Lögrétta - 01.01.1933, Síða 23

Lögrétta - 01.01.1933, Síða 23
45 LÖGRJETTA 46 urinn hressandi og hreimmikill. Fjarri fer að Ijóðsögurnar sjeu allar jafn snjallar, enda er slíks ekki að vænta, en snildin er þar víða yfirgnæfandi. Eftirfarandi ljóðlínur úr sjötta kaflanum í The Lay of the Last M i n s t r e 1 munu víðkunnastar úr öllum kveðskap Scotts, og ekki er örðugt að skilja hversvegna þær hafa brent sig inn í hugi manna; þær eru mæltar beint út úr hjarta skáldsins og bergmála í hverri heilbrigöri sál. Þýðingin er eftir sjera Jónas A. Sigurðs- son (Tímarit Þj óðæknisfj elags íslendinga, 1923, bls. 70): „Andar nokkur svo andlaus sál að aldrei skildi jafn hugrænt mál sem: Hjer ermín eigin ættarströnd ! Það hjarta, er fann ei ástaryl er átthaganna sneri til úr utanför um önnur lönd? — — Ef andar slíkur, ugg þú hann, fár ætla jeg lofi slíkan mann; þótt frægð og titlar fegri hans nafn, af fjársjóðum þótt hann eigi safn; því þrátt fyrir orður, auð og sæmd, af eigingimi er sál hans dæmd. Við líf hans enginn lofstír þreyr, og látinn slíkur tvisvar deyr. En moldin spilt fer moldargöng án mannorðs, tára og yfirsöngs". M a r m i o n er að flestra dómi ágætust Ijóðsagna Scotts. Snild hans í frásögn í lýs- ingum á atburðum og hinni ytri náttúru, er óvíða meiri heldur en hjer. Honum ljet sjer- staklega vel að lýsa því stórfenglega og trylta, hamförum í náttúrunni og mannlif- inu, enda mun mega segja, að lýsingin á Flóðvallabardaga (The Battle of Flodden Field) sje snjallasti kaflinn í Marmion; og leit mun á kröftugri bardagalýsingu í enskum bókmentum. En Scott var að eðlis- fari athafnamaður — bardagamaður — engu miður en skáld. Hann var meira að segja sjálfboðaliði í skotska hernum þegar hann samdi M a r m i o n, og mikinn hluta kvæð- isins orti hann á hestbaki. Ekki er því kyn, þó að hófadynur og hergnýr hljómi víða sem undirspil í kvæði þessu. Mannlýsingarnar í M a r m i o n eru einnig sannar og glöggar, en í því efni bregst Scott stundum boga- listin. The Lady of theLakeer róman- tísk og yndisleg ljóðsaga, er gerist í Hálönd- unum skosku, en landslag þar er bæði hrika- legt og fagurt. Náttúrulýsingar Scotts á þessum stöðvum vöktu svo mikla athygli c.g aðdáun, að ferðamenn tóku að flykkjast þangað, og enn sækir þangað margmenni ár- lega. Flug og fjör er í frásögninni og hvar- vetna líða lesandanum fyrir sjónir litauðgar myndir af umhverfi og atburðum .Efnið er einnig hið hugþekkasta; ást föður á einka- dóttur hans og trygð þjóns við fallinn herra sinn eru hjer meginþættir og verða enn á- hrifameiri vegna þess, að þeim er skipað gagnstætt ástríðuofsa Hálandahöfðingjans. Þó ýmislegt sje vel um síðari ljóðsögur Scotts, þá standa þær þrem hinum ofan- nefndu að baki, en víðlesnar voru þær á sinní tíð; samt náðu þær hvergi nærri slíku valdi yfir hugum manna sem hinar fyrri; höfuðorsök þess var það, að Seott hafði nú eignast keppinaut í 1 j óðsagnagerðinni, sem. var honum fremri og heillaði lesendur meir en dæmi höfðu verið til — Byron lávarð. Ilætti Scott þá samning ljóðsagna og sneri sjer að skáldsagnasmíð; var það, sem sýnt mun verða, enskum bókmentum — og heimsbókmentunum — ómetanlegur gróði. TJrðu þeir Scott og Byron síðan hinir bestu vinir, enda er það einn vottur göfuglyndis Scotts, að hann var laus við alla skáldaöf- und, jafnan boðinn og búinn til að rjetta skáldbræðrum sínum hjálparhönd. Eflaust hefur það gert honum hægara um vik, að meta snild samtíðarskálda sinna, að hann hafði ekki neina oftrú á sjálfum sjer eða listgáfu sinni. Hann taldi önnur hlutverk æðri ritmenskunni. Hann dáði athafnamann- inn miklu meira en skáldið. Þrátt fyrir það veittu ljóðagerðin og önnur ritstörf honum óblandna ánægju og hann leit svo á, að með þeim væri hann að vinna gott verk og þarft. Scott líktist okkar fornu skáldum í því, að honum var ljúft að lýsa hetjudáðum og stór- fenglegum atburðum, og tókst það meist- aralega. Ljóðsögur hans skortu hinsvegar dýpt, andagift og formfágun. Þess vegna eru

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.