Alþýðublaðið - 19.05.1965, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 19.05.1965, Blaðsíða 11
Dagskrá Landsmóts UMFl er nú ákveðin EINS og kunnugt er, fer 12. landsmót UMFÍ fram að Laugar- vatni 3. og 4. júlí í sumar. Héraðssambandið Skarphéðinn liefur tekið að sér framkvæmd mótsins og fjárhagsábyrgð. Allur undirbúningur mótsins gengur eftir atvikum vel, en að mörgu er að huga við undirbún- ing og framkvæmd slíks móts. Framkvæmdum við íþrótta- velli íþróttakennaraskóla ís- lands á Laugarvatni miðar vel á- fram, eftir er að aka yfirlagi í hlaupabrautir, girða vellina — og ýmiss annar frágangur. Verða íþróttamannvirki þessi mjög glæsileg og vönduð að öll- um trágangi, og vonir standa til að hægt verði að vígja þau form lega á landsmótinu. Árni Guð- mundsson skólastjóri íþróttakenn araskólans hefur haft umsjón og eftirlit með þessum framkvæmd- um, sem staðið hafa yfir um ára bil. Dagskrá mótsins er nú að mestu ráðin. Verður hún með svipuðu sniði og á undanförnum mótum. Þó verður sú breyting gerð, að í stað ungmennafélagsfundar, er verið hefur að kvöldi fyrri móts daginn, verður kvöldvaka með fjölbreyttu efni. Framkvæmdanefnd landsmóts- ins er um þessar mundir að senda bréf til héraðssambandanna, á- samt ýmsum upplýsingum um fyr irkomulag mótsins. Mótsstjóri verður Þorsteinn Ein arsson íþróttafulltrúi. Umsjónar- maður starfsíþróttakeppni verður Stefán Ólafur Jónsson. Ráðgert er að efna til búvéla- sýningar í sambandi við starfs- íþróttirnar. Verður vélasýningin á mótssvæðinu. Hafsteinn Þorvaldsson ritari H S K hefur verið ráðinn framkv.- stjóri landsmótsnefndar. Hefur hann skrifstofu að Engja vegi 28 á Selfossi, sími 274. — Fastur viðtalstími hans í skrif- stofunni er á mánudögum og á fimmtudögum kl. 9-12. Til hans ber að leita með allar upplýsingar varðandi undirbúning mótsins. Einnig um mótið sjálft og framkvæmd þess. Þá mun Ármann Pétursson, I fulltrúi U. M. F. í., í landsmóts- nefnd einnig gefa upplýsingar um allan gang mála varðandi lands- mótið. Hann hefur síma 50-772. Þar sem gera má ráð fyrir, að mjög mikill mannfjöldi sæki mót ið, mun landsmótsnefnd leggja mikla áherzlu á að halda þar uppi lögum og reglu. Vegna mikillar umferðar mótsdagana, að og frá mótsstaðnum, má gera ráð fyrir, að taka verði upp einstefnuakst- HSÐ HEiMSKUNNA BRAGÐGOTT FRÍSKANDI NÆRANDI 1 ur þegar umferðin er mest. Þá munu forráðamönnum Skarphéð- ins leggja mjög ríka áherzlu á það, að allir ölvaðir menn verði tafarlaust fjarlægðir af móts- svæðinu. Landsmótsnefnd væntir þess að mótið beri fyrst og fremst svip þeirrar íþróttaæsku, er mót- ið sækir og mætir þar til keppni, og þess glæsilega umhverfis sem mótið er haldið. Föstudagur 2. júlí. Kl' 20.00 Fundur með flokks- stjórum íþróttahópanna og starfs mönnum mótsins. Laugardagur 3. júlí- Kl. 08.00 Vakið — Morgimverð ur. 09.00 Hópganga til íþróttavallar. Fánar dregnir að hún. — Fjölda söngur- 09.15 Mótið sett- 09.30—12.00 íþróttakeppni.: 100 m. hlaup karla (undanrásir.) 100 m. hlaup kvenni (undanrásir). 1500 m- hl- karla (undanrásir.) Kúluvarp kvenna. Kringlukast karla. Hástökk kvenna Langs*ökk karla. 11.00 Knattspyrna (2x30 mín.) 12.00—14.30 Matarhlé- 14-30—16,30 Framhald íþrótta- keppni: 400 m hlaup — undanrás ir og milliriðlar. Stangarstökk. Kringlukast konur. Langstökk konur. Kúluvarp karlar- 16.30 Knattspyrna. (í leikhléi úrslit í 1500 m- Maupi.) 17,40 Handknattleikur. 2x15 mín. (í leikhléi úrslit í 400 m hlaupi) 18.30 Verðlaunaafhendingar. 19.00 Kvöldverður. 20.00—22.00 Kvöldvaka. 22.00—2400 Dans. Sunnudagur 4. júlí. 08.00 Vakið — Morgunverður. 09-00 Fánar dregnir að hún. 09.15—1100 íþróttakeppni. Hástökk karla. Þrístökk. Spjót- kast. 1000 m. boðhlaup karla (ef tii vill undanrásir.) 4x100 m- boð hlaup konur, (ef til vill rundan- rásir-) lU.OO Handknatltleikur 2x15 mín. 11.45 Verðlaunaafhendingar. 12.00—13.30 Matarhlé- 13,30—16.00 Hátíðardagskrá: (Messa ávörp, ræða, söngur, upp les+ur, leikfimi, þjóðdan-ar, o.fl) 16.00 Glíma, (verði mikil þátt- taka, skipt í tvo hluta). Verð- launaafhending fyrir starfsíþrótt ir. 16-30 100 m. hlaup karla (úrslit) 16.45 Knattspyrna 2x30 mín. (úrslit), og í leikhléi 5000m. hlaup 18-00 Handknattleikur 2x115 mín. (úrslit). Verðlaunaafhending. Matarhlé. Dans og ýmsar skemmt anir. Mótsstjórnin áskilur sér rétt tiil bneyítinga á niðu’rröðun og tímasetningu dagskrár. LÖGTAKSÚRSKURÐUR Samkvæmt kröfu bæjargjaldkerans í Hafnarfirði, fyrir h'önd bæjarsjóðs Hafnarfjarðar, úrskurðast hér með lög- tak fyrir gjaldföllnum, en ógreiddum fyrirframgreiðsl- um upp í útsvör ársins 1965 og fasteignagjöldum sama árs. Fer lögtak fram á ábyrgð bæjarsjóðs, en á kostnað gjaldenda, að liðnum 8 dögurii frá birtingu úrskurðar þessa, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Hafnarfirði, 18. maí 1965. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, Björn Sveinbjörnsson (settur). Tryggið framtíð barna yðúr með því öð gefa þeim hin verðtryggðu spariskírteini. Verjðtryggðu spariskírtcinin cru til sölu í Rvtk* hjó öllum bönkufn og úfibúum þcirra og nokkrum vcrðbréfasölum. Uton Rcykjavikur eru spariskír- teinin seld hjó útibuum oífra bankanna 09 stærri sparisjóðum. SEÐLABANKI ISLANDS ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 19. maí 1965 %% Framh. á 15. siðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.