Lögrétta - 01.01.1933, Qupperneq 4

Lögrétta - 01.01.1933, Qupperneq 4
7 LÖGRJETTA 8 áhrifum skynsamra manna, sem vinna að uppbyggingu en ekki eyðingu. Þótt undarlegt megi virðast, þá kemur það, hversu líkar þessar tilraunir eru í eðli sínu, fljótast fram með því að athuga mis- mun þeirra. Italinn andmælir ákaflega hinum „rauðu“ andstæðingum og Rússar ó- skapast engu minna yfir harðstjóm „hvít- liðanna". En það er sameiginlegt tilraun- inni í öllum fjórum löndum, sem nefnd voru, að valdamennirnir eða samkomumar hafa skyndilega lýst því yfir, að þeir eða þær ætli að taka að sjer stjórnina á fram- kvæmdalífi þjóðanna og þar með aðalstjórn- ina á öllu þjóðlífinu. Rússneska kommúnista lýðveldið hefur gengið lengst. Það hefur, í orði kv'eðnu að rninnsta kosti, afnumið alt einkaauðmagn í stærstu framleiðslugreinunum. Innflutnings- og útflutningsverslun Rússa er líka alveg í höndum miðstjórnar ríkisins og verkamenn- irnir em vinnuþiggjendur ríkisins og laun þeirra og vinnukjör ákveðin af því á sama hátt og t. d. Bretar ráða hermönnum sín- um. 1 Italíu er farin önnur leið. í orði kveðnu heldur einkaauðmagnið áfram að vera til og framtak einstaklingsins er talið grundvall- arskilyrði þess að mest og best framleiðsla fáist. En í rauninni er mikill hluti einka- vinnuveitendanna liður í opinberum eða hálf- opinberum fjelögum eða bandalögum, sem verkamennirnir eru einnig þátttakendur í. Og öll þessi bandalög lúta síðan nánu eftir- iiti og íhlutun ríkisvaldsins, svo að einung- is nokkur hluti einstaklingsvaldsins er eftir. Hið þýska form þjóðjafnaðarmennskunnar er ennþá svo óþroskað, að það er ekki ómaks- ins vert, að athuga það nákvæmlega. Menn búast ekki við fullum þroska skynseminnar hjá óvita, sem ólmast um garðinn og brýt- ur alt í brölti sínu. Það er ósjeð ennþá hvort um er að ræða brjálæði eða ungæð- ishátt. En að vissu leyti er stefnan skýr og skorinorð, sett fram í fullu einræði: í Þýska- landi á alt að fara eftir skipun lögreglunnar, sem er fulltrúi hins almáttuga og aldýrðlega föðurlands. En furðulegasti þáttur þessarar nýju stefnu ríkisstjórnarinnar er spunninn í Bandaríkjunum, landi auðs og einstaklings- hyggju, sem til skamms tíma hjelt að það iiefði fundið lykil hinnar jarðnesku paradís- ar, en hefur nú sjeð að velgengnin er ekki eins einfalt viðfangsefni og álitið var. Nú er svo komið, að „Bandaríkjastjórn ætlar að taka í sínar hendur alla stjórn framleiðsl- unnar“, svo að notuð sjeu orð Wall Street frjettaritara Observer, sem segir ennfrem- ur, að mikill hluti stóratvinnurekendanna taki þessu vel. Það er ekki ætlunin hjer, að ræða ein- stök viðfangsefni kreppunnar, heldur að benda á nokkur meginatriði. Það er í fyrsta lagi auðsjeð, að á undanförnum árum hefur það framleiðslu- og viðskiftakerfi, sem við er búið, næstum því hætt að verka, sem full- starfandi vjel. Framleiðendumir geta eklci selt vörur sínar, fjármálamennimir ekki fje sitt. Það furðulega í þessu er svö þetta, að hið svonefnda auðvaldsskipulag er ekki kom- ið í kreppu vegna þess að því hafi mistekist að framleiða þann auð, sem tilgangur þess er að framleiða. Það hefur hmnið vegna þess, að því hefur tekist þetta svo gersam- lega, að það getur framleitt meiri auð en það getur selt á sínum eigin markaði. Þetta er auðvitað ekki í neinni mótsögn við þá jafn augljósu staðreynd, að margar miljónir manna líða skort vegna þess, að samgöngur viðskiftalífsins eru svo fullar af hömlum, að hinir atvinnulausu geta ekki komist að þeim markaði, sem fúslega gæti bætt úr þörfum þeirra. Þetta er eitt grundvallaratriði krepp- unnar. Vjelin framleiðir meira en það, sem maðurinn, sem starfrækir hana, hefir efni á að kaupa í hinmn skipulagslausa heimi. Það borgar sig ekki lengur að rækta hveiti og framleiða baðmullarvörur, af því að svo mikið er til af þessu, að arðurinn af því að selja það er svo að segja orðinn að engu. Sumir halda, að ástandið eins og það er nú, sje að mestu eða öllu leyti því að kenna, að ófriðarskuldirnar hafi raskað jafnvægi bankakerfisins. Gullið hefur safnast á tvo staði aðallega, í banka Frakklands og Banda- ríkjanna, og þess vegna, segja menn, getur frjáls vöruumferð ekki haldist, þegar fjár- magnið, sem kaupa á vörurnar fyrir, er fast á tveimur stöðum. Hinar þjóðimar geta

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.