Skólablaðið - 01.07.1916, Blaðsíða 12
io8
SKÓLABLAÐIÐ
ina á þann hátt aö hlýða barni yfir hana. Ef líka sú aöferö
væri höfð, stæði næstum á sama, hvort kenslubókin væri góð
eða slæm; úr því yrði engin barnafræðsla og ekkert andlegt
uppeldi.
Það er satt, aö í sumum greinum hafa á síðustu árum komið,.
út betri kenslubækur en áður voru til. Þaö getur verið að
sumir kennarar séu óþarflega fastheldnir við eldri bækur, aðrir
kennarar þá óþarflega nýungagjarnir, og kjósi nýju bækurnar
af þvi að þær eru nýjar.
Við einu vil eg vara samverkamenn mína í þessu efni, og
það er það, að taka mark á skrumauglýsingum um skólabækur,
eða láta blekkjast af þeim gyllingum, sem höfundarnir setja
sjálfir í blöðin eða fá aðra til að setja þar.
A n n a r k e n n a r i.
r
Arsfundur Hins íslenska kennarafélags
var haldinn 27. f. m. í kennaraskólanum í Reykjavík. Fundinn
sóttu um 20 kennarar. Umræðuefni var breytingar á fræðslu-
lögunum, nýjar stefnur. Guðm. R. Ólafsson kennari var frum-
mælandi.
Umræður féllu á víö og dreif og engin fundarályktun var
gerð. Allmjög snérust umræðurnar um unglingamentun og
barnamentun, og var á fundarmönnum að finna að ekki vildu
þeir i neinu slaka til á kröfum um barnamentun til að auka
unglingamentunina, þótti þvert á móti litill fengur í fleiri
unglingaskólum, nema þeir væru reistir á staðgóðri barna-
mentun.
Gamalli tillögu um, að prestar gerðust aðal-barnafræðarar,
hver í sínum söfnuði, var hreyft, en hún fékk alls engan byr
á fundinum; þótti ekki í mál takandi, og það enda þó að
prestum yrði fjölgað jafnvel fram úr því sem þeir hafa verið
flestir.
Tillaga var samþykt um að biðja landsstjórnina að setja
aftur inn á næsta fjárlagafrumvarp 2500 kr. til framhalds-