BFÖ-blaðið - 01.01.1967, Page 1
1. T B L. . 2. Á R G. . 19 6 7
BFÖ-BIADID
FÉLAGSRIT BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA
ÚTGEFIÐ I SAMVINNU VIÐ ÁBYRGÐ HF.
/Q'lirif af neyzlu lítílla
áfeugisskammfa
Eítir C. Drew, prófessor við háskólann í Lundúnum. — Stutt ágrip.
Menn eru mikið til sammála um
það, að áfengisneyzla, sem veldur
meira en i%o áfengismagni í blóði
neytanda, leiði í ljós ýmis frávik frá
„normal“ hegðun hans.
Aftur á móti eru menn alls ekki
sammála um áhrif áfengis, sem neytt
er í svo litlum skömmtum, að áfeng-
ismagn mælist minna en i%o í blóði
neytandans, og einkum eru menn
ósammála um áhrifin, ef áfengis-
magnið er aðeins 0,5%o og þaðan af
minna. Það er eðlilegt að svo sé,
vegna þess að litlir áfengisskammtar
hafa ekki, eða virðast ekki hafa,
skýrar og ótvíræðar verkanir á
framkomu manna, áberandi ölvun
kemur ekki að jafnaði í ljós.
Það er erfitt og margbrotið verk,
að mæla og ákveða áhrif og verkan-
ir lítilla áfengisskammta. Til þess
þarf að framkvæma rannsóknir með
meiri nákvæmni og árvekni en tíðk-
ast hefur hingað til, að örfáum rann-
sóknum þó undanteknum.
Vissulega væri samt meiri þekk-
ing á áhrifum og verkunum lítilla
áfengisskammta nauðsynleg, bæði
hvað fræðilega og raunhæfa þekk-
ingu þeirra snertir.
Vér þurfum að fá gleggri og ör-
uggari vissu um þetta efni en vér
eigum í dag.
Ef vér rannsökum það, sem um
þetta efni hefur verið ritað vísinda-
lega, verðum vér þess vör, að menn
hallast að þremur aðalkenningum
um áhrif og verkanir lítilla áfengis-
skammta.
Fyrsta kenningin heldur því fram,
að hæfni manna minnki jafnskjótt og
mælanlegt áfengi finnst í blóði
BFÖ-BLAÐIÐ
I