Alþýðublaðið - 24.11.1964, Page 10
Landsiiðið hafði yfirburði -
vann Ajax 32 gegn 20
ÞAÐ MÁ segja, að heimsókn Dan-
merkurmeistaranna Ajax hafi- lok-
ið jafn glæsilega og hún hófst.
Síðdegis á laugardag léku Dan-
irnir sinn síðasta Heik liér að þessu
sinni, þeir léku við úrvalslið lands
liðsnefndar HSÍ í íþróttahúsinu á
Keflavíkurflugvelli, og þrátt fyrir
'stór orð fyrir leikinn, fóru þeir
Tiinar mestu hrakfarir. HSI-liðið
sigraði með 12 marka mun, 32
gegn 20, í leikhléi var staðan 15:10,
íslendingum í vil.
★ KEPPNI í 15 MÍNÚTUR.
Danirnir byrjuðu leikinn vel,
þeir skoruðu tvö fyrstu mörkin
og áhorfendur voru ekki alls kost-
ar ánægðir með þetta, en það átti
eftir að breytast. íslenzka liðið
jafnaði fljótlega metin, 2:2. Dan-
ir náðu aftur forystu^ en íslend-
ingar jöfnuðu og þannig gekk
þetta fyrri hluta ' fyrri hálfleiks,
en þá var enn jafnt, 8:8. Þá var
eins og íslendingum leiddist þófrð
og þeir hristu Ajax af sér; en eins
og fyrr segir var fimm marka
munur í hléi, 15:10.
★ LÍTIL KEPPNI.
Síðari hálfleikur var lítið spenn
andr, en ánægjulegt var þó að sjá
glæsilegan leik íslenzka liðsins,
sem á köflum virtist það þó taka
lífinu með fullkominni ró. Áhorf-
endur vilja fá eitthvað fyrir aur-
ana eins og sagt er, keppj og
spenning. Það var greinilegt, að
dönsku leikmennirnir höfðu gefið
upp alla von um sigur og íslend-
ingarnir gátu því tekið lífinu með
ró.
★ LIÐIN.
í liði landsliðsnefndar áttu allir
góðan dag og sumir frábæran. Guð
jón Jónsson var í essinu sínu,
hann skoraði flest mörkin og
danska markmanninum gekk illa
að átta sig á lúmskum skotum
hans. Ragnar Jónsson var einnig
frábær, en Gunnlaugur gat lítið
verið inn á að þessu sinni vegna
meiðsla. Einar Sigurðsson var
drjúgur. Báðir markmennirnir,
Þorsteinn og Sigurður, stóðu sig
vel.
Danska liðið er mjög jafnt, þó
að Ejlertson sé sá^ sem mest ber
á. Þetta var fjórði leikur Dananna
hér á 7 dögum og ekki var alveg
laust við, að þreytumerki hafi
komið í ijós á einstökum leik-
NÚ ER BRÁTT lokið helming I
leikjanna i 1. deild, en þeir eru 42 !
alls. Ef dæma á eftir því sem lokið
er, má ætla að baráttan verði
milli Manch. Utd. og Chelsea, en
sjaldan er hægt á þessu stigi máls
ins, að segja til um hver verði sig
urvegarinn að vori. Manch. Utd.
verður þó eitthvað veikara í næsta
mánuði, en Law fær þá sinn dóm
fyrir-brottvikninguna fyrra laug-
ardag.
Bobby Charlton átti mjög góðan
leik með Manch. Utd. gegn Black-
burn, þótt ekki tækist honum að
skora og eru raddir uppi, að hann
fái aftur sæti sitt í landsliðinu
ekki sízt .eftir tvo seinustu lands-
leiki, sem hafa verið lélegir af
hálfu Englands. Best, Conelly og
Herd skoruðu mörkin.
Chelsea sleppir ekki tökunum á
toppnum og þrátt fyrir að einn
bezta leikmann þeirra og fyrirliða
vatnaði í liðið, fengu þeir sinn
stærsta útsigur í mörg ár. Gra-
ham skoraði 3 mörk og sá er kom
inn fyrir Venables skoraði 2 mörk
í sínum fyrsta leik.
Blackpool náði heiðarlegu jafn-
tefli gegn Fulham og skoraði sami
maður öll mörkin fyrir Blackpool.
Nafn hans er Ball, lágvaxinn rauð-
hærður kjarnakarl með skap eins
og Law hinn frægi innherji Man-
chester Utd. enda oft nefndur
Law nr. 2. Talinn eiga mikla fram-
tíð fyrir sér í enska landsliðinu.
Rangers átti í erfiðleikum með
Motherwell og tókst ekki að skora
fyrr en á síðustu mín. leiksins
(Forrest) enda ekki furða. þar sem
Motherwell lék mestallan leikinn-
með 7-9 manns í vörn.
1. deild:
Birmingham 1 - Chelsea 6
Burnley 1 - Wolves 1
Everton 2 - Leicester 2
Fulham 3 - Blackpool 3
Manch. Utd. 3 - Blackburn 0
Notth. For. 2 . Sheff. Wed. 2
Sheff. Utd. 3 - Sunderland 0
Stoke 1 - Liverpool 1
Tottenham 4 - A. Villa 0
W. Bromwich 0 - Arsenal 0
West Ham - Leeds I L
Manch. U. 19 13 4 2 45-19 30
Chelsea 19 12 5 2 46-18 29
Leeds 19 12 2 5 42-31 26
Notth. F. 19 9 5 5 40-32 23
Blackburn 19 9 4 6 40-30 22
West Ham 18 9 3 6 41-29 21
Tottenham 19 9 3 7 38-31 21
Blackpool 19 8 5 6 37-33 21
Sheff. W. 18 7 6 .5 27-21 20
Leicester 19 7 6 6 40-40 20
Everton 19 6 7 6 34-32 19
Sheff. U. 19 8 3 8 26-27 19
Arsenal 19 8 3 8 29-36 19
W. Bromw. 19 5 8 6 33-29 18
Fulham 19 5 8 6 30-32 18
Liverpool 18 5 5 8 25-31 15
Stoke 19 5 5 9 27-35 15
Burnley 19 4 7 8 25-37 15
Birmingham 18 4 3 11 29-46 11
Sundarl. 17 2 6 9 23-41 10
A. Villa 1? 4 2 12 21-45 10
Wolves 18 3 2 13 21-44 8
2. deild:
Bolton 3 - Portsmouth 2
Cardiff 4 - Bury o'
Coventry 0 - C. Palace 0
Huddersfield 0 - Norwich 0
Ipswich 1 - Charleston 1
Middlesbro 4 - Swindon 1
Newcastle 2 - Derby 2
Northampton 2 - Swansea 1
Plymouth 3 - Manch. City 2
Preston 3 - Leyton 0
Southampton 6 - Rotherham 1
Northampt. 19 10 7 2'27-18 27
Framhald á 11. síðti.
ísl. liðið, sem leikur
við Spánverja í kvöld
ISLENZKA landsliðið í hand-
knattleik, sem leikur við Spán-
verja í íþróttahúsinu á Kefla-
víkurflugvelli kl. 9 í kvöld, hef-
ur -verið valið. Liðið er skip-
að sem hér segir: Þorsteinn
Björnsson, Ármanni, Sigurður
J. Þórðarson, KR, Ragnar Jóns-
son, FH, fyrirliði, Gunnlaugur
Hjálmarsson, Fram, Hörður
Kristinsson, Ármanni, Guðjón
Jónsson, Fram, Karl Jóhanns-
son? KR, Sigurður Einarsson,
Fram, Tómas Tómasson, Fram,
Einar Sigurðsson, Ármanni, og
Birgir Björnsson, FH.
í liðinu eru þrautreyndir
leikmenn, sem hafa leikið
marga landsleiki, þrír nýliðar
eru þó í liðinu, báðir markverð
irnir, Þorsteinn Björnsson og
Sigurður J. Þórðarson og Tóm-
as Tómasson.
Eftir yfirburðasigur Norð-
manna yfir Spánverjum er vart
við öðru að búast en Islending-
um takist að sigra, þó Norð-
menn hafi ieikið vel á sunnu-
daginn.
w%wwwwwwwwww%wwwwwwwvt%ww
Hér er Gunnlaugur í „dauðafæri" og þá er ekki að sökum að spyrja
10 24. nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Framliald á 11. síðu.