Skólablaðið - 01.08.1914, Blaðsíða 13
____________ _______SKOLABLAÐIÐ_______________________125
Við vitum hvernig þetta gengur, segja menn, og hafa
svo skakka hugmynd um kensluna alla æfi.
Hvaða kröfur gera nú skólanefndir til kennara ?
Alloftast þær, að þeir séu kauplágir.
Við þurfum að stefna að því að ala upp velmentaða og
samhenta kennarastétt. Og skólanefndir og fræðslunefndir
verða að læra að ráða ekki til kenslu nema nýta menn og
konur, sem tekið hafa kennarapróf. því þótt ýmsir kennar-
ar, karlar og konur, séu góðir kennarar, þótt þeir hafi ekki
kennarapróf, þá er það a ls ekki algild regla. Og miklu
nýtari mundu þessir próflausu kennarar hafa orðið, ef þá
hefðu ekKi vantað kennarafræðsluna. Prestar okkar og
mentaskólamenn, sem margir fást við barnakenslu ættu að
ganga undir kennarapróf áður en þeir byrja starf sitt. þeir
eru ekki fæddir með uppeldisfræði, sálarfræði né skólasögu
í kollinum fremur en aðrir menn.
Kennara- Tugir ára eru síðan að farið var að leiðbeina
mentun. þeim í kenslufræði, er ætluðu að gera barnakenslu
Kennara- að starfi sínu. það var Flensborgarskólinn, sem
skólinn. þa5 geröi fyrst. þetta var aðeins vottur í byrjun
nokkra vikna námsskeið á vorin. Síðan varð það heilt
skólaár, frá 1. okt til 14. maí. Gátu þeir sem höfðu lokið
gagnfræðaprófi sest í kennarabekkinn svokallaða. þarna
áttum við þriggja deiida skóla undir forustu ágætis skóla-
manns. Sumir kennararnir við þenna skóla voru framúr-
skarandi kennarar eins og til dæmis Ögm. Sigurðsson. Stóð
þessi skóli síst að baki þeim kennaraskóla sem nú er, þótt
góður sé. Syðra áttu menn til dæmis kost á að læra ensku
í þrjá vetur hjá afburða duglegum kennara, 1. og 2. deild stóð
frá 1. okt. til 1. apríl og 3. deild frá 1. okt. tll 14.
maí.
Nú liðu ár, og að því rak að bygður var kennaraskóli
hér í Reykjavík. Var húsið reist á harla óhentugum stað
fyrir nemendur og kennara- Fjárveitingarvaldið skar svo við
neglur sér fé til byggingarinnar, að ekki var skammlaust.
Stendur nú þetta olnbogabarn þingsins þarna einmana úti í
boUi, fnrflp.lct oq Féhnrfa eins oq kennflrasréttin, F.inn verk-