Alþýðublaðið - 22.03.1964, Side 7
/t! É=3 ÍEÆ, 5S
ÚTGEFANÐI
SAMBAND
UNGRA
JAFNAÐARMANNA.
m
□ — BREFAHRINGUR
SUJ er nýjung í starfi þess
og er nokkurn veginn víst,
að ekki hefur verið efnt til
slíks bréfahrings áður liér-
lendis. Hringurinn s’arfar
með þeim hætti að send eru
bréf með ákveðnum verk-
efnum til félaga ungra jafn-
aðarmanna um fandið vítt
og breitt og eiga Þeir að
gera þeim skil fyrir ákveð-
inn tíma. Þegar hefur fyrs'a
bréfið verið sent af stað og
gera skil þess góðar vonir
um framhaldið. — Forstöðu-
maður hringsins er Hörður
Zóphaníasson, varaformað-
ur SUJ.
Fulltrúaráð ungra jafnaðar-
manna í Reykjaneskjördæmi,
er stofnað var hinn 8. des. sl.
hefur nú gefið út fyrsta tölu-
blaðið af Reykjanestíðindum,
mjög myndarlegu málgagni,
sem ætlað er að koma út af
og til og flytja mál og skoð-
anir ungra jafnaðarmanna í
kjördæminu. Fyrsta tölublaðið
er helgað hinum farsæla endi
landhelgisdeilunnar og mikla
sigri. Er það gefið út í nokkr-
um þúsundum eintaka og var
sent á öll heimili í kjördæm-
inu hinn 11. marz sl. Meðal
greina, er blaðið flytur, má
nefna greinar eftir Guðm. í.
Guðmundsson róðherra og
Hilmar Jónsson bókavörð. Blað
ið er 8 siður að stærð og í
sama broti og Alþýðublaðið.
Ritnefnd skipa: Ásgeir Jó-
hannesson, Hörður Zóphaní-
asson og Karl Steinar Guðna-
son.
UNGIR FRAMSÖKNARMENN
AFNEIIA FLOKKI SlNUM
Flokkur án hugsjóna, nefndist
grein eftir mig, sem birtist á
Æskulýðssíðunni um daginn. —
Fjallaði hún um hugsjónafátækt
ungra Framsóknarmanna. Grein
þessi hófst með þessum orðum:
„Það er sárt að leita hug-
sióna og finna þær ekki, illt að
vilja vera hugsjónamaður í flokki
án hugsjóna, sárt að standa uppi
sem Framsóknarmaður á íslandi
í dag og horfast í augu við for-
tíð, nútíð og framtíð.”
Það sést á Vettvangi æskunnar
1 fiiiiiiiuiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiniiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiii«iuiiUMiiiiiiiuitiiiiiuuiiiiiiiiiuiiiiiiiauMP>i'<ii<»*UMjiiiiiiD>
Árshátíð unga fólksins í
Lido á miðvikudagskvöld
Árshátíð unga fólksins í Al-
þýðuflokknum verður haldin í
veitingahúsinu Lido í„p& den
gamle, gode máde”) næstkomandi
miðvikudag, miðvikudaginn fyrir
páska. Hefur stjórn Sambands
ungra jafnaðarmanna haldið árs-
hátíðina á þeim degi undanfar-
in ár, eins og flestir muna, því að
árshátíðin hefur frá því fyrsta
verið afbragðs vel sótt. Er ekki
að efa, að svo verður einnig nú.
Árshátíðin hefst kl. 8,30 e. h.
og verður sitt hvað til skemmtun-
ar að vanda. Formaður SUJ, Sig-
urður Guðmundsson flytur ávarp.
Jón Gunnlaugsson flytur skemmti
: þátt. Síðan verður leikið fyrir
! dansi til kl. 1 e. h. Aðgöngumið-
ar verða afhentir á skrifstofum
Alþýðuflokksins i Alþýðuhúsinu,
en.ráðstafanir hafa jafnframt ver-
ið gerðar til þess að sem flest
ungt alþýðuflokksfólk og gestir
þess geti sótt árshátíðina. Nauð-
synlegt er, að gestir panti sér
borð tímanlega i Lido.
Sjáumst heil í Lido á miðviku-
dagskvöld.
í Tímanum hinn 14. þ. m. að grein
arkorn þetta héfur ekkj farið
fram hjá augum ungra Framsókn-
armanna. Það gera þeir þá at-
hugasemd við umrædda grein, að
þeir hafi dottið um eina „mjög
méinlega prentvillu” í upphafi
greinarinnar, þ. e. að þar sem
standi Framsóknarmaður eigi að
vera Álþýðuflokksmaður.
Þetta er mikill misskilningur
hjá ungum Framsóknarmönnum,
en kanriski skilianlegur. Það var
ekki um prentvillu að ræða, held-
ur vantar unga Framsókn&rmerin
hér aðeins herzlumuninn til þess
að viðurkenna þekktar staðreynd-
ir, sem að vísu eru þeim óþægi-
I legar.
Eg sagði herzlurnuninn, því að
l í munni Framsóknarmanna, varð
hin ímyndaða prentvilla „mjög
meinleg.” En því aðeins getur
nrentvilla orðið „miög meinleg”,
að lesendnm finnist hún ekki
| fiarri lagi. Og ungir Framsókn-
armenn eru ekki svo skyni
skroppnir, að þeir sjái ekki að
hver lesandi, sem les í blaði, að
sárt sé að standa unni sem Fram-
sóknarmaður á íslandi í dag og
horfast í augu við fortið, nutíð
og framtíð. hann sér ekki betur
en hér sé verið að seg.ia sjálf-
sagða hiuti. Þetta er augljóst mál,
bót.t einn og einn ungan Fram-
sóknarmann langi til þess að loka
augunum fyrir þessum stað —
„Ungir Framsóknarmenn standa loppnir á leiðarenda í hugsjóm*
leit sinni, því að hugsjónir þeirra fyrirfinnast hvergi“.
STJÓRNMÁLASKÓLI FUJ
A® undanförnu hefur staðið yfir í Burstinni Stjórmnálaskóli
Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og Iíafnarfirði og hefur
skólinn verið vel heppnaður og fjölsóttur, enda til hans vandað.
Myndin hér aff ofan er tekin af fundimun í síffustu viku, en þá
flutti Þorsteinn Pétursson erindi og talaði um kommúriistaflokkinn.
reyndum. Það er kannski mann-
legt, en karlmannlegt er það ekki.
En hitt er í rétta átt hjá ung-
um Framsóknarmönnum, þegar
þeir gera athugasemdina um
þessa einu ímynduðu prentvillu,
að viðurkenna með þögninni eftir
farandi staðreyndir, sem bent var
á í þessari sömu grein:
1 1. að ungum Framsóknar-
mönnum finnist þeir eiga fótum
sínum fjör að launa i kapphlaup-
inu við sjálfa sig frá heitinu.
„Framsóknarmaður.”
2. að ungir Framsóknarmena
standa ráðvilltir í Tímanum og
finna sér engan hugsjónagrund-
völl.
3. að Framsóknarmenn hafa'
farið þannig með samvinnuhreyf-
inguna, að ungum Framsóknar-
Framh. á 10 síðu
EKKI er um annað meira talað um þessar
mundir en hin alvarlegu fjármálahneyksli sem
víða stinga upp kollinum. Þau sýna óhugnanleg
an fúa í þjóðfélagi okkar. Við, unga fólkið, verð
um að vera samtaka um að uppræta slíkt og for
dæma, hvar sem það kemur fyrir og hver sem
í hlut á. Framtíð okkar stendur og fellur með
því, hvort við reynumst heiðarleg eða óheiðar
leg gagnvart sjálfum okkur og öðrum.
Framsóknarmenn hafa látið að því liggja, að
allt þetta misferli, sem upp hefur komið, eigi
rætur sinar að rekja til viðreisnarinnar. Ungir
Sjálfstæðismenn álíta hins vegar, að þetta sé
afleiðing of mikillar vinstri stjórnar á landinu.
Og þeir bæta jafnvel við, að séu lög sett gegn
andsíöðu ákveðinna manna, þá sé ckkert eðli
legra en að þeir leitist við að komast í kringum
þau eða brjóta þau beinlínis. Þetta er háska-
leg kenning og kemur úr hörðustu átt, þegar
talsmenn hennar eru ungir lögfræðingar. Báðar
kenningar eru auðvitað jafn mikil fjarstæða..
Með lögum skal land byggja. Og öll lög tak-
marka að einhverju leyti frelsi manna og eru
tilkomin af nauðsyn. Þess vegna ber okkur að
hafa sérhverja einstaka lagagrein í heiðri, hvort
sem hún kemur okkur persónulega vel eða ekki
Við eigum að virða óréttlát lög og brjóta þau
ekki, en miða baráttu okkur við að fá þau úr
gildi numin. Þannig og ekki öðru vísi stöndum
við vörð um heiðarleikann og stuðlum með
því að farsælli framtíð þjóðar vorrar.
IIIIIIIIIIIIHIIIIIIH I llllllW*
ftLþÝÐUBLAÐIÐ — 22. marz 1964 f