Lögrétta - 01.01.1933, Blaðsíða 18

Lögrétta - 01.01.1933, Blaðsíða 18
85 LÖGRJETTA 36 Walter Scott Sftír íRíchard Bech /Pldarmínníng i. Á liðnu hausti var þess minst með hátíða- höldum víða um lönd, að 21. september voru hundrað ár liðin frá dauða Walters Scotts, skáldsagnameistarans víðfræga og ástsæla. Hann naut meiri lýðhylli en nokkurt annað samtíðarskáld hans; og þrátt fyrir nýjan tíðaranda og breyttan bókmentasmekk eru skáldsögur hans ennþá víðlesnar, ekki síst á Englandi og Skotlandi, þar sem ódýrar út- gáfur þeirra eru hvarvetna á boðstólum. Svipuðu máli mun gegna um vinsældir þeirra í Vesturheimi, og ekki er Scott heldur gleymdur utan landamæra enskrar tungu. Tíminn líður fram, stund af stund; stormþytur fer um víði. Eflast og blandast á ýmsa lund óskir um broshýru og vökufund, þrá mín og kvíði; þrá mín og þreyjulaus kvíði. 7. Vöknuð! Vöknuð! Slík hamingja. F.ldur í æðum; eldur í taugum. — Glitraridi glæðum Glófaxi slöngvar á ennishlað. Hvílík dýrð! Hvílíkt glóandi geislahað! Sólskin á enni — og sólskin í augum. Hjer er nú hamingjudýrðin; heimurinn allur.------ Nú hertek jeg frægðina þegar í stað. Jeg geng um stund til Gjúka; geld þegar skatt minn til Óðins og Týs. Verð fóstbróðir frægustu hetja; frægastur allra; minn sigur er vís. Meðan augu þín yfir mjer vaka ekkert má dirfð mína saka. Vinn kóngsríki, frægðir og fje; . alt, sem frægðinni er látið í tje. Kem svo aftur til þín. Við sjónhring í hásæti hillir hamingjudís —. það er brúður mín. Leiti menn vitnisburðar bókavarða og bók- sala, mun það sannast, að hann á sjer enn- þá þúsundir lesenda og aðdáenda um allan hinn mentaða heim. Nýjar útgáfur rita hans kom altaf öðru hvoru á markaðinn, og vart myndi því svo farið, ef engir keyptu þær. Ritfrægð Scotts er bersýnilega langt frá því, að vera „fallin í gleymsku og dá“. Hann er einn hinna tiltölulega fáu „útvöldu“ í ríki bókmentanna, en þar var hann brautryðjandi á tveim sviðum. Slíkra úrvalsmanna andans er maklegt og holt að minnast á merkum tímamótum. Vjer íslendingar höfum auk þess sjerstaka ástæðu til þess að heiðra minrdngu Scotts á þessum aldahvörfum í sögu hans. Hann hafði mikla ást á fomum fræðum vorum, teygaði djúpt af lindum þeirra, og dró athygli enskumælandi manna að þeim. Hitt er ekki síður merkilegt, að Scott hafði mikil áhrif á Jón skáld Thorodd- sen, þann manninn, sem með sanni má kalla föður íslenskrar skálsagnagerðar á seinni öldum. Á því vel við, að víkja nokkrum orð- um að sambandi Scotts við íslenskar bók- mentir að fornu og nýju, en stiklað verður aðeins á stærstu steinum. Ungur tók Scott trygð við hin fornu fræði vor. Innan við tvítugt, samdi hann ritgerð um siðu og háttu norrænna þjóða, sem þótti lýsa víðtækri þekkingu á viðfangsefninu og miklum áhuga á fræðirannsóknum*). Einn- ig sjest það af brjefum Scotts, að þegar á næsta ári er hann farinn að sökkva sjer nið- ur í hið víðkunna rit Thomasar Bartholins: Um orsakir hugrekkis Dana að *) ítarlegasta frásögn um kynni Scotts af nor- rænum íræðum er að finna í ritgerðinni: „Scott and Scandinavian Literature'1, eftir Paul R. Lieder, Smith College Studies in Mo- dern Languages, Vol. 11, 1920—21, bls. 8— 57. Sjá einnig: Conrad H. Nordby, The Influ- ance of Old Norse Litereture upon English Literature, New York, 1901.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.