Lögrétta - 01.01.1933, Side 5

Lögrétta - 01.01.1933, Side 5
9 LÖGRJETTA 10 Lá ekki, vegna gull- og lánstraustsskorts, komist á markaðina sem kaupendur. í þess- ari skoðun er mikill sannleikur. Heimsversl- un, sem að miklu leyti byg’gist á gulli, rask- ast þegar jafnvægi gullsins raskast. Ef heimurinn hefði verið nógu skynsamur til þess, að selja tannlæknum og skrautgripa- sölum gull sitt — nema ef til vill það, sem nauðsynlega þarf í alþjóðaviðskifti — þá væri hin hlægilega gullgildisdeila ekki til og eyddi ekki tíma heimsins. Hingað til hefur verið logð altof mikil áhersla á gjaldeyrismálin. Þau eru mikilsverður, en sennilega ekki mikilsverðasti þátturinn í úrlausnarefnum örþrota framkvæmdalífs. Það, sem allt velt- ur á, er framleiðslan og dreifing raunveru- legs auðs, en ekki þess, sem er tákn auðs- ins. Viðskiftamálaráðstefnan í London hefur ef til vill unnið þarfasta verk sitt með því að sýna það, að þörfin á verðfestingu gjald- eyrisins er ekki eins óumflýjanleg og aðrar umbætur fjárhags- og viðskiftalífsins. Það er hugsanlegt, að árangursleysi við- skiftamálaráðstefnunnar, eða það, að hún gat ekki siglt ólgusjó alþjóðafjármálanna, ráði hvörfum í kreppunni. Það gæti sannfært aðrar þjóðir um það, að þeim væri það fyrir bestu, að vera kyrrar heima og greiða fyrst fram úr sínum eigin erfiðleikum, og vona (ekki að ástæðulausu) að lygnara verði á al- þjóðafjármálahafinu þegar hver um sig hef- ur lægt öldurnar hjá sjer. Viðfangsefnið, sem nú bíður allra stjórn- málamanna, er skipulagning þjóðlegs lífs, (og þar með auðvitað að töluverðu leyti al- þjóðlegs lífs), því að slíkt verður ekki leng- ur eingöngu falið geðþótta einstakra manna, og fjelaga, eins og hörð reynsla hefur feng- ist fyrir. Þjóðlífið er nú orðið of flókið til hess að einstaklingurinn komist í gegnum það öruggur og aðstoðarlaus. Það er þessi margbreyttni þjóðfjelagsins, sem gert hefur lýðræðinu ókleift að starfa, eins og áhugasamir heimspekingar og fræði- menn vonuðu einu sinni í stofum sínum. Með- an lýðræðið gegndi skyldum sínum og neytti hJettinda sinna á grasflöt þorpsins, mátti uieð skynsemd vænta þess, að því heppnað- lst hinn göfugi tilgangur, að vernda frelsi °g efla auðsæld fólksins. En þegar fram- Jcvæmdir starfsmanna þjóðarinnar ukust og þær fluttust inn í Westminster og Whitehall, þá breyttist þetta. Það væri ekki gott að segja, að sú stjórn, sem nú fer fram í þing- húsi og stjómarráði væri lýðræði í rjettri og nákvæmri merkingu orðsins. Það verður ekki sagt með neinni vifesu á hvem hátt eftirliti ríkisins með framleiðsl- unni verður háttað. Aðalatriðið er sennilega það, að í þjóðstjórn framleiðslunnar verða sennilega að miklu leyti sömu mennimir, sem nú þegar eru starfandi að framleiðslunni. Það er einnig sennilegt, að þj óðareftirlitið með viðskiftalífinu verði í alt öðru formi, geróliku því, sem hin gamla jafnaðarstefna, sem er nú þegar orðin úrelt, hjelt að það yrði, en þó verður úr því lýðræðislegt jafn- rjetti, og auður og frelsi, sem sennilega fer fram úr vonum jafnaðarmanna. Kreddu- fastir jafnaðarmenn gleymdu venjulega ein- liverju mikilsverðasta atriðinu — huga og hugarfari mannsins. — Skrif stof ust j órnin (bureaucracy) mundi gera þetta fína tæki ófrjósamt, framkvæmdalaust og vjelgengt. Hinar nýju áætlanir — nema í Rússlandi — mundu re.vna að leiðbeina fremur en að skipa. Minna mun verða um ríkiseignir en Marxistar vonuðu. En eftirlitið verður einn- ig meira en frjálslyndir auðshyggjumenn þoldu. Framleiðsla og verslun verður skipu- lögð öllu fremur en hún verður framkvæmd af ríkisembættismönnum. Þeir embættis- menn verða, þegar alt kemur til alls, út- nefndir að einhverju leyti, eða starfandi í mjög nánu sambandi við þjóðþingin, að minsta kosti í Bretlandi. Hvaða stefnu sem Ítalía og Rússland og Bandaríkin taka gagn- vart einræði, þá getur það ekki átt við eða átt sjer stað í Englandi. Skipulagsnefndirn- ar munu bera ábyrgð gagnvart þinginu, þótt þær geti ekki starfað þar og þurfa að vera í störfum sínum óháðar umræðum þingsins, því að þær eru gagnslausar fyrir fram- kvæmdastörfin. Þingið er fulltrúi almennra skynsamlegra óska þjóðviljans. En skipulags- störfin þarf að fá í hendur þaulvönum mönnum. Meginskylda þingsins nú er að finna slíka menn og skipa þeim til starfa. Áætlunarríkið er sigur skynseminnar á fá- víslegu kæruleysi.

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.