Lögrétta - 01.01.1933, Blaðsíða 47

Lögrétta - 01.01.1933, Blaðsíða 47
93 LÖGRJETTA 94 þessa um fótbúnaðinn, því hann reyndist öðru vísi, en þá var alment álitið. Það ein- asta sem mjer þótti að þessum stígvjelum var það, að jeg ætlaði aldrei að geta slitið þeim! Þau voru svo sem eins, eftir alla ferð- ina, nema lítið eitt liprari við fótinn. Þegar leið á ferðalagið, varð Ágúst eðli- lega mjög sárfættur og sá jeg það vel á göngulagi hans; en ekki gat hann þess með einu orði og jeg ekki heldur, en dáðist 1 kyr- þey að þreki hans og sjálfsvaldi. — Þá var það ekki mannasiður, að fara fótgangandi um landið erindislaust og síst að sumarlagi, út í bláinn og ferðaáætlunar- laust; ljetu ýmsir, sem við mættum, sjá á svip sínum fyrirlitningu fyrir okkur, en aðr- ir meðaumkun og þóttu okkur þeir síðari öllu auðvirðilegri. Við Ágúst erum því sannkallaðir braut- ryðjendur í þessu efni, hjer á landi, hvað svo sem að öðru leyti kann að verða okkur til foráttu fundið um frumleik — í kveð- skapnum hjá mjer og heimspekinni hjá hon- um. Að vísu var þá títt, að menn fóru fótgang- andi langar leiðir, svo sem vermenn, varn- ingsmenn, brjefapóstar o. fl. og urðu sumir þessara manna frægir gönguhrólfar, Einar stopp, Guðmundur á fartinni o. fl., en þá var það nýjung að ungir og hraustir menta- menn legðu land undir fót sjer til heilsu- bótar og andlegrar uppbyggingar. Jeg frædd- ist mikið á þessari för og miklu meira um fugla og skordýralíf og yfirleitt um alla náttúruna, en ef við hefðum ferðast ríð- andi; en mest fræddist jeg af samferða- manninum sjálfum, bæði beinlínis og óbein- línis. Er hann einhver sá mesti fræðasjór, sem jeg hef hitt, ungra manna, athugull og skýr og afbragðs kennari. Töluðum við um flest efni, sem við höfð- um áður hugleikið, nema kveðskap; vorum við báðir farnir að yrkja, en ekki er mjer grunlaust um að hvor um sig hafi þótt hirm fremur atkvæðalítill á því sviði, og því leitt alt tal hjá okkur um það efni. En jeg frædd- ist um mjög margt af honum og met mikils síðan. Hann var líka búhöldur og fjárhalds- rnaður i för þessari; þótti mjer hann ná- kvæmur, hreinskiftinn, en fullstrangur. II. Við hjeldum af stað síðari hluta dags og hjeldum sem leið liggur upp að Kolviðarhóli; var gott gönguveður. Við bárum lítilsháttar, og þar á meðal eina konj aksflösku og dugði hún okkur til ferðarinnar. Tvo litla, bláa ferðapela gaf Brynjólfur kaupmaður Bjarna- son okkur og blönduðum við á þá; en ekkert drukkum við, en dreyptum aðeins stöku sinn. um á þeim. Gisting og annar beini var mjög ódýr hjá bóndanum; þó gerði Ágúst ökonom ein- hverja lítilsháttar athugasemd við verðlag- ið á morgunmatnum, en fjekk svar, sem meira en borgaði hallann: „Það gerir „bætti“ maturinn, góði minn“, svaraði bóndi og átti við vellingsslettu, sem fylgdi með ágætum, köldum mat; en út á hana var sáð sykri og steyttum kanel. Varð okkur gott af matnum og enn betra af svarinu. Við lögðum upp fremur snemma, hjeldum Hellisskarð og fórum okkur hægt; yfirleitt var þaö svo 1 þessari för, að við gengum í hægðum okkar fyrstu klukkustundirnar, en smátt og smátt og svo sem hugsunarlaust komst skriður á okkur þegar á leið, svo að við meira að segja hlupum við fót hlaðsprett- inn. Frá Arnarbæli í ölvesi tókum við ferju; var báturinn hriplekur og var jeg að hugsa um að synda, en hætti við vegna samferða- mannsins, sem mjer var ókunnugt um hvort kynni sund. En alt fór vel. Komum við að Kallaðarnesi og þáðum góðgerðir; þaðan hjeldum við upp með ánni og yfir á brúnni og að Bíldsfelli í Grafningi; þar sem lækjar- sprænur urðu á leið okkar, fórum við úr sokkunum og óðum berfættir. Vorum við kátir og reifir og datt mjer þá í hug erindi úr Aladin Öhlenslágers: Naturens muntre Sön er selve Guden nærmest. Við gistum hjá Jóni á Bíldsfelli; var þar alt forníslenskt, húsakynni, matur, rúmfatn- aður og alt annað — þar með talinn Jón sjálf- ur. Sat hann á rúmstokknum hjá okkur lengi fram eftir og spurði okkur frjetta úr Búa- stríðinu. Sagði Ágúst honum alt af ljetta og drakk bóndi hvert orð í sig; við borguðum ekki annað þar, en með þessum fyrirlestri og þóttumst góðir.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.