Lögrétta - 01.01.1933, Page 20

Lögrétta - 01.01.1933, Page 20
39 LÖGRJETTA 40 15. ágúst 1771. Hann var af góðu bergi brot- inn, átti kyn sitt að rekja til hreystimenna og sveitahöfðingja; taldi hann sjer sæmdar- auka mikinn að slíkum forfeðrum og bar ávalt rika ættrækni í brjósti. Faðir hans var lögfræðingur, iðjumaður hinn mesti, ráð- vandur og siðavandur, hinn nýtasti maður í sinni stjett. Móðir skáldsins var dóttir há- skólakennara í Edinborg, gáfuð og vel að sjer, stálminnug og fróð um marga hluti. Voru miklir ástúðleikar með henni og Scott og kvaðst hann eiga henni mikla fræðslu að þakka. „Fjórðungi bregður til fósturs". Mun mega segja, að Scott hafi erft frá föður sín- um atorku þá og reglusemi, er auðkendu hann æfilangt, en frá móður sinni fróðleiks- hneigð og áhuga á fornum fræðum. Átján mánaða gamall veiktist Scott háska - lega og var æ síðan haltur á hægra fæti. Veikindi þessi urðu honum þó óbeinlínis heillasending. Til heilsubótar var hann send- ur upp í sveit til afa síns sem bjó búi sínu í Tweed-dalnum fagra og söguríka. Brátt náði Scott þar góðri heilsu; ennþá meír var um það vert, að þar glæddist ást hans á skotsk- um þjóðsögum og þjóðsöngvum, og drakk hann þar í sig, þegar á æskuárum, fimin öll af slíkum fróðleik, en þau fræði mótuðu stór- um rithöfundarstarfsemi hans. Tólf ára að aldri var hann búinn að safna miklum fjölda gamalla þjóðsöngva og var orðinn kunnur sem snjall sögumaður. Á þessum árum í Tweed-dalnum — hann dvaldi þar langvist- um þangað til hann var kominn á áttunda ár — varð hann einnig gagnkunnugur skosku sveitaiífi og alþýðu, sem hann lýsir svo rjettilega og snildarlega í ýmsum skáldsög- um sínum. Dvöl hans í sveitum uppi og ferðalög víða um hjeröð opnuðu augu hans fyrir margbreyttri náttúrufegurð Skotlands og fyltu hjarta hans brennandi ættjarðar- ást. Scott gekk á gagnfræðaskóla og háskóla í Edinborg. Hann var enginn framúrskarandi námsmaður, en las kynstrin öll utan náms- greinanna, einkum hverskonar • æfintýrasög- ur, þjóðkvæði og sögurit; úrvalsrit ýmsra hinna fremstu ensku skálda las hann einnig kappsamlega og margt erlendra ágætisrita, því að hann var tungumálamaður góður. Auð- sætt er, að með þessum víðtæka bóklestri sín- um var Scott að leggja grundvöllinn að fram- tíðarritstörfum sínum, engu miður en með frjósamri sveitadvöl sinni. Útivera og íþrótt- ir voru honum mjög að skapi á skólaárunum og fyigdi það honum alla æfi; fegurð náttúr- unnar heillaði hann og göngufarir voru hon- um yndi og eftirlæti; einnig var hann hesta- maður mikill og veiðimaður. Glaðlyndi hans og örlæti öfluðu honum vinsælda meðal skólabræðra hans og þá ekki síður sagna- forði hans og fágæt snild í frásögu. Scott nam lögfræði undir handleiðslu föð- ur síns og á Edinborgarháskóla, en lítt var hanr. hrifinn af því námi, rækti það þó með samviskusemi og varð síðar velmetinn lög- fræðingur og sýslumaður. Kom honum lög- fræðiþekkingin að góðu haldi við skáldsagna- gerðina eins og rit hans bera ótal merki. Hálfþrítugur varð Scott fyrir sárum von- brigðum í ástum. En sjálfsvirðing hans, einhver allra sterkasti þátturinn í skapgerð hans, vamaði því að hann ljeti sorgina koma sjer á knje. Hann var einnig svo skapi farinn, að hann hampaði ekki instu hug - hræringum sínum á gatnamótum. Rúmu 'ári síðar kvæntist Scott konu af frönskum ættum, Charlotte Carpenter að nafni, og fór vel á með þeim. Þau áttu barnaláni að fagna, þó fæstir niðja þeirra yrðu langlífir; heimilisprýði þeirra og gestrisni var við- brugðiö að verðleikum. Framan af árum áttu þau heima í nágrenni Edinborgar. Jafnframt lagastarfinu fór Scott snemma að fást við ritstörf, en þeim er best lýst 1 sjerstökum kafla. Árið 1799 varð hann sýsluinaður (sheriff) í Selkirkshíri; það var sæmilega launuð staða, og þar sem fáar em- bættisskyldur hvíldu honum á herðum, veittist honum gott næði til fræði-iðkana og ritstarfa. Nokkrum árum síðar settist Scott að á fögru sveitarbýli í Tweed-dalnum, á bernskustöðvum sínum. Undi hann þar vel hag sínum og vann af kappi að samningu og útgáfu fjölda bóka, auk sýslumanns- starfanna, þau átta árin, sem hann var þar. Árið 1806 varð Scott hæstarj ettarritari í Edinborg; var það hálaunuð staða, en hann naut ekki þeirra launa fyr en sex árum síð-

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.