir rangri sök í því máli, eins og Bjarki í vandræðum sínum gefur í skyn, Sem sýnishorn upp á, hversu »mentandi« »Bjarki« er 1 þessu máli, skulum vér benda á eina' setningu hjá honum. Það, að vér höfum sagt, að Norðurland muni ekki fylgja »Bjarka« í bindindismálinu — verður á hinu »mentandi« máli »Bjarka« það sama sem að vér hefðum sagt, að »Norðurland« »aðhyltist ofstækisstefnu í bindindismál- inu.« Eins og allar aðrar skoðanir á bindindismálinu ensú, sem »Bjarka« þókn- ast að hafa, væru ofstæki! Skárra erþað! Qóðar Jólagjafir eru þessar bækur, sem allar fást í skrautbandi á afgreiðslustofu Frækorna. Vegurínn til Krists. . . Kr. 1,50 Spádómar frelsarans . . - 2,50 Digte af D. Östlund . . . -- 2,00 Ljóðmœli eftir Matthías Joch- umsson I.......................- 3,00 Skírnir, 1887—1894 er til sölu með mjög vægu verði. Ritstj. vísar á. ZOLA OG ANDATRÚARMENNIRNIR. Eins og blöðin hafa sagt frá, dó hinn mikli skáldsagnahöfundur Zola nýlega. Nú segjast andatrúarmennirnir hafa fengið hann á sitt band, svo að andi Zola birtist á þeirra »seöncum.« Blað eitt í Paris sendi fyrir skömmu einn af blaðamönnum sínum til fundar bjá þeim, og segir blaðið þannig frá því: Miðillinn kom blaðamanni vorum í samtal við hinn fræga látna mann. Blaðmaðurinn spurði fyrst Zola, hvort hann þekkti nafn sitt. Svarið var »já«; því næst

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.