Alþýðublaðið - 22.12.1963, Page 13
orsca
ÞÁ LAS ÉG BÓK Lúðvíks Krist
jánssonar um Þorlák O. Johnson.
Ég hefði viljað skrifa lengra mál
um þá stórfróðlegi bók, en þess
en þess er ekki kostur. Fyrra bind-
ið kom út í fyrra og nú er bókarlok
Ég sagði í fyrra, að þetta væri mik-
ið og gott verk eins og Lúðvíks var
von og vísa og varla getur sam-
vizkusamari höfund — og ekki
er síðara bindið síðara. Þetta er
orðin merk saga um brautryðj-
anda og framfaramann, saga
Reykjavíkur og saga íslands á á-
kveðnu tfmabili-
EN FALLEGUSTU bækurnar
sem ég fékk inn úr dyrunum og
las voru: Hafnarsfúdentar skrifa
heim og Merkir íslendingar frá
Bókfellsútgáfunni. Hún gefur allt-
af út vandaðar bækur, undirstöðu-
bækur. Bréf Hafnarstúdentanna
opna manni sýn inn í liðna tíð, og
lýsa fyrir manni ævikjörum fólks-
ins og örlögum þess. Þetta er lif
ahdi, streymandi þjóðlíf. Ó-
gleymanleg örlög. Margur sveita-
pilturinn fórst í borginni við sund
ið, en aðrir uxu og döfnuðu eins
og gengur. Bréf frá liðinni tíð
eru oft efnismeiri og gefa betri
lieildarsýn en fræðibækur og frá-
sagnir.
OG FLEIBA GAT ÉG EKKI lesið.
Blöðin töfðu ekki fyrir, hvorki
lestur þeiTra né þátttaka í efni
þeirra- — Nú vonar maður að linni
um sinn. Fyrsta júlí næsta sum-
ar getum við aftur tekið við þar
sem nú er frá horfið, að brenna
upp verðmætin og vinna að end-
urkomu hruns og atvinnuleysis.
Hanncs á horninu
I VASKINN
Framhald úr opnu-
Um leið og við leituðum álits
verzlunarstjóranna á bóksölunni
síðustu daga, könnuðum við, hverj
ar væru metsölubækurnar. Svolít-
ið var það misjafnt eftir stöðum,
en langmest hefur selzt af „Skálda-
tíma” Laxness. Næst kemur senni-
lega ,,Sá svarti senuþjófur" —
ævisaga Haraldar Björnssonar eft-
ir Njörð P. Njarðvík, Þá "„Geysir
á Bárðarbungu’ eftir Andrés Krist-
jánsson og ,,Tveggja heima sýn”
eftir Ólaf Tryggvason. Meðal
þeirra bóka, sem næstar ganga,
eru „Stýfðar f jaðrir” — III. bind-
ið — eftir Guðrúnu frá Lundi,
„Lax á færi” eftir Víglund Möll-
er, „Tyrkjaránið” eftir Jón Helga-
soh, hin nýja skáldsaga Indriða
G Þorsteinssonar, „Land og syn-
ir”, „Mælt mól” eftir Davíð Ste-
fánsson, „Skyggna konan" — II.
bindi — eftir Eirík Sigurðsson
og „Segðu engum”, ný skáldsaga
eftir Hönnu Kristjánsdóttur.
ALLT I JÓLAMATINN
Verzlunin KJÖT & FISKUR
Þórsgötu 17 Laugarásvegi 1
SíÁií 13828 Sírni 38140
Verzlunin KJÖT; & FISKUR
Grandagarði (skipadeild)
Sími 24212
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. des. 1963 13