Frækorn - 04.12.1903, Qupperneq 2

Frækorn - 04.12.1903, Qupperneq 2
154 FRÆKORN. Háckel hefur barist, hefur hann sjálfur gefið frá sér réttinn til að verða talinn með alvarlegum rannsóknurum.* Mjög svo skrítnar eru sögurnar um bathybius, hæckelii og um hinn vantandi millilið. Arið 1868 fann Huxley bathy- bius, nokkurskonar frítt, lifandi frumefni (protoplasma), sem mesta ógrynni átti að vera til af á sjávarbotni í hinu opna hafi; efni þetta uppnefndi hann eftir Háckel. Þetta var svo notað af Háckel og skóla hans: nú væri upphaf ails fundið, hið sjálfsmyndandi úrslím allra líf-færa-gæddra vera; hið mikla »gat« í hinni náttúralist- ísku heimsskoðun fyllt I En svo bar ekki 'oetur til, en að finnand- inn sjálfur, Huxley, varð að skýra bathy- bius sinn að vera líkast til aðeins — gelé-myndað gips, og að Möbius á nátt- úrufræðingafundi, viðstöddum til uppbygg- ingar, hafði búið til þetta fría frumefni (protoplasma)! Sem aðalstoð fyrir því, að maðurinn eigi kyn sitt að rekja til apans, hefur Háckel notað hinn margrædda fund á Java (1 895), apa-mannsins (pithecanthro- puserectus), og út af þeim fundi segir hann: »Vér eigum nú allar verulegar úr- uppsprettur fyrir sögu kyns vors.« Fundurinn er alls ekki, eins og vænta mætti, steingjörvinga-beinagrind, held- ur — tönn, lær-bein og efrihluti einn- ar höfuðkúpu (hvirfil-bein), sem fannst í i1/^ álnar fjarlægð frá tönninni, en lær- beinið í 22 4/2 álna fjarlægð frá henni. Og til þessa af svo vafasömum leifum samsetta apa-manns standa náttúrufræð- ingarnir í þeirri afstöðu, að lang-flestir þeirra (og Dennert nefnir nöfn) álíta hvirfilbeinið vera annaðhvort úr venjuleg- um manns- eða þá úr venjulegum apa- haus, meðan fæstir í því sjá það, sem Háckel vill sjá — milliliðinn. * * * Þessi dæmi ættu í sannleika að draga úr þeirri of-trú á vísindi vorra tíma, sem gerir ekkert úr guðs orði og leiðir svo margan út á glapstigu í trúarlegu tilliti. Vér höfum ekkert á móti sönnum vís- indum, en að hinir svonefndu vísinda- menn í óvissu sinni ýmist bjóða sem vissu það, sem aðeins eru getgálur, eða, hvað verra er, falsa það, sem þeir Ieiða fram sem rök —, það er svo viðbjóðs- legt, að vér verðum við og við að benda á það, þeim til styrktar, sem vilja í trú halda sér við klett aldanna og reiða sig á orð þau, sem munu standa, þegar himinn og jörð forganga. Og til hinna mörgu, sem aðhyllast hina svonefndu breytiþróunarkenningu Darwins og Háck- els, viljum vér segja: Gáið að því, að þér ekki með öllum yðar stóryrðum um það, að þessir herrar hafi »sannað«, að sköpunar-saga biblíunnar geti ekki verið áreiðanleg, — gáið að því, að þér ekki reynist að vaða í svívirðilegri villu! Því sannleikans viljið þér þó án alls efa leita. Er það ekki undarlegt, að prestar, sem kannast við, að meiri- hluti safnaða sinna sé sofandi menr, andlega talað, skuli gjöra ráð fyrir í ræðum sínum, að allir tilheyrend- urnir séu guðs börn ? að prestar, sem sjá ekki fleiri en 10 — 20 í kirkjum sínum flesta sunnudaga árs- ins, skuli sjaldan flytja ræðu í heima- húsum né tala um guðs ríki utan kirkju ? að margir prestar skuli blóta og sumir drekka fast, og enginn skifta sér af? að brjálaður maður er látinn »annast« prestsembætti óumtalað ? að örvasa gamalmenni skuli látin þjóna erfiðu brauði hjálparlaust ? að sumir duglegustu prestarnir skuli jafn- framt vera stórbændur, og sumir hinna búlausu hreint ekki meira en í með- allagi, og þó er verið að kenna bú- skapnum um, að prestarnir séu ekki afkastameiri, en þeir eru ? að sumir skuli haltía, að bezta ráðið til að bæta vor andlegu mein sé að stækka svo verkahring prestannna að þeir geti varla orðiðannað en »embætt- isverkamaskínur« ? að þeim, sem eiga að hlynna að sálar- velferð rnanna, er borgað minna og með meiri eftirtölum en öllum öðrum

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.