Lögrétta - 01.01.1933, Síða 8

Lögrétta - 01.01.1933, Síða 8
15 LÖGRJE TTA 16 BÓKMENT ABÁLKUR______ ---- LÖGRJETTCJ Skáldsögur, Meðal nýlegra skáldsagna Evrópubók- rnentanna, sem ástæða er til þess að benda íslenskum lesendum á, eru ágætar sögur eftir tvær konur, Pearl S. Buck og Kate O’Brien. Sú fyrri er ensk en hefur mikið alið aldur sinn í Kína og skrifað sögur, sem lýsa prýðilega og skemmtilega kínversku bændalífi (The Good Earth, þ. e. Góð jörð og Sons, Synir, sem er framhald hinn- ar). Sú síðarnefnda hefur orðið víðfræg fyrir ágæta ættarsögu (á dönsku: Slægt "Ný ljósmyndun, Menn eru ekki alls fyrir löngu farnir að hagnýta sjer svonefnt infra-rautt ljós við ljósmyndanir og til ýmislegra annara þarfa á einkennilegan og oft íurðulegan hátt. Með þessu rauða ljósa geta menn tekið mynd- ir í mikilli fjarlægð. „Infra“-rauðu geislamir geta komist gegmum mistur og þunna þoku og náð þannig yfir vítt svæði. Þessi nýja að- ferð hefur haft mikil áhrif á alla Ijósmynd- un. T. d. hafa menn í British Museum notað þessa aðíerð til þess að taka myndir af máð- um handritum, skráðum í Egyptalandi 1200 ái'um f. Kr. Bókfellið er orðið mjög blakt og letrið svo að segja horfið og gr-einist var’a með berum augum og ólæsilegt þannig, en rauðu geislarnir hafa náð öllu letrinu og gert það vel læsilegt. Læknar, einkum prófessor Haxthausen í Kaupmannahöfn, hafa einnig notað þessa aðferð til þess að taka myndir af húðsjúkdómum, eða af húðinni rjett und- ir yfirborðinu. Stjörnufræðingar eru einnig farnir að nota þessa aðferð við athugun á öðrum stjörnum, t. d. hafa verið gerðar á þennan hátt merkilegar athuganir á geislum frá Venus í Lick-athugunarstöðinni. Infra- rauðu geislana má einnig nota til þess að taka myndir í myrkri og gera lögreglumenn ráð fyrir því, að nota megi aðferðina til þcss að taka myndir af glæpamönnum að þemi óvörum. skal fölge) og lýsir hún þar írskri kaup- mannaætt. Ættarsögur og fjölskyldusögur eru nú margar skrifaðar, eins og áður hefur verið getið í bókmentabálki Lögrjettu og ýmsar þeirra merkar. Meðal slíkra sagna eru t. d. bækur Herbert Crumper Lewison’s, hj ónabandssaga með ákveðnum árásum á ameríska hjónabandslöggjöf og siðferðis- liræsni, sem höf. telur vera. Aðra sögu hef- ur hann einnig skrifað (Rödd blóðsins), þar sem hann lýsir Gyðingafjölskyldu, er flytst til Ameríku. Gyðingamálin, eðli Gyðinga og afstaða þeirra í menningunni er mikilsvert og mjög umþráttað mál og má oft fá ágætar hugmyndir um þau af góðum skáldsögum, sem um þetta fjalla. T. d. má nefna de Vriendt snýr heim (de Vriendt kehrt heim) eftir Arnold Zweig, með góðum lýsing- um frá Gyðingalandi. Skemtilegt úrval úr bókmentum Gyðinga sjálfra um allan heim, er nýkomið á ensku (Yisroel, smásögusafn). Tvær franskar sögur, sem þýddar hafa ver- ið nýlega á Norðurlandamál, er rjett að nefna, þegar talað er um nýjar fjölskyldu- sögur, Familiekredsen eftir Maurois, saga ungrar konu, vel sögð og af listfengi og Ormebolet eftir Mauriac, saga um ríkan föð- ur, sem reynir að eyða eigum sínum til þess að börnin hreppi þær ekki. Saga Hans Fallada um Pinneberg er einnig prýðileg fjöl- skyldusaga, saga um hjónaband og basl og atvinnuleysi miðlungsgáfaðs en heiðarlegs skrifstofumanns og ágætrar konu hans, sem er mjög vel lýst. Af eldri sögum um áþekk efni hefur nýlega verið þýdd á sænsku Familjen Golovljov, saga um hnignun rúss- neskrar aðalsættar, eftir Saltykof, einn af bestu höf. Rússa á síðastliðnum mannsaldri. Síðari hlutinn af hinni alkunnu sögu Sjolo- koffs, sem fyr hefur verið nefnd, Hægt streymir Don, er einnig kominn út .í norræn- um þýðingum. Sinclair Lewis hefur verið talsvert lesinn hjer á síðustu árum og eftir hann er komin ný saga (einnig á dönsku og sænsku), sem heitir Ann Vickers og er lýsing á kvenrjett- indahreyfingunni og ýmsu samkvæmislífi og opinberu lífi kvenna, og er höf. heldur lítið um sumt það vafstur gefið, þótt hann lýsi söguhetju sinni oftast af samúð. I bókinni

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.