Lögrétta - 01.01.1933, Side 26

Lögrétta - 01.01.1933, Side 26
51 LÖGRJETTA 52 finnist Gyðing’astúlkunni Rebekku lýst með hvað mestri snild og dýpstum skilningi. Ekki verður hjer fjölyrt frekar um ein- stakar skáldsögur Scotts, en fróðlegt er að virða þær fyrir sjer í heild sinni. Rjettilega má ýmislegt að þeim finna. Þær eru stundum alltof mærðarmiklar, efnið of flókið og fjöl- þætt, rás viðburðanna ekki nógu hröð, eink- um í sögubyrjun. Víða kennir einnig óvand- virkni í frásögn og stíl, beinn árangur þess, að sögurnar voru venjulega samdar á ör- stuttum tíma. Ennfremur eru þær langt frá því að vera lausar við öfgar, ósamræmi og sögulega ónákvæmni. Fjölmargt er það, hinsvegar, í skáldsögum Scotts, sem vekur og verðskuldar aðdáun lesenda: hugvitssemi skáldsins og auðlegð ímyndunar hans, mál- lipurð og fjör í frásögn, glöggar og snjallar atburðalýsingar, fjöldi sjerstæðra og ógleym- anlegra karla og kvenna. Honum hefur löng- um verið brugðið um það, að lýsingar hans á liðnum tímum væru of yfirborðslegar, eins og vikið var að í sambandi við Ivanhoe; vissulega var honum sjerstaklega sýnt um, að lýsa hinu ytra, klæðaburði, híbýlum, sið- um og venjum, og sjer í lagi stórfeldum við- burðum, svo sem bardögum og burtreiðum; en hann sýnir lesendum sínum einnig inn í trúar- og siðferðislíf horfinna kynslóða, skygnist dýpra yfirborðinu. Og þegar á alt er litið, þá komast sárfáir rithöfundar tii jafns við Scott í snildarlegum lýsingum á liðnum öldum. I þeim lýsingum hans er mest um þetta vert: — sögupersónur hans eru ekki beinlausar og blóðlausar vofur, seiddar fram úr gröfum sínum, heldur holdi klædd- ar mannverur, og þessvegna lætur lesandinn sjer ekki á sama standa hversu fer um þær; hann verður meir en hlutlaus áhorfandi, hann verður þátttakandi í gleðileik þeim og harma, sem gerist fyrir sjónum hans. En þó mikil snild sje á mörgum fortíðar- •ýsingum Scotts, þá er það flestra mál, að hann nái lengst í listinni í lýsingum sínum á lífi skotskra samtíðarmanna sinna og á skotskri alþýðu; og í þeim frásögnum sín- um er hann glöggskygn raunsæismaður; þar fatast honum eigi sundtökin. Og hvergi tekst honum betur upp í mannlýsingum en þeg- ar hann segir frá körlum og konum, sem ein- kennileg eru eða skopleg; hin ríka kýmni hans, en hann var henni gæddur um flest skáld fram, nýtur sín þar ágætlega. Þó er hann laus við alla beiskju og mannhatur. Djúp samúð auðkennir einstaklingslýsingar hans; þessvegna tókst honum svo frámuna- lega vel að lýsa fátæklingum og lífi þeirra, enda hafði hann átt mikið saman við þá að sælda um dagana. Scott hefur verið fundið það til foráttu, að hann skygnist ekki nógu djúpt 1 sálarfylgsni persóna sinna; hann er ekki sálkönnuður í nútíðarmerkingu þess orðs; hann lætur sögupersónur sínar lýsa sjer með orðum sínum og athöfnum, og venjulega fær enginn um það vilst, hversu þær eru skapi farnar. Hin göfuga og heilbrigða lífsskoðun Scotts lýsir sjer hvarvetna í skáldsögum hans. Þó mun mörgum nútíðarmanni þykja hann aft- urhaidssamur um of í trúmálum, siðakenn- ingum og stjómmálum. Hann var alla daga ílialdsmaður, andvígur byltingakenningutn samtiðar sinnar, fastheldinn á fomar venjur og gömul verðmæti. Hann dáði hreysti, ósjer- plægni, hógværð, prúðmensku og heiðarleik, hvort sem var hjá konum eða körlum, og að flestra dómi eru þeir eiginleikar ennþá verðir aðdáunar. Guðstrú hans var á bjargi bygð og hann var bjartsýnn á sigur hins góða eins og mörg sögulok hans sýna best; sögu- hetjur hans ganga sigrandi af hólmi vegna þess að þær eru sannleikans megin og rjett- lætisins. Þjóðrækni í þessa orðs sönnu merk- ingu — er eitt af höfuðeinkennum Scotts; honum var ant um hag þjóðar sinnar og framtíð, hann vildi koma á hagnýtum um- bótum. Hann var alþýðuvinur, eins og sögur hans sýna glegst, og lýsir það sjer ennfrem- ur í því, að hann bætti á ýmsan hátt kjör leiguliða og vinnulýðs á landareign sinni. Skoðanir hans á atvinnumálum og þjóðmál- um vcru yfirleitt heilbrigðar og að sumu leyti langt á undan samtíð hans. (Sbr. John Buchan: Sir Walter Scott, bls. 366— 367). Skáldsögur Scotts eiga því fræðigildi engu miður en lífsgildi. Þó eru þær lausar við all- an predikunartón. Scott lætur sjer nægja að bregða upp myndum úr lífinu sjálfu, en tel- ur lesandann einfæran um að draga ályktanir

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.