Alþýðublaðið - 10.06.1965, Síða 8

Alþýðublaðið - 10.06.1965, Síða 8
1 - j -i Yy4&z- 4* a ,* '• m WM <• ■ ■<-'■' <♦ Mr- að og NEW YORK sunnudaginn 30. maí 1965, hitinn er 32 stig og vþðrið einstök sumarblíða. Eg hef djValizt hér tvær nætur og einn d ig. og get því naumast talizt h efur að lýsa heimsborginni niiklu, hef raunar svipazt um í rJégrenninu og litið inn í söfnin fiægu kennd við Guggenheim og njútímalist, en slíkt mun aðeins býrjun þess að kynnast völundar- Msinu. Maður fellur í stafi að sjá þessa furðusmíð, heldur sig annað hvort orðinn dverg eða sjónarvott þ vílíkra ærsla, að ofvöxtur hafi h laupið í húsin og allt umhverfið. 1 iðbrigðin eru sýnu meiri en voru f /rir sunnlenzkan ungling koma til Vestmannaeyja I eykjavíkur á kreppuárunum áð r r er. seinni heimsstyrjöldin fór e Idi sínum um lönd og álfur. J Iinneapolis er á stærð við Kaup- r íannahöfn og þó líkust sveita- þorpi í samanburði við þetta fer 1 ki. Geíur mannshöndin hafa ver- i í hér að verki? Já, þessa er henni euðið, ef hún nýtur stórfelldrar tekni og ævintýralegra fjármuna. J á byggir hún svo stórt, að ein- s taklingurinn hverfur í fjöldann (ins og dropi í hafið. Eg er sam- nála Halldóri Laxness, að maður rtiuni hvergi eins einmana og í ýúrri borg. Þá grípur gestinn úr íslenzku fásinni einkennileg lam- ; ndi innilokunarkennd, hann er ; llt í einu einn og yfirgefinn í ftraumþungri hringiðu fjöldans og Éraðans og vildi helzt vera horf- ^nn heim til fjallanna bláu og 1 fændabýlanna lágu á grænum tún- ■im. Eg missti af sauðburðinum í '■ r og hreppti í staðinn heims- borgina New York. Munurinn er ærinn — að fara á mis við það að sjá nýfædd lömb rísa á legg og gista hrikalegasta bólstað ver- aldarinnar. Heimsborgin kann sér ekki læti, en notar hvert tækifæri til um- svifa. Kjósendur í Minneapolis vel.ia sér borgarstjóra 8. júni, en voru enn i vikunni, sem leið, stilltir eins og fermingarböm. All- ir virtust una því, að Arthur Naf- talin myndi endurkosinn. Hér bregður öðru vísi við, þó að enn séu fimm mánuðir til stefnu kjör- dagsins. Repúblikanar hafa boðið fram ungan og vígreifan fullhuga, John Lindsey að nafni. Hann gengur í verzlanir, skrifstofur og íbúðir, tekur í höndina á hverjum, sem til næst, og biður um at- kvæði háttvirtra kjósenda. Blöðin í gær birtu mynd af honum í rak- arastofu, þar sem hann gekk á milli stólanna og heilsaði við- skiptavinunum. Mér er sem ég sjái Geir Hallgrímsson heyja slíka kosningabaráttu hjá Eyjólfi rakara í Bankastræti. En svona er Ame- ríka. Og nú bíður New York þess í ofvæni, hvort Robert Wagner horgarstjóri gefi kost á sér til framboðs fyrir demókrata eða ekki. Hann fer sér hægt og þykist vera í vafa, ber við aldri sínum og heimilishögum. Wagner er 55 ára gamall, en missti konu sína í fyrra og segist þurfa að helga sonum sínum tveimur meiri tíma en annir borgarstjórnarinnar leyfi. Afleiðingin er vitaskuld miskunn- arleysi amerisku blaðanna. Þau spyrja Wagner í þaula: Ætlar borgarstjórinn að giftast aftur? Síðan r|kja þau nákvæmlega, hve- nær hc^jum hafi orðið misdægurt á kjörthnabilinu, sem er að líða. Var ekki borgarstjórinn óvenju fölur yfirlitum á dögunum? Hvers vegna fór hann í læknisskoðun fyrir þremur mánuðum? Og svo er hringt í Hvíta húsið í Wash- ington og spurt, hvort Wagner eigi von á nýju embætti, ef hann vist Elisabetar drottningar á kurteisissýningunum. Eitt þeirra gerðist svo djarft að spyrja, hvenær þeir myndu greikka spor- ið á nýjan leik. Hins vegar láðist því að spá, hvert leið þeirra kæmi þá til með að liggja. En framhleypni þess á ekkert skylt við, að minningardagur fallinna amerískra hermanna er á morgun. í HEYRANDA HUÓDI eftir Helga Sæmundsson vilji skipta um atvinnu. En kann- ski eru þettá látalæti til að vekja athygli og eftirvæntingu kjós- enda. Blöðin í New York spegla heim- inn í myndum og frásögnum. Þau deila um utanríkisstefnu John- sons.forseta, segja frá Þýzkalands heimsókn Elísabetar Bretadrottn- ingar, bardögunum í Suðaustur- Asíu og heilsufari hertogans af Windsor í tilefni þess, að ævisaga hans hefur verið kvikmynduð, en hann var nýlega skorinn upp af dr. Michael DeBakey í Houston, og íeynir sér ekki, að það dæmist fréttnæmara en frægðarverk dr. Kirklin í Rochester á vesaling mínum. Kvikmyndin er víst'álit- legt gróðafyrirtæki: Hefðarfrú, sem sá hana í París, gaf henni beztu meðmæli! Aftur á móti efa sum blöðin, að þýzku hermennirnir verði alltaf jafn prúðir og í ná- Eg sit í gistiherbergi mínu á elleftu hæð, sem er tæpast í miðju húsi. Mannfjöldinn niðri á Breiðstræti mjakast áfram eins og maurar, og þó eru allir að flýta sér líkt og fiskiganga. Eg held samlíkingunni áfram: Hverjuin gefst þessi veiði? Útgerðin leynir sér varla. Allir þessir einstaklingai- eru þátttakendur í samkeppni ó- fyrirleitinnar og vægðarlausrar auðsöfnunar. Sérhver Bandarikja- maður ætlar að verða ríkur, vakn- ar til þeirrar umhugsunar að morgni og sofnar frá henni að kvöldi. Og hér er margur dala kúturinn, en því fer fjarri, að allir hreppi skildinga að vild sinni. Nýríkir íslendingar myndu una bærilega hlutskipti amer- ískrar heppni, þar sem dollarinn er • fljótteknari einseyringnpm heima, en ég vildi ekki vera at- Frh. á 10. siðu. DRENGURINN, sem við sjáum á þessum myndum^ er að gangast undir heilauppskurð — stálprjónn hefur verið rekinn tvo og hálfan þumlung inn í heila hans, en 'samt er sjúklingurinn glaðvakandi, því að hann er jafnframt læknum sín- um til aðstoðar. • Nærri tveimUr árum eftir að -móðir hans fyrst veitti því áthygli, að sonurinn ætlaði að verða inn- skeifur og boginn í báki, Var:farið ■með hinn níu ára gamla Steve Schiavo til fundar við Nýjú-Jór- vikur lækniijn Irving Cooper. Steve þjáðist af sjúkdómi, sem á læknamáli nefnist Dystönia, bækil Ún. sem fóigiri er í bognu baki, hnýttum fótlegg.og. skjálfta f hönd um og fótuin. Árum saman gátu læknár, sem ítríddu við Dystoniu, Parkirrssons veiki og aðra sjúkdóma, sem höfðu í för með sér óeðlilega vöðvastarf- Læknir mælir út staðinn á höfði Steves, þar sem nálin á að ganga inn í heilabúið. Steve andar að sér gasi á meðan. Meðan á aðgerðinni stóð fylgdist Steve til að hreyfa fingur sína — hvort nálin hefði frys • 8 10. júní 1965 - flLÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.