Lögrétta - 01.01.1933, Síða 19
37
LÖGRJETTA
38
fornu, merkisrit á latínu um norræna
menningu og bókmentir, ásamt útdráttum
úr fjölda íslenskra fornsagna á frummálinu
og í latneskri þýðingu. Fjöldi tilvitnana í
ritum Scotts ber þess órækan vott, að hann
hefur alla æfi haft mestu mætur á Bart-
holin. Auk þess vitnar hann í fleiri latnesk
rit um norræn fornfræði, svo sem bækur Þor-
móðs Torfasonar (Torfaeus), einkum út-
gáfu hans af Hrólfs sögu kraka. Scott var
einnig kunnugur stælingum Thomas Grays
af íslenskum fornkvæðum og þýðingu A. S.
Cottle á Sæmundareddu (1797) ; ennfremur
skrifaði Scott langan og skarplegan ritdóm
um þýðingar Williams Herberts af íslensk-
um úrvalslj óðum, og loks endursagði hann
Eyrbyggju fyrir hið fræga rit Mallets:
„S k ý r i n g a r á n o r æ n u m f o r n-
f r æ ð u m“. Skráin yfir bækur Scotts
í Abbotsford ber einnig vitni áhuga hans á
norrænum fræðum; hann átti kringum
fimtíu bindi rita um Norðurlönd, meðal
þeirra allmargar íslenskar fornsögur á frum-
málinu og í þýðingum. Má benda á það hjer,
að Scott mun hafa skilið talsvert í íslensku,
enda gerði móðurmál hans honum tiltölulega
Ijett fyrir að komast niður í Norðurlanda-
málum; mestan fróðleik sinn um norræn efni
sótti hann samt í latneskar og enskar þýð-
ingar, sjer í lagi hinar fyrnefndu; eigi er
því heldur að neita, að þekking hans á nor-
rænum fræðum er harla ónákvæm, þó honum
takist sumstaðar allvel, að lifa sig inn í nor-
t'ænan hugsunarhátt.
Tilvitnanir í goðafræði og bókmentir
Norðurlanda eru dreifðar um fjöldamörg
skáldrit Scotts; hjer sem annarsstaðar var
bnð hið stórfelda, yfirnáttúrlega og æfin-
týralega, sem laðaði að sjer huga hans; hon-
um verður tíðrætt um dverga, völvur og ber-
serki. Langmest gætir þó áhrifanna frá nor-
i’ænum bókmentum í þessum ritum Scotts:
ljóð sögunni Harold the Dauntless
(Haraldur hugrakkí) og skáldsögunni T h e
Pirate (Sjóræninginn). 1 Haraldi hug-
i'akka tók höfundurinn sjer fyrir hendur að
lýsa norrænum víking, að hætti fornra
skálda; kvæðið er kröftugt á köflum, en æði
mikilla öfga kennir í lýsingunni. Skáldsagan
Sj óræninginn gerist í Orkneyjum, en
Scott hafði ferðast um þær stuttu áður en
hann ritaði sögu þessa. Inn í frásögnina
íljettar hann ýmsar gamlar sögusagmr, sem
hann hafði heyrt af vörum eyjaskeggja, og
tilvitnanir í norrarn fræði. Hinn norræni andi
birtist þó einkum í kvæðunum í sögunni; vík-
ingslundin kemur þar víða fram í kröftugri
mynd. Kvæðið, sem seiðkonan Norna þylur
mitt í æðisgangi stormsins, ber mikinn svip
af „Völuspá".
Ofangreind dæmi eru næg sönnun þess, að
Scott hafði lifandi áhuga á norrænum fræð-
um, og hjelst svo fram á efri ár hans. Þó
verður vart sagt, að áhrifa frá forníslensk-
um bókmentum gæti í frásagnaraðferð hans.
Áhugi hans á þeim fræðum bar engu að síð-
ur merkilegan og víðtækan árangur. Heill
hópur enskra skálda, samtímamenn og vinir
Scotts, meðal þeirra lárviðarskáldið Southey,
urðu, á einn eða annan hátt, fyrir áhrifum
af norrænum bókmentum og breiddu út
hróður þeirra.
Skal þá horfið að sambandi Scotts við ný-
íslenskar bókmenir; þeim bárust frjóvgandi
straumar frá ritum hans. 1 mjög eftirtektar-
verðri ritgerð: „Jón Thoroddsen og den is-
landske nutidsromans ophav“ (Nordisk Tid-
skrift, 1926, bls. 76—83), hefur dr. Sigfús
Blöndal, bókavörður, leitt gild rök að því, að
Jón skáld Thoroddsen hafi orðið fyrir áhrif'-
um frá þeim skáldsögum Scotts, sem lýsa
skotsku sveitalífi og skotsku alþýðufólki
Sýnir dr. Blöndal fram á, að þeim Thorodd-
sen og Scott svipar saman í ýmsum grein-
um, einkum í lýsingum þeirra á alþýðufólki.
í brjefi til Gísla skálds Brynjólfssonar, sem
Blöndal vitnar í, gefur Thoroddsen beint í
skyn, að Scott hafi verið honum fyrirmynd
í skáldsagnasmíðinni. En eins og Blöndal
bendir á, þá var Thoroddsen altof frumlegt
skáld til þess, að hann færi í smiðju til
Scotts eða nokkurs annars ;honum varð dæmi
hins skotska skáldsagnameistara hvatning
til sjálfstæðra ritsmíða, andleg vakning.
II.
Æfi Walters Scotts var atburðarík; er
saga hans því hin fróðlegasta og skemtileg-
asta; hjer verður aðeins litast um af hæstu
hnjúkunum. Hann var fæddur í Edinborg