Lögrétta - 01.01.1933, Síða 14

Lögrétta - 01.01.1933, Síða 14
27 LÖGRJETTA 28 Björnsons, sem þýdd hafa verið á íslensku, ný útgáfa af Sigrúnu á Sunnuhvoli og bók um æfi og skáldskap Björnsons, eftir Ágúst H. Bjarnason, prófessor við háskóla íslands. Það er ekki stórt til frásagnar, alls ekki, en við höfum aldrei heiðrað nokkurn mann á þennan hátt fyr. r Og j?að góða við þetta er, að það er svo eðlilegt, svo sjálfsagt. Björnstjerne Björn- son á heima í okkar þjóðlífi og okkar þjóð- lífsörlögum og á dýrmætan og ófráskiljan- legan þátt þar í. Hann er okkar maður, — við höfum fyrir löngu tekið hann okkur til inntekta, eins og okkar mann, og við slepp- um honum aldrei. Eða rjettara sagt: Hann hefur lagt okkur undir veldi sitt, og það ó- riftanlega um aldir. Og við blessum hann fyrir það. Veit jeg það vel, að landnám hans í andans heimi nær miklu lengra en til íslands, — en jeg tala aðeins um hlutdeild okkar í því, vegna þess, að það er fyrir Is- land eitt, sem jeg tala hjer. Og þar sem mjer nú hefur veitst sá heið- ur, að eiga að flytja hjer í stuttu máli kveðju íslensku stj órnarinnar og þar með hinnar íslensku þjóðar til Noregs, okkar stóra bræðralands, okkar gamla, kæra móð- urlands, í tilefni af 100 ára afmæli Björn- stjerne Björnsons, þá hlýt jeg að minnast alls, sem við höfum frá Noregi þegið á um- liðnum tímum, fyrst og fremst sjálfa okk- ur, er menn af bestu ættum Noregs fluttust búferlum til eynnar vestur í sænum nú fyr- ir rumum tíu öldum. Á norskum kynstofni er hið íslenska ríki grundvallað, og þennan kynstofn höfuð við verndað svo vel, að það eru ekki fáir okkar á meðal, sem með stoð í löggildum ættartölum mundu geta gert óðalsrjett sinn gildandi til ýmissa stór- býla í Noregi. Fyrst og fremst höfum við þegið sjálfa okkur frá Noregi og þar næst aftur sjálfa okkur með ljósberanum, vegvís- aranum Björnstjerne Björnson, landnáms manninum, hinum ógleymanlega og alla tíð geyglausa, riddaranum án ótta og ámælis, honum, sem var norskastur af öllu norsku — og ættaróðal, sem við afsölum okkur aldrei hlutdeild í. Og þegar jeg, sem sagt. á að klæða kveðju okkar í orð, heillaósk okk- ar og hylJingu, finn jeg ekkert, sem betur gæti átt við en að óska norsku þjóðinni, hinni göfugu móðurþjóð, ekki aðeins hins hins mikla sonar, sem nú á 100 ára afmæli.. heldur svo margra annara ágætra og ó- gleymanlegra eldri og yngri sona og dætra, heima og erlendis, að hún — í framhaldi og fullkomnun verka skáldsins Björnstj erne Björnsons — megi meðal þjóðanna fylla sama rúm, sem Björnstjerne Björnson fylti meðal manna. 2, Orápa tíl dáíns honungs, |fín®rSToan. Tfleínfeað ‘Kctrolíne Sjörnson. Flutt í Osló og Kaupmannahöfn á 100 ára minningarhátíð Björnstjerne Björnsons. (Lausleg þýðing). Hrynji hreimkliður! Heyr mig, Björns niður! Konungi ljóða vil jeg kvæði bjóða, láta’ í helheimi hörpu glymstreymi hrinda haugfriðnum hjá höfðingja liðnum. Heyrið, hirðsveinar, hróðurs málsgreinar! Klið af öldnum óð heyr þú, unga þjóð! Heyrið, Dofra dætur, hve drápan lætur í eyrum. Sá andi er frá yðar landi. Hlýð litla stund og losa blund fyrir drápu hreimi á dánarheimi hái hildingur, hróðrar mildingur. Gef oss glaðhug þinn og gakk hjer inn. Gef hátíð byr þú, sem hreyfst menn fyr með andans kingi á orða þingi, svo megi þitt minni magnast hjer inni

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.