Lögrétta - 01.01.1933, Page 21

Lögrétta - 01.01.1933, Page 21
41 LÖGRJETTA 42 ar. Á hinn bóginn seldust rit hans ágætlega og varð honum það drjúg tekjulind. Fyrir því keypti hann stóreignina Ab- botsford við Tweedfljótið, skamt frá Edin- borg, og fluttist þangað búferlum vorið 1812. Bætti hann og prýddi jarðeignina með mörgu móti og miklum fjárútlátum, bygði þar höfðingjasetur tígulegt í miðaldastíl, skreytti það allskonar forngripum og fleiri veggjaprýði, og bjó þar við rausn mikla. Varð honum slíkur höfðingsskapur að von- um ærið kostnaðarsamur, en ekkert minna hæfði ríkilæti hans og eðallund. Ýmsir hafa orðið til að álasa Scott fyrir það, hversu ríkmannlega hann hjelt sig á Abbotsfordár- um sínum; þykir sem þar lýsi sjer slík auðs- hyggja og heimshyggja hjá skáldinu, að illa sæmi höfðingja í ríki andans. Vera má að ríkilæti Scotts hafi verið úr hófi fram. En risna hans í fornum stíl var í fullu sam- ræmi við insta eðli hans. Hann lifði í anda miðaldanna. 1 lífi sínu, alveg eins og í skáld- sögum sínum, var honum það ríkast í hug, að endurvekja riddaraskap og glæsileik lið- inna tíða. Einnig ól hann þá virðingarverðu þrá í brjósti, að láta niðjum sínum að erfð- um sómasamlega föðurleifð. Sá draumur Scotts rættist eigi nema að nokkru leyti, en Abbotsford er löngu frægðarljóma sveipað, og sækir þangað fjöldi ferðamanna ár hvert. Eftir að hann fluttist til Abbotsford, vann Scott með sömu elju og áður að ritsmiðurn, en vanrækti þó í engu opinber störf sín. Ljóðsögur hans höfðu aflað honum slíkrar víðfrægðar, að árið 1813 var honum boðin lárviðarskáldstignin, en þeim sóma hafnaði hann, taldi skáldið Southey betur að önd- vegissessinum kominn. Með útkomu skáld- sagna Scotts óx ritfrægð hans enn hröðum skrefum og margskonar sæmdarviðurkenn- ingar hlóðust að honum. Árið 1820 gerði Englakonungur Scott að aðalsmanni (baron- et); vai skáldinu sú sæmd harla geðfeld, ekki síst vegna þess, að forfeður hans fyr á öldum höfðu verið í tölu aðalsmanna. »Dag skal að kveldi lofa“. Árið 1826, þeg- ar frægð Scotts og lífshamingja virtust standa sem traustustum fótum, skall á hon- um það reiðarslag, sem, óbeinlínis að minsta kosti, flýtti fyrir dauða hans. Prentunar- fjelög þau og bókaútgáfu, sem hann hafði um langt skeið verið hluthafi í, þó eigi væri það á vitorði almennings, urðu gjaldþrota. Ekki var nóg um það. Stormar andstreym- isins bljesu að Scott úr fleiri áttum. Nokkr- um mánuðum síðar varð hann fyrir þeirri þungu sorg að missa konu sína. En Scott var ekki svo gerður, að hann ljeti áföll þessi buga sig. Mótlætið stælti hann og efldi til dáða. Ekki verður hjer rakin hin margþætta fjármálasaga Scotts; en það mun mála sannast, að hann hafi verið á- hættusamur um skör fram og ekki sem heppnastur í vali verslunarfjelaga sinna og trúnaðarmanna. Samkvæmt þágildandi gj aldþrotalögum hefði hann auðveldlega getað komist hjá að greiða skuldir verslun- arfjelaga þeirra, sem hann var riðinn við; en hann neitaði harðlega að taka þann kost. Sjálfsvirðing hans var alt of rík til þess, að hann gæti skotist undan rjettmætri á- byrgð, að hans dómi. Skuld sú, sem hann tók sjer á herðar að greiða, nam miljónum króna að nútíma verðlagi. Hófst hann þegar handa að grynna á stórskuld þessari með ritstörfum sínum; hann hafði jafnan verið afburða afkastamaður og nú vann hann af því ofurkappi, að slíks eru fá dæmi. Sást það nú glegst hversu ástsæll Scott var; vinir hans og aðdáendur brugðu þegar við cg vildu hlaupa undir bagga með honum, hjú hans og þjónar voru fús á að vinna honum kauplaust fremur en skiljast við hann. En Scott hafnaði öllum tilboðum um fjárstyrk. Og á næstu fimm árum vann hann það þrek- virki, að borga kringum þriðjung skuldar- innar. Byrðin varð honum þó að lokum of þung. Hann var farinn að lýjast, kominn fast að sextugu, og hann lagði alt of hart að sjer við ritstörfin. I febrúar 1831 fjekk hann snert af slagi. Hrörnaði hann nú svo andlega og líkamlega, að hann var með öllu ófær til verka. Hann ferðaðist suður á Italíu sjer til heilsubótar, en það var um seinan; hann dvaldi þar aðeins skamman tíma og fjekk er.gan bata. Fregnin um dauða Goethes olli honum hrygðar og hann fyltist heimþrá. Eftir að hann var heim kominn, hrestist hann um stundarsakir en lífsþrótturinn var á förum. Nokkrum mánuðum síðar andaðist

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.