BFÖ-blaðið - 01.01.1967, Blaðsíða 10
brestur. Sé hlífin rétt sett á, skal hún
snúa dálítið inn á við, fjarlægðin frá
afturhjóli skal vera jöfn ,,geisla“
þess (lengdin frá miðju hjóls að ytri
brún barða) og hæð frá jörðu sama
og /4 hluti af þvermáli hjólsins,
miðað við að einn til tveir farþegar
séu í bílnum eftir stærð hans. Svona
sett á mun hlíf tæplega valda slæmu
steinkati.
Munið þetta: Það tjón, sem steinn
veldur á bíl, fer auðvitað fyrst og
fremst eftir þeim hraða, sem þeir
mætast á, steinninn og bíllinn. Hraði
bílsins er oft aðal orsök þess að illa
fer. Hægið því alltaf vel á, er þið
mætið bíl eða er bíll fer fram úr
ykkur.
Holur og „þvottabretti"
1 gamla daga þótti það góð öku-
mennska að holusneyða vel. Þá voru
vegirnir ekki verri en það, að þetta
var oft hægt með sæmiiegum árangri.
Nú á þessum síðustu árum risastórra
og geysi þungra flutningabíla er svo
komið að ekki er lengur hægt að
holusneyða. Reyni maður að komast
hjá einni holunni, lendir maður bara
í annarri sínu verri. Ekki nema von
að höggdeyfar og legur endist illa.
Séu holur miklar í vegi, er ekki
hægt að aka þær af sér á smábílum,
eins og kallað er. Maður fer bara
því ver með bílinn því hraðar sem
ekið er. Hin svokölluðu „þvotta-
bretti“, séu þau ekki mjög gróf, má
hinsvegar „aka af sér“ í ýmsum
gerðum smábíla, þó ekki þeim, sem
eru með mjög litlum hjólum. Til
þess að slíkur árangur næðist á
þeim, yrði hraðinn að vera svo mik-
ill að ekkert vit væri í. Með smábíl-
um á ég hér við bíla upp í sex
manna.
fslenzkir vegir eru nú víðast að
verða þannig ,að maður verður að
velja um tímann eða bílinn. Sé veg-
urinn frá Reykjavík austur í Hvera-
gerði slæmur, ek ég hann heldur á
70 mínútum en 50 mínútum, enda
þótt ég gæti vel komizt þennan spöl
á þeim tíma. Ég vil heldur bílinn.
Brekkur
Akið alltaf varlega niður í móti
og vitanlega því varlegar sem bratt-
ara er. Þurfi maður niður mjög
bratta og langa brekku, er það mjög
góður siður að reyna hemlana áður
en farið er í brekkuna, setja helzt í
1 gír til að byrja með, en gíra svo
upp er neðar dregur. Hemla skyldi
með hreyfli og einnig hemlum, þar
sem bratt er.
Það er ógn að sjá, hvað margir
ökuglannar aka óvarlega í brattar
og langar brekkur. Þeir vilja sýnast
„stórir karlar" en eru bjánar. Mér
hefur oft ofboðið það sem ég hef
séð. Stórslys hafa skeð af þessum or-
sökum.
Upp brekkur má aka greitt, ef
útsýn og vegur leyfir og bíllinn ann-
10
BFÖ-BLAÐIÐ