Alþýðublaðið - 08.08.1965, Blaðsíða 3
MIKIÐ BYGGT
Á HELLISSANDI
Hellissandi — GK — OÓ
HÉR hefur verið betri liandfæra-
afli í sumar en nokkru sinni áður
og hafa margar trillur stundað
þær veiðar til þessa og fengið
hálft annað og upp í tvö tonn i
róðri. Þrátt fyrir góðan afla hafa .
margir trillueigendur hætt r-óðr-
um, því mikil vinna er í landi. —
Mörg íbúðarhús eru í byggingu,
mest hér á Sandi og einnig nokkur
í Rifi. Þá er verið að reisa nokkur
fiskvinnsluhús. Stafar þessi mikla
Ujipbygging af hafnarframkvæmd-
unum í Rifshöfn. Fleiri bát-
ar mundu róa þaðan ef aðstaðan
væri betri í landi til að taka á
móti fiskinum, en bráðlega rætist
úr því þegar nýju fiskvinnslustöðv
amar geta tekið til starfa. Þá hef-
ur verið mikill skortun á íbúðar-
húsnæði og erfitt að fá leigt og
mörg þeirra húsa sem nú er verið
að reisa eru í eigu manna sem
TALSMAÐUR austur-þýzka utan-
ríkisráðuneytisins hefur lýst því
yfir, að Austur-Þýzkaland muni
senda fulltrúa á afvopnunarráð-
stefnuna í Genf til að „stuðla að
hagkvæmum niðurstöðum henn-
ar”.
ætla sér að flytja hingað til Hell-
issands. Þá má ekki gleyma að sam
göngur hingað gjörbreyttust þegar
Ennisvegun var opnaður og eru
íbúarnir hér mjög bjartsýnir á
framtíðina.
Þyrla bjargaði
vísindamönnum
ÞRÍR vísindamenn, tveir Danir,
Börge Fristrup, 37 ára, og Svend
Bendix-Almgren, 33 ára, báðir frá
Kaupmannahafnarskóla, og Banda
ríkjamaðurinn Robert Nichols, 61
árs, komust fyrir nokkru í hann
krappan á lítilli eyju fyrir utan
Thule við Norðvestur-Grænl. ís-
brjótur hafði flutt þá til Iítillar
eyjar í Carey-eyjaklasanum, sem
liggur u. þ. b. 50 sjómílum norð-
vestur af Thule í því skyni aff
rannsaka útbreiðslu Grænlands-
íssins á ístímanum. Þeir höfðu ráff-
gert aff dvelja um kyrrt í þrjá
daga við atliuganir sínar en vegna
illveðurs reyndist það ekki unnt
og var þeim bjargað við illan leik
af þyrilvængju í fyrradag. Flutti
hún þá aftur um borð í ísbrjótinn.
ÖLL BYLI A VEST-
FJÖRÐUM UÓSMYNDUÐ
Isafirði, 4. ágúst — BS
BÚNAÐARSAMBAND Vestfjarða
hefur ákveðið að gefa út mynd-
skreytta bók um öll sveitabýli á
Vestfjörðum og ábúendur þeirra.
Undirbúningur þessa jarðatals
er hafinn. Stjórn Búnaðarsam-
bandsins hefur samið við Jón Að-
albjörn Bjamason, ljósmyndara á
ísafirði, um að taka ljósmyndir af
öilum býlum á sambandssvæðinu,
en sambandssvæði B. V. nær yfir
Barðastrandarsýslu, Norður-ísa-
fjarðar- og Vestur-ísafjarðarsýsl-
ur. Einnig á hann að taka myndir
af núverandi ábúendum á hverri
íörð. Alls verða ljósmynduð 350
býli. Einníg verða þær eyðijarðir
ljósmyndaðar, þai- sem enn er
upoistandandi sæmilegur húsa
kostur. Jón Aðalbjörn er fyrir
nokkru byrjaður á þessu verki, en
því á hann að hafa lokið fyrir
baustið.
DEILDARFORSETINN
SAT A HROSSHÁRI!
UM margra ára bil — jafnvel
öldum saman — höfðu gárung
arnir” slegið ryki í augu lá-
varðardeildar brezka þingsins
með því að troða hrosshári í
sæti deildarforsetans, „The
Woolsack”, í stað þess að
stoppa það ull eins og vera bar
samkvæmt ævagamalli hefð.
„The Woolsack” hafði verið
stoppað ull frá því á 14. öld
sem tákn mikilvægustu auð-
lindar Bretaveldis eða réttar
sagt þeirrar auðhndar, er menn
þá hugðu að væri Bretaveldi
mikilvægust.
Það var einn meðlima lá-
varðardeildarinnar, Taylor lá-
varður, sem gerði þessa hræði-
legu játningu í fyrsta sinn op-
= ri''"i-1p<Ta { síðustu v>ku og
sagðist honum svo frá, að þessi
„óttalegi leyndardómur” hefði
komið í ljós árið 1938, er
stoppa átti hið lúða og lang-
þreytta sætl deildarforsetans á
nýjan leik. Hrosshárið var auð-
vi+að fjarlægt samstundis og í
stað þess sett ull fná samveldis
löndunum . Ástralíu, Nýja-Sjá-
landi og Suður-Afriku.
Þar verða í rauninni þrjár laugar, stór útiJaug, innilaug og dýfingalaug. Við
laugarnar verður guðubað og sérstakar vaðlaugar fyrir yngri kynslóðina.
NYJU LAUGARNAR TIL-
BÚNAR NÆSTA VOR
SUNDLAUGIN, sem nú er aff
rísa viff Sundlaugaveg, verffur
í tölu stærstu útisundlauga í
heiminum, þegar hún verður
tekin í notkun. Alþýffublaðiff
ræddi í gær lítillega viff Úlfar
Þórffarson lækni, en hann er
formaffur bygginganefndar. —
Úlfar kvaðst ekki geta
sagt nákvæmlega til um stærff
laugarinnar en kvaff óhætt að
segja að í henni gætu svamlað
fleiri þúsund manns án þess að
hún yrði full.
í rauninni er um að ræða
þrjár laugar. Eina stóra úti-
laug, innilaug, og svo sérstaka
dýfingalaug, sem einnig er úti.
Baðklefar eru svo í áfastri
byggingu, og einnig gufubað.
Laugamar verða ekki mjög djúp
ar, en þó svo að sú stærsta
þeirri uppfyllir allar kröfur
sem gerðar eru til laugar til
notkunan í alþjóðasundkeppni,
og sundknattleik, og verða á-
horfendapallar fyrir um 3000
manns. Til enn frekara öryggis
verða laugarnar svo upplýstar,
undir vatnsborðinu, og á þeim
um 40 gluggar, þar sem hægt
er að fylgjast með þeim sem á
sundi eru undir yfirborðinu.
Jafnframt gufubaðinu verða
svo nokkrar „Snorralaugar”
þar sem menn geta legið og lát-
ið sér líða vel, og einnig vað-
laugai' fyrir yngri kynslóðina,
og heit steypiböð útivið. Einníg
geta þeir, sem vilja, setið og
sleikt sólskinið í grasgrænni
brekku, meðan þeir horfa á
það sem fram fer í lauginni. Á-
ætlað er að þetta mikla mann-
virki verði tekið í notkun í
vor og þá jafnframt gömlu laug
arnan lagðar niður. Ekki verð-
ur laugin opnuð í sínu endan-
lega formi, ýmsar breytingar
munu eftir að eiga sér stað,
bæði verður byggingin ekki full
gerð, og svo kann að vera að
einhverjar breytingar verði
gerðar á teikningum. Það eru
ýmis bæjarfyrirtæki, er sjá um
bygginguna og mun nánari
grein gerð fyrir því á sínum
tíma. Arkitekt er Einar Sveins-
son.
t- M
ÉlHPi
- {
iMÉÉÉ
IMÍ
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 8. ágúst 1965 5,