Frækorn - 15.12.1902, Blaðsíða 12

Frækorn - 15.12.1902, Blaðsíða 12
FRÆKORN. 172 Týndi faðirinn XXVII. Sárar og svíðandi hugsanir; við þeim verður ekki séð. Hræðslan umkringir mig. Allar dyr eru lókaðar. Eg finn að biksvarta myrk- rið færist að, sígandi og sígandi, eins og kólgumökkur úr hafinu, hjúpar mig og nemur mig burtu, þangað, sem engin frelsandi hönd nær framar til. Hjálp! Æ, því er eg að hrópa á hjálp, þar sem enginn er til að heyra. O að þú værir hér, að eg gæti fallið fram fyrir þig, og ákallað þig í neyð minni, minni sáru neyð, og þú mundir svara, og dæma mig, og láta þínar þórdunur þruma; að eg mætti iðrast, og opna hjarta mitt fyrir þér? og þú mundir hlusta á mig og hjálpa mér, og nema hræðsluna í burtu frá mér. Hví ert þú ekki hér ? Hvað er orðið af þér? Varstu orðin svo leiður á okkur, að þú gætir ekki verið hér Iengur? Vorum við of óhreinir — of smáir fyrir þig; var of lágt undir loftið í hjörtum okkar, of þröngt og kæfandi? Fékkst þú ekki rúm í sálum, sem ummynduðust í auðsafns-þrór og reiknivélar; * og í himninum varð ekki verandi fyrir blóð- svælu og sótreyk saurugra hugsana? Þess vegna hafðir þú þig á brott og yfirgafst okkur? Nei, —- sannlega, sannlega er eg ekki »hinn tapaði sonur,« heldur ert þú »týndi faðirinn;« og enginn dirfist að vænta þín framar, en af öllum þínum smælingjum er þín sárt — svo sárt saknað. En samt ert þú. Eg finn til þín. Þú ert lögmálið, Iögmál lífsins, hinn óbrigðuli, í gær og í dag og um a'.dir alda hinn sami. Ekki ert þú mildur, ekki ert þú reiður; þú ert hið nakta fjall, kaldur, hár og brattur ; hvorki sér þú né heyrir, hjarta þitt er úr málmi, og höfuðið íshrími þakið. þessvegna er eg dæmdur. Það verður ekki umflúið. Enginn er til að ákalla, og enginn er rétt geti mér hjálpar- hönd, þegar stundin kemur og myrkranna hyldýpi opnast —og^gapa. Og hræðslan hringvefur sig eins og*ísköld eiturslanga, utan um mitt helsjúka hjarta og hróp mín og andvörp og skjálfandi stunur deyja í nóttinni XXVIII. En ef eg nú færi til skriftaföðurs; hann mundi geta lyft farginu af sál minni. Hygginn og ráðhollur maður,’sem bæri kennzl á heiminn, lífið og hjarta manns- ins, — hann mundi geta það.í: EnHivar er slíkan mann að finna? Mótmælendur ota fram guðfræðingum, einum; en vanda- laus og ókunnugur maður mundi ekki skilja mig, En svo minnist eg þess, að í raun- inni eru allir vandalausir og hver öðrum ókunnugir. Þeir tveir menn eru ekki til á jörðunni, er tali sama mál; hver legg- ur sína þýðingu í orðin; menn fara sömu orðum um gagn-ólíka hluti. Og eg get ekki vitað hvernig orð mín verða skilin af þeim, er þau heyra. Nei, eg vif engin mök hafa við neinn skriftaföður. Eg ætla að vera sterkur.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.