Alþýðublaðið - 30.08.1963, Síða 3
Þessi mynd er tekin af
þrem þeirra, sem siffla Mil-
wood heim. Þeir fóru um
borð þegar í gærmorgun
og létu vel yfir ástandi skips
ins. Hér er George Moir 1.
vélstjóri að sýna skipstjór-
anum, Joe Parker og véla-
umsjónamanninum skemmd
'irnar, sem urðu við árekstur
Mil'woods og Óðins.
Washington, 29. ágúst.
(NTB-Reuter).
Frelsisgangan til stuðnings
kröfunum um jafnrétti til handa
öllum bandarískum borgurum, án
tillits til hörundslitar, var í dag
sögð hafa heppnast mjög vel, —
bæði af hálfu foringja blökku-
manna og annarra aðila.
Híns vegar lét margur í ljós
efasemdir um áhrifin, sem frels-
isgangan muni hafa. Hér er fyrst
og fremst átt við hugsanleg áhrif
göngunnar á hina víðtæku stefnu
skrá .Kennedys Bandaríkjafor-
seta um mannréttindi.
Því hefur verið hrósað, hversu
frelsisgangan fór friðsamlega
fram.
Frelsisgangan á að leggja á-
herzlu á stefnuskrána um mann-
réftíndi b»cs er vænzt að hún
.blínti stnðning begeia flokka á
Þióðbinrfinn. en fmmvarnið
mundi bæta mjög kjör hinna þel
rtökku, ekki sízt á vinnumarkaðn-
um.
Foringjar göngunnar lögðu á-
lierzlu á það í dag. að frelsisgang-
an hefði farið fram án þess að
til nokkurra a’varlegra átaka
hefði komið. Þeir binda miklar
vonir við áhrifin, sem þetta muni
hafa á þjóðina og þingheim.
í dag benti hins vegar ekkert
til þess, að þingið mundi hraða
afgreiðslu sinni á frumvarpi
Kennedys um borgararéttindi. —
Skýrt var frá því í dag, að af-
greiðslu málsins yrði frestað í 10
daga vegna frídaganna í sam-
bandi við verkalýðsdaginn 2.
september.
Formaður nefndar þeirrar í
þinginu, sem fjallar um frum- j
varpið, sagði í dag, að frelsisgang-
an muni hafa góð áhrif á Þjóð-
þinginu. Formaðurinn er kunnur
fyrir frjálslynd viðhorf sín til
borgararéttindamálsins. Hubert
Humphrey öldungadeildarþing-
maður lét í Ijós sama álit.
Óttast er, að verði ekki brugðið
nógu skjótt við, muni róttækari
öfl meðal hinna þeldökku taka
við forystunni í baráttunni af
hinum hófsamari leiðtogum. Þar
með væru kynþáttamálin í
Bandaríkjunum komin á mun al-
varlegt stig.
Blöð um allan heim skrifuðu
um frelsisgönguna til Washing-
ton í dag. Þau segja, að gangan
sé staðfesting á kröfu 20 milljón
þeldökkra. Jafnframt leggja þau
áherzlu á, að kynþáttadeilan sé
ekki þar með komin á alvarlegt
stig og lærdóm megi draga af
mótmælagöngunni í gær.
Frakkar a
sto
SAIGON og PARÍS, 29. ágúst.
(NTB-Reuter).
Stjórnin í Suður-Vietnam hef-
ur í hyggju að efna til víðtækra
f jöldafunda í mörgum hlutum
landsins til stuðnings afstöðu
sinni gagnvart Búddatrúarmönn-
um. Þetta var haft eftir áreiðan-
legum heimildum í Saigon í dag.
Sagt er, að stjórnin vilji reyna
að róa íbúa landsins og einn til
gangur fjöldafundanna eigi að
vera sá, að binda enda á orðróm
um, að bróðir Ngo Dinh Diem
forseta, Ngo Dinh Nhu, sé ósam
þykkur honum varðandi stefnu
hans.
Skólum var lokað í Saigon í dag.
Jafnframt hefur stjórnin sent
bandarísku stjórninni orðsend
ingu og mótmælt afskiptum
hennar af innanríkismálum Suður
Vietnam. Formælandi banda-
ríska utanríkisráðuneytisins hef-
ur neitað að skýra frá efni orð-
sendingarinnar.
í dag kom de Gaulle Frakk-
landsforseti með þær óvæntu upp-
lýsingar að Suður-Vietnam
hefði verið heitið allri aðstoð,
sem Frakkar gætu veitt. Jafnvel
nánustu ráðherrar hans urðu
undrandi, þar eð þeim hafði ekki
verið skýrt frá frétt forsetans til
blaðanna.
í París hafa menn einkum
veitt því eftirtekt, að de Gaulle
AÐSTOÐ VIÐ Izvestia kvartar
ÚTLÖND
Framh. af 16. síðu
í siðustu viku minnkaði Full-
trúadeildin tillögu Kennedys for-
seta um aðstoð við erlend ríki um
580 millj. dollara.
Þetta er meiri lækkun en
nokkru sinni áður hefur verið
stungið upp á. Kennedy hefur
hvatt öldungadeildina til að fallast
á hina upphaflegu tillögu er það
fjallar um og greiðir atkvæði um
aðstoð við hin erlendu ríki.
Framhald af 1. síðu.
málum, og framlciðir það sem sín
orð, sagði Izvestia.
Izvestia hélt því fram, að í apr.
1961 hefði Alþýðudagblaðið líkt
fyrstu mönnuðu geimferð Rússa
við sigur kínverska alþýðulýðveld
isins í borðtennis.
Alþýðudagblaðið er eiua blaðið
í heiminum, sem flutti svo til
ekkert efni um fyrsta kvengeim-
fara Sovétríkjanna, sagði Izves-
tia.
Ný Fram-
haldssaga
Á MORGUN hefst hér í
blaðinu ný framhaldssaga.
Lesendum er bent á að fylgj-
ast með henni frá byrjun,
því hér er um að ræða ó-
venjulega spennandi og
skemmtilega ástarsögu.
Sagan heitir FIS í VINDI
og er eftir Anne Lorraine.
Hún gerizt I Englandi, og cr
aðalsögusviðið þorp í ná-
grenni Lundúna. Söguhetjan
er bókavörður á sjúkrahúsi,
og henda hana ýmsir ó-
væntir atburðir áður en yfir
lýkur. Fullyrða má, að þessi
saga muni ekki valda þeim
sem á annað borð hafa gam-
an að spennandi ástasögum.
neinum vonbrigðum.
| íorseti vísar til tengsla Frakka
við þróuninn í Cochin-Kína, Ann-
j am og Tonkin og áhuga þeirra á
þessari þróun. Með öðrum orðum
j á forsetinn bæði við kommún-
j istaríkið Norður-Vietnam og Suð-
ur-Vietnam.
Alain Peyrefitte, upplýsinga-
málaráðherra, sem las upp yfir-
lýsingu forsetans, neitaði að segja
nokkuð um hana.
Af franskri hálfu var sagt, að
þessi ákvöroun de Gaulle for-
seta hlyti að vekja gremju Kenn-
edys forseta, en ekkert í yfirlýs-
ingu de Gaulles gæfi ástæðu til
slíkrar túlkunar.
Enn reynt að
námu-
verkamönnum
Washington, 29. ágúst.
NTB-Reuter.
Bandarískir björgunarmenn
gerðu nýjar ráðstafanir í dag til
að reyna að finna fleiri menn,
sem kunna að vera enn á lífi cft-
ir námuslysin í Noab, Utah og
Hazleton, Pennsylvaniu.
í Moab reyndu björgunarmenn
að ná til manna, sem lokuðust
inni í námu í sprengingu, sem
varð á þriðjudag. 2 björguðust í
gær. 8 látnir hafa fundizt, en
hvað orðið hefur um hina er ekki
vitað.
í Hazleton heyrðu björgunar-
menn veikt hljóð í gegnum hátal-
ara. Vonast er til, að námuverka
maðurinn Louis Bova, sem lok-
aðist inni, sé enn á lífi. Hann hef
ur verið innilokaður í 16 daga.
Hið veika hljóð var leikið inn
á segulband. Þegar það var
rannsakað nánar síðar, kom í Ijós
að hljóðin var af sandi, sem var
á hreyfingu í 'námugöngunum.
Björgunarslarfinu er samt haldið
áfram af fullum krafti.
BIFREIÐ
SKEMMIST
í ELDI
Slökkviliðið var tvisvar kvatt
út í gærdag. Um hádegisbilið var
það kvatt að Melahúsi við Hjarð-
arhaga, hafði kviknað þar í rusli
við eidavél og myndast nokkur
reykur.
Skömmu fyrir kl. sex kviknaði
í bifreið á mótum Álfheima og
Ljósheima. Búið var að slökkva
eldinn. þegar slökkviliðið kom á
vettjraag. BJfreiðin skemm>list
allmikið. Eldurinn kviknaði út frá
rafmagni.
Vandala- og
rumpulýður
ÞAÐ gerðist svo til strax
eftir að stytta Ásmundar var
komin á stall sinn í Suður-
götu, að þrír unglingspiltar,
16-17 ára, voru farnir að
reyna krafta sína á henni og
reyna að skemma hana. Það
er nánast furðulegt, að með-
al þjóðar, sem telur sig
menningarþjóð, skuli vera til
sá vandala- og rumpulýður,
að geta ekki séð íistaverk í
friði. Listaverk eru sett upp
til aö gleðjá þá, er á þau
horfa. Þeir, sein ekki kunna
að meta þau, geta látið vera
að horfa á þau, en það er
hreinn skepnuskapur að
vilja eyðileggja þau fyrir
öðrum, þó að manni geðjist
ekki að þeim.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 30. ágúst 1963 3