Alþýðublaðið - 10.12.1963, Side 16
Eyjan heiti
SURTSEY
BLAÐINU barst eftirfarandi frétta
•'iilkynning í grær frá menntamála-
-wáðuneytinu:
Samkvæmf lögrum nr. 35/1953 á
{jirnefiianefnd að vera ráðuneytinu
-451 aðstoðar um málefni, er varða
itverskonar staðarnöfn hér á landi.
Jilnm 7. þ. m. ritaði ráðuneytið
. uefndinni og óskaði tillagna henn-
«r um nafn á hina nýju eyju, sem
iWnyndast hefur í eldgosinu við
Vestmannaeyjar. Tillaga nefndar-
íffainar er, að eldstöðvarnar eða gíg-
«irinn hljóti nafnið SURTUR, en
*ð eyjan verði nefnd SURTSEY.
t rökstuðningi nefndarinnar fyrir
S»essari tiliögu segir m. a. svo:
,,Þótt eyjan liverfi í sjó, sem
iaiið er ekki óliklegt en engan
veginn víst, lítur nefndin svo á, að
œskilegt sé, að eldstöðvarnar eða
gígurinn hafi nafn, sem hann beri
&amvegis, þótt á hafsbotni sé.
Því er það lagt tií, að fyrst og
• fremst sé eldstöðvunum gefið
tnafn, en eyjan dragi svo aftur
--Bafn af þeim.
Féll útbyrðis
og drukknaði
Reykjavík 9. des. GO.
BIKGIR Andrésson 1. vélstjóri
á togaranum Röðli, féll útbyrðis
trt skipi sínu í fyrrakvöld og
•ðrukknaði. Skipið var þá á heim-
Seið frá Þýzkalandi. Birgir heitinn
STar þrítugur að aldri.
SURTUR er nafn hins volduga
jötuns, sem fomir menn hugsuðu
sér, að byggði undirheima og réði
sérstaklega yfir eldi. Bezt er hann
þekktur úr Völuspá, en kemur þó
víðar við sögu í fornum bókmennt-
um vorum. Teljá margir fræði-
mcnn, að hugmyndin um hann liafi
mjög mótast með íslendingum, er
þeir kynntust eldgositm, og hafi
þeir beinlínis talið jarðeldana af
hans völdum. Við hann mun vera
kenndur Surtshellir og jafnvel
einnig surtarbrandur (viðarkol
Surts). Greinargerð um eðli Surts
er skýrt fram sett hjá Sigurði Nor-
dal: Völuspá. Reykjavík 1923, bls.
97 o. áfr.
Nefndinni þykir vel á fara, að
hinum nýju aðsópsmiklu eldstöðv-
um sé gefið nafn hins tilkomu-
mikla eldjötuns, enda eru bæði
nöfnin íslenzk kjarnyrði, sem fara
vel í munni. Sakar og ekki að geta
þess, að þar sem fornir menn liugs-
uðu sér yfirleitt jötna í austri, er
Surtur einn talinn koma úr suðri,
en hin nýja ey er syðsta ey ís-
Við þetta er svo að bæta enn
einni röksemd, sem nefndin met-
ur mikils. Eitt helzta einkenni nýju
eyjarinnar, sem hún mun lengi
bera, hvernig sem hún' verður að
öðru leyti, er hinn dökki litur
hennar,þar sem heita má að hún sé
kolsvört. Ifefði jafn.vél getað kom-
ið til greina aö gefa lienni beinlín-
is nafn eftir þessu einkenni. Þó
þykir nefndinni enn betra, eins og
á stendur um framtíð eyjarinnar,
að víkja að því, óbeint en ákveðið,
með nöfnunum Surtur og Surté-
ey”.
44. árg. — Þiðjudagur 10. desember 1963 — 264. tbl.
Hver vill fagna
nýári í Paris?
JOLAIREÐ REIST
ÞAÐ færist stöðugt meiri
og meiri jólasvipur yfir bæ-
inn. Miðbærinn hefur þegar
verið skreyttur fagrurlega og
í gær var verið að reisa jóia-
tréð á Austurvelli. Eins og
kunnugt er gefa Norðmenn
árlega fallegf jðlatré á Aust-
urvöll og verður væntanlega
kveikt á því næstu daga.
Myndin hér til hliðar er tek-
in þegar verið var að und-
irbúa festingu trésins.
(Mynd: J. V.)
iWWWWWWWWWWWMMWW
I NAGRANNALONDUNUM eru
ferðalög mikið stunduð um jóla-
leytið, og er svo komið víða, að
jólaleyfið er annar mesti ferðatími
ársins. Samkvæmt upplýsingum
frá ferðaskrifstofum í Danmörku
eru flestar jólaferðir löngu upp
pantaðar. Eru það einkum ferðir
tll suðlægra staða og fjallaferðir
með dvöl á skiðahótelum. Með hin
um bagstæðu fargjöldum ferða-
skrifstofanna gefst íslendingum nú
kostur á að skreppa í stuttar ferð
ir til meginlandsins fyrir hóflegt
verð. Útsýn, sem verið hefur
brautryðjandi í hópferðum frá ís
tandi, efnir nú til fyrstu jólaleyf
isferðar, sem farin er héðan.
Nokkur eftirspurn hefur verið
eftir jólaferðum héðan, og tekur
nú Ferðaskrifstofan Útsýn, sem
að vanda hefur gengizt fyrir mörg
um hópferðum lil útlanda á árinu
við miklar vinsældir, upp það ný
mæli að gefa fólki kost á því að
fagna nýja árinu með gleðskap í
sjálfri Parísarborg. Útsýn efnir til
vikuferðar, sem hefst 28. des. Verð
ur þá flogið til Parísar og dval-
izt þar í 5 daga. Farnar verða
kynnisferðir um borgina á nóttu
og degi og þátttakendum sýndar
fegurstu byggingar og söfn borgar
innar. Á gamlárskvöld verður
kvöldverður í einu af bezta veit-
ingahúsum borgarinnar og skálað
fyrir nýja árinu í kampavíni. Leik
húslífið stendur nú í fullum blóma
í París og London, og gefst þátt-
takendum því tækifæri til að sjá
l'eiksýningar, óperur, balletta og
sækja liljómleika. Að lokum verð
ur dvalizt 2 dagg í London en
komið heim með.flugvél að kvpldi
3. janúar. Frídagar falla. þannig um
þessi áramót, að fæstir munu
þurfa að leggja niður vinnu nema
2 daga vegna ferðarinnar.
Auk farseðlasölu fyrir íslenzku
flugfélögin hefur Ferðaskrifstofan
Útsýn nú fengið söluumboð fyrir
öll flugfélög innan IATA og selur
flugfarseðla um allan heim með
hinum stóru flugfélögum svo
sem BEA, SAS, KLM, AIR
FRANCE, PAN AM og fjölda ann
arra og annast alls konar ferða-
•þjónstu án nokkurrar auka
greiðslu af hálfu farþegans.
HMMMHWHMHWMMMMWM
Dreg/ð í
HÁB
DREGIÐ hefui- verið í 7.
flokki Happdrætti Alþýffu-
blaðsins hjá Borgarfógeta
og komu upp eftirtalbx nú-
mer:
2939 — Vinningur VölkS-
wagenbifreið.
1000.00 kr. vöruvinningar:
415 1194, 1246, 1913, 1985
2179, 3426, 3774, 3919, 4172,
4211, 4854, 4408, 4552 og
4936.
MMMMMMMMMMtMMMUM
GENGUR ERFIDLEGA AÐ FÁ
SKÁKMENN TIL MÓTSINS
ÞAÐ IIEFUR gengið liægt og dá-
lílið erfiðlega fyrir stjórn Skák-
sambands íslands að. fá endanleg
svör um þátttöku erlendra skák-
manna í fyrirhuguðu skákmóti hér
í janúar. Þó hefur komið fremur
jákvætt svar frá Rússlandi, þann-
ig að skeyti hefur borizt með fyr-
irspurn um skilmála, en bréf meff
þeim upplýsingum virðist hafa
misfarizt. Má vænta, að Rússar
muni senda menu til mótsins, en
þaffan var boðiff tveim mönnum.
Norðurlandamennirnir Böök og
Larsen hafa báðir afþakkað. Böök
á ekki heimangengt, en Larsen
var búinn að lofa sér á skákmótið
í Bewervijk í Iioliandi. Þá hefur
Szabo líka tilkynnt, að liann geti
ekki komið.
Brezki skákmeistarinn Penrose
hefur tilkynnt, að hann geti ekki
komið, en hins vegar mun Ný-Sjá-
lendingurinn Robert Wade, sem
lengi hefur verið búsettur í Eng-
landi, tilkynnt þátttöku.
Skáksambandsstjórnin hefur
ekki gefið upp von um að geta
fengið hingað annaðhvort Glicoric
eða Parma frá Júgóslavíu, en þeir
munu báðir tefla á Hastings-mót-
inu um jólin. Ennfremur hefur
stjórnin í hugá að reyna að fá,
Hollending til mótsins, t. d. Prinz,
en ekki er neitt endanlega vitað
um, hvort hann getur komiö veghá
Bewervijk mótsins, sagði Baldur
Pálmason, er blaðið hafði tal af
honum í gær.
Við vissum til þess, að Guðmund
ur Arnlaugsson, menntaskólakenn
ari, hafði verið beðinn um að svip
ast um cftir Bandaríkjamanni eða
mönnum til þátttöku í mótinu. Við
náðum snöggvast í Guðmund f
gær, en liann or nvkominn heim úr
leyfi í Bandaríkjunum. Hann
| kvaðst hafa haft lítinn tíma til að
athuga þetta mál og litil svör feng-
ið hjá bandaríska skáksambandinu.
Hins vegar hefði hann haft tal af
skákritstjóra stórblaðsins TheNew
York Times og hefði hann lofað
að athuga þetta mál fvrir sig núna
næstu daga, en skákþing Banda-
ríkjanna verður einmitt háð í
New Ýork síðar í þessum mánuði.
Minnst vár á Reshevsky og Fisher,
en telja má, að þeirra kröfur verði
fúllháar. Hins vegar kemur til
mála að færa þetta í tal t. d. við
Biscaya, sagði Guðmundur.