Frækorn - 04.12.1903, Side 16
i68
FRÆKORN.
Póstur drukknaður.
20. október síðastl. fórst bátur með 6 mönn-
um á leið frá Flatey til Stykkishólms. For-
maður á bátnum var Jóhann Jónasson póstur,
ágætur sjómaður og vel kynntur. Var hann
í póstferð, er slys þetta vildi til. Með hon-
um drukknuðu: Guðjón bróðir hans, Jón Sig-
urðsson, Guðmundur Jónsson, Jóhann Þor-
valdsson og Marbjörg Sigurðardóttir. (ísaf.)
Fjárglæframaður strokinn.
Upp hefur komist um ættfræðinginn Jósa-
fat Jónasson, að hann hafi á ýmsan hátt svik-
ið sér út fé í Reykjavík, að upphæð alls um
10,000 kr., og — er svo farinn til Ameríku.
Húsbruni.
Hús Gísla Hjálmarssonar á Norðfirði brann
fyrir fáum dögum til kaldra kola. Nánari
fregnir ókomnar. Hús Gísla var eitt með
stærstu húsum hér Austanlands.
VíxiifSIsun
hefur komist upp um sjómann í Reykjavík,
Ólaf Ólafsson að nafni. Var hann hand-
samaður daginn eftir, að víxillinn var seldur;
var hann þá búinn að eyða af fénu 8o kr.
Víxillinn var upp á 200 kr.
Hannes iiafstein ráðherra?
Fregnmiði frá »GjalIarhorni« segir, að Hann-
es Hafstein hafi verið boðaður á konungsfund
til þess að taka á móti ráðgjafaembættinn.
Sunnanblöðin bera brigður á þetta.
Danska blaðið »Köbenhavn« telur 14. okt.
aðeins þrjá líklega til þess að verða í valinu:
þá H. Hafstein, Klemenz Jónsson og Valtý
Guðmundsson, en getur þess um leið, að
»Alberti muni, eftir áreiðanlegri sögusögn,
boða ráðgjafaefnið út.«
Þessi orð benda þá til annarshvors sýslu-
mannanna Klemenz eða Hannesar. Hannes
fór með Lauru í okt. og ætti eftir þessu að
vera maðurinn. Klemenz sýslumaður er kyr
á Akureyri.
Hin nýja stjórn kvað eiga að taka til starfa
1. febr. 1904.
Stóri-bankinn
óuppsettur enn í Rvík. Von á honum þang-
að eigi fyr en með miðsvetrarferð Lauru.
JónliÞorkelsson,
sonur séra Jorkels heitins Bjarnasonar á
Reynivöllum, kand. í lögfræði, er dáinn ó.nóv.
Landsyfirrétturinn
hefur þ. 12. f. m. kveðið upp dóm í mál-
inu út af greftrun Sigurðar sál. Einarssonar,
hreppstjóra á Hánefsstaðaeyri hér í firðinum,
og staðfesi héraðsdóminn. Ekkja hins
framliðna algjörlega sýknuð og málskostnaður
lagður á hið opinbera,— Sjá Fræk. 30. apr. þ. á.
MALTEKSTRAKT,
Cacao,
Þurkaðar súpujurtir,
svo sem : hvítkál, grænkál,
steinselja (pedersille),
og enn fremur
Blandaðar súpujurtir
til sölu bæði í lausri vikt og
í heilum pökkum.
Seyðisfjarðar apótek.
Seyðisfjarðar apótek
• hefur nú til ágætt roeðal við niðurgángssýki
á fé, er hefur reynzt ágætlega í útlöndum.
Ættu fjáreigendur því að ná meðalinu að sér
sem fyrst, svo þeir gætu þegar gripið til þess,
er fé þeirra veikist af þessum sjúkdómi.
Meðalið er mjög ódýrt.
TIL JÓLANNAI
NÝJA TESTAMENTIÐ MEÐ MYNDUM.
Margur hefur lengi óskað eftir að geta
fengið nýja testamentið í lítilli, handhægri
útgáfu.
Nú er slík útgáfa út komin. Stærð
bókarinnar að eins hér um bil 4X5t/2
þuml. Þykkt tæpir 3/4 þuml.
Fjöldi litmynda.
Bandið einkar-skrautlegt,
Verð kr. 1.50 til 5.00 eftir gæðum
bandsins.
Sama útgáfa án mynda fæst einnig og
er verðið 50 au. Iægra á hverju eint.
Til sölu hjá
D. ÖSTLUND.
FRÆKORN, heimilisblað með myndum, 24
blöð á ári auk jólablaðs, - kostar hér á landi
1 kr. 50 au. um árið;, til Vesturheims 50 cents.
Borgist fyrir 1. okt. Úrsögn ógild, netnakomin
sé til útg. fyrir 1. okt. og blaðið sé að fullu
borgað fyrir það ár.
Prentsmiðja Seyðisfjarðar. 1903,