Alþýðublaðið - 01.04.1964, Blaðsíða 9
rage, höfuðborgar Alaska. Þcssi srata varð mjögr hart úti í jarðskjálftunum.
Alaska af Rússakeisara fyrir
7,2 milljónir dala. Enda þótt
þetta þyki nú einhver mestu
reyfarakaup í sögu síðari alda,
var mikið um kaupin deilt í
Bandaríkjunum næstu ár á eft-
ir. Seward- utanríkisráðherra
hafði barizt fyrir málinu og
komið því í gegn, og nú var
Alaska í pólitískum deilum
kallað „firra Sewards.” Tókst
stjómarandstæðingum að gera
málið svo tortryggilegt í augum
almennings, að stjórnarsinnar
lögðu mikla áherzlu á að finna
landnema til að nýta þetta ný-
keypta Iand.
Jón Ólafsson skáld og rit-
stjóri var vestra um þessar
mundir og tók þátt í þjóðhá-
tíðinni í Milwaukee 1874. —
Honum mun fyrstum manna
hafa verið bent á Alaska sem
framtíðarland fyrir íslendinga,
og gerði það vinur hans einn,
Marston Niles að nafni. Var
sá áhrifamikill lögfræðingur í
New York og fyrrverandi sjó-
liðsforingi. Jón las bækur um
Alaska og leizt vel á hug-
myndina. Kallaði hann landa
sína saman á fund í Milwaukee
í byrjun júlí 1874 og skýrði
málið. Gerði hann að tillögu
sinni, að þrír menn væru send-
ir til Alaska til að kanna land
kosti. Samþykkti fundurinn
þrjá menn til fararinnar, svo
og áskorun til Grants Banda-
ríkjaforseta um að styðja för
þeirra.
Hvort tveggja var þetta
sumar, áð mikið var skrifað um
ísland í amerískum blöðum
vegna 1000 ára byggðar lands-
ins, og ríkisstjórn Grants átti
í vök að verjast í Alaskamál-
inu. Miles hafði milligöngu og
forsetinn veitti ríkulegan
styrk til fararinnar. Auk Jóns
Ólafssonar fóru Ólafur Ólafs-
son frá Espihóli og Páll Björns
son, síðar læknir, og vakti
ferð þessi mikla athygli.
Þeir félagar fóru yfir þvert
meginland Bandaríkjanna til
San Fransisco. Þar stigu þeir
um borð í herskipið „Ply-
mouth”, en það var seglskip
með 10 fallbyssur og 200
manna áhöfn. Voru þeir 24
daga í hafi, en lentu við Port
Richolas við Cooksflóa. Dvöld-
ust þeir þar um þriggja vikna
skeið og sömdu skýrslu um
landið, en að því búnu hélt Jón
aftur með herskipinu, en hin-
ir tveir höfðu vetursetu í St.
Paul á Kodiakeyju. Komu þeir
ekki aftur til Milwaukee fyrr
en næsta sumar.
Jón Ólafsson hélt nú til
Washington og samdi skýrslu
um ferðina. Segir þar meðal
annars, „að Kodiak sé betur
lagað land fyrir íslendinga en
nokkurt annað land, sem vér
þekkjum á jörðunni.” í riti
sínu benti Jón á, að íslendingar
mundu, með því að verða fyrst-
ir til landnáms í Alaska, ná
ráðum á löggjafasamkomu þar
frá upphafi og geta ráðið því,
að þar yrði alíslenzk nýlenda
og íslenzka töluð. Var málið
enn rætt í amerískum blöðum
og mæltu þau með því, að
stjómin í Washington veitti
íslendingum ríflegan styrk til
landnámsins. Sem dæmi má
nefna ritstjórnargrein í „The
New York Evening News” 22.
desember 1874, en þar segir:
„íslendingar eru sannarlega
mjög æskilegt fólk til að bæta
við þjóð okkar og vér trúum,
að byggð þeirra í Alaska muni e
stuðla verulega að því, að það
land, sem hingað til hefur að-
eins verið frekar kostnaðar-
samur angi af Bandaríkjunum,
verði að arðbærri eign.”
Bandaríkjaþing reyndist
Fraxnh. ð 13. síðu
ALÁSKA
Yukon
Nomé
j, FAIRBANKS
/nchomga;
ypidgz,
'SewarÁ
Juneau
5kagw_Q-
Kodtok
;U.5.S.R.
" '£ cTrk 7öT -£ -
SIBIKIBN. ö '
Anadry
: •
'J^AKldvik
CANADA
Dawson
muawsor
1. ‘ "
BennqHaveir .=
5 • UMNÁK^^^ÁlFuterne Ataskg bugíen
Kortið sýnir jarðskjálftasvæðin í Alaska.
Svefnbekkir
Svefnbekkur er hentug fermingargjöf.
Svefnbekkir með rúmfatageymslu klæddir ísienzku áklæðl .
í mörgum litum fyrirliggjandi. Verð aðeins kr. 3000,00.
Sendum hvert á Iand sem er.
ÍVAR ÞÓRHALLSSON,
Álfhólsvegi 29, Kópavogi. Sími 40352.
Hafnarfjörður
Lei'gjencLur matjurtagarða, eru beðnir að at~
huiga, að þekn ber að greiða leiguna fyrir-
fram, fyrir 20. apríl n.!k., ella verða garðarnir
teigðir öðrum.
Bæjarverkfræðingur.
Hafnarfjörður
Verkamenn
óskast til starfa við verklegar framkvæmdir.
Upplýsingar á skrifstofu minni.
Bæjarverkfræðingur.
Til sölu eru
Vélbátar
af ýmsum stærðum. — Uppl. gefur
Axel Kristjánsson, Iögfræðingur.
Útvegsbanki íslands.
HEMCD
Miðstöbvarofnar
og gaivaniseraðar pípur /2”-2”
HAGSTÆTT VERÐ
Helgi Magnússon & Co.
Hafnarstræti 19 — Símar 13184 og 17227.
Elzta byggingavöruverzlun landsins
Auglýsingasfml
ALÞÝÐUBLAÐSINS
er 14906
ALÞÝÐUBLAÐfÐ — 1. apríl 1964 Q