Alþýðublaðið - 10.12.1963, Síða 1

Alþýðublaðið - 10.12.1963, Síða 1
Ein víötækasta vinnustöövun hér á landi: Um 60 verkalýðsfélög með 20.000 manns Á MIÐNÆTTI síðastliðna nótt skall á allsherjarverkfall, eitt hið víðtækasta, sem hér hefur verið gert Standa að því um 60 verkalýðsfélög með rúmlega 20.000 félagsmönnum og konum. Mun margvísleg vinna og almenningsþjón- usta því stöðvast í dag. Þegar verkfallið hófst á miðnætti, voru fulltrúar verkalýðsfélaganna og at- vinnurekenda enn á fundum, og höfðu verkalýðsfulltrúamir aðsetur í húsi sjó- mannafélagsins og Dagsbrúnar við Lindargötu, en atvinnurekendur í byggingu Hæstaréttar skammt frá. Á öðrum tímanum í nótt var talið vonlaust með öllu, að almennt samkomulag næðist. Þó fóm eftir það fram viðræður einstakra at- vinnustétta, til dæmis verzlunarmanna, við atvinnurekendur. Var ekki vitað, þegar hlaðið fór í prentun, hvort árangur næðist í þehn samningatilraunum. Seint í gær skrifaði forsætisráð- lierra, Uíarni Benediktsson, bréf til deiloaðila og hvatti þá til að veita frekari frest til að reyna sam- komuiag. Var fjallað um þessi til- mæli á fundum um miðnætti, en verkalýðsfélögin samþykktu ein- róma að neita þessari ósk forsætis- ráðherrans. Allsherjarverkfallið mun þegar í dag stöðva margs konar vinnu og allan þorra af almennum þjónustu fyrirtækjum. í gær gat blaðið ekki fengið öruggar fregnir af því, hvort mjólkurbúðir mundu verða lokað- ar eða ekki, og hvort þær fengju mjólk eða ekki. Koma þar ýms verkalýðsfélög við sögu, meðal ann ars mjólkurfræðingar. Benzínsala stöðvast að sjálfsögðu, og var mikil ös við allar benzínstöðvar seinni hluta dags í gær og í gærkvöldi. í gær var mikið keypt af matvælum í búðum bæjarins. Þátttaka verzlunarmanna í verk- fallinu er nýr liður, sem mun valda því, ef þeir hafa ekki gert samn- inga í nótt, að margar verzlanir verði að loka eða minnka þjón- ustu sína. Að vísu geta eigendur Blöðin stöbvast PRKNTABAll voru meðal , þeirra mörgu vinnustétta, sem hófu vinmistöövun á miðnætti j síðastliðnu. Koma blöð því ekki j út, fyrr en samningar takast. verzlana unnið við afgreiðslu, en óvíst er hvað sú þjónusta muni ná Iangt. ' Deiluaðilar sátu á samningafund um til klukkan 4 í fyrrinótt. Stóðu mál þá svo, að atvlnnurekendur höfðu hækkað boð sín upp í 10% á alla dagvinnu allra viðkomandi félaga, en verkalýðsfulltrúar höfðu lækkað kröfu sína um tímakaup verkamanna úr 40 krónum í 37, en það mundi þýða yfir 30% hækkun. Svo mikiö bar á milli þá um uótt- ina. Skömmu eftir hádegi hafðí sátta- semjari boðað aðila á enn einn fund. Voru fulltrúar á samnlnga- stöðum allan daginn og kvöldið, nema hvað hlé var fyrir máltiðir- Mun þá ekki hafa miðað neitt á- fram. Þingfundir voru á venjulegum tíma, en þar gerðist ekkert, sem verkfallinu kemur vlð. Þingflokk- ar héldu venjulega fundi sína síð- degis í gær, en klukkan G hófst rík- isstjómarfundur. Hefur þar vænt- anlega verið gengið frá því erindi, sem forsætisráðherra sendi í gær- kvöldi báðum aðilum. Samgöngur við önnur lönd munu stöðvast að mestu í dag, þar sem skip verða ekki afgreidd og ekki heldur flugvélar. Þó frétti blaðið í nótt, að Loftleiðir hefðu þá þeg- ar beint flugvélum sínum til Kefla- víkurflugvallar. Klukkan tvö í nótt barst blað- inu svofelld frétt frá forsætisráðu- neytinu: Rikisstjórnin ritaði viðræðu- nefnd verkalýðsfélaganna og við- ræðunefnd atvinnurekenda með- fylgjandi bréf. Synjað var um frestinn. Þegar samkomulag náðist hinn 9. nóvember sl. um frestun verk- falla til hins 10. desember var ætlunin, að þessi tími yrði notað- ur til samningaumleitana um alls herjarlausn þeirra launadeilna, sem þá voru hafnar eða yfir vofðu og lýsti ríkisstjórnin sig þegar hinn 11. nóvember reiðubúna til að hefja viðræður. Raunin varð hins vegar sú, að verkalýðsfélögin tjáðu sig eigi viðbúin allshferjar samræðum fyrr en hinn 25. nóy- ember. Strax daginn eftir gerði rík! isstjórnin viðræðunefnd verkalýðs, i Framhald á 3. síðu. MMmmmuMmMmwtw FRÍ FRÁ SAMN- INGAFUNDUM SAMNIN GANEFNDIR verkalýðsfélaganna sátu á fundl í gær frá klukkan tvö. Þegar lilé varð á viðræðum, brugðu fundarmenn sér í kaffi og myndin hér tað neð- an er einmitt tekin við það tækifæri. (Mynd: J. V.). \

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.