BFÖ-blaðið - 01.01.1967, Qupperneq 1

BFÖ-blaðið - 01.01.1967, Qupperneq 1
1. T B L. . 2. Á R G. . 19 6 7 BFÖ-BIADID FÉLAGSRIT BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA ÚTGEFIÐ I SAMVINNU VIÐ ÁBYRGÐ HF. /Q'lirif af neyzlu lítílla áfeugisskammfa Eítir C. Drew, prófessor við háskólann í Lundúnum. — Stutt ágrip. Menn eru mikið til sammála um það, að áfengisneyzla, sem veldur meira en i%o áfengismagni í blóði neytanda, leiði í ljós ýmis frávik frá „normal“ hegðun hans. Aftur á móti eru menn alls ekki sammála um áhrif áfengis, sem neytt er í svo litlum skömmtum, að áfeng- ismagn mælist minna en i%o í blóði neytandans, og einkum eru menn ósammála um áhrifin, ef áfengis- magnið er aðeins 0,5%o og þaðan af minna. Það er eðlilegt að svo sé, vegna þess að litlir áfengisskammtar hafa ekki, eða virðast ekki hafa, skýrar og ótvíræðar verkanir á framkomu manna, áberandi ölvun kemur ekki að jafnaði í ljós. Það er erfitt og margbrotið verk, að mæla og ákveða áhrif og verkan- ir lítilla áfengisskammta. Til þess þarf að framkvæma rannsóknir með meiri nákvæmni og árvekni en tíðk- ast hefur hingað til, að örfáum rann- sóknum þó undanteknum. Vissulega væri samt meiri þekk- ing á áhrifum og verkunum lítilla áfengisskammta nauðsynleg, bæði hvað fræðilega og raunhæfa þekk- ingu þeirra snertir. Vér þurfum að fá gleggri og ör- uggari vissu um þetta efni en vér eigum í dag. Ef vér rannsökum það, sem um þetta efni hefur verið ritað vísinda- lega, verðum vér þess vör, að menn hallast að þremur aðalkenningum um áhrif og verkanir lítilla áfengis- skammta. Fyrsta kenningin heldur því fram, að hæfni manna minnki jafnskjótt og mælanlegt áfengi finnst í blóði BFÖ-BLAÐIÐ I

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.