Alþýðublaðið - 08.08.1965, Blaðsíða 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull-
trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900- 14903 — Auglýsingasími: 1490G.
Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-
blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
Utgefandi: Alþýðuflokkurinn.
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNAlBLAÐIÐ er fimmtugt um þessar mund
ir. Þetta gagnmerka tímarit er að því leyti óvenju-
legt, að það sækist ekki eftir fjölda lesenda, heldur
er ætlazt til, að það sé aðeins í höndum lækna. Hins
vegar gerir það mikið gagn á því sviði, enda þurfa
læknar rnú á dögum að hafa sig alla við að fylgjast
með framförum og breytingum, ekki sízt á sviði lyfja
framleiðslunnar. |
í afmælishefti Læknablaðsins ritar Jóhann Haf 1
stein heilbrigðismálaráðherra ávarp, þar sem hann
ræðir hugmyndina um sérstakt heilbrigðismálaráðu
neyti, sem enn er ekki til. Kemur án efa fyrr eða síð
ar að stofnun sérstaks ráðuneytis fyrir heilbrigðis-
mál, og gæti þá einnig komið til álita einhver skipu
lagsbreyting varðandi embætti landlæknis og skrif-
stofur ríkisspítalanna.
í þessu sambandi er rétt að benda á, að sjálf
ráðuneytin, sem ríkisstjórnin styðst við í daglegum
störfum, hafa vaxið hægt undanfarna áratugi, enda
þótt verkefni þeirra hafi margfaldazt. Hinn mikli
vöxtur ríkisbáknsins, sem svo er kallað, hefur að
mestu leyti verið í einstökum ríkisstofnunum, sem
eru utan við ráðuneytin. Forstjórar slíkra stofnana
berjast hver fyrir sig og fylgja yfirleítt lögmáli Park
insons rækilega. Hins vegar eru ráðherrar hér á landi
viðkvjæmir fyrir opinberri gagnjr$ni og þurfa að
sækja aukrnn kostnað ráðuneyta beint í ríkissjóð,
svo að þar hefur verið meiri fyrirstaða. Það er íhug-
unar vert, hvort þessi þróun er æskilegt. Væri ekki
rétt að draga úr vexti ríkisstofnana, en auka starfs-
krafta sjálfra ráðuneytanna?
VANRÆKSLA
Dr. TÖMAS HELGASON ritar í Læknablaðið at
hyglisverða grein, þar sem hann sýnir fram á, hve
■aðstaða tiT lækningar geðsjúkdóma hafi verið van-
rækt hér á landi. Miklar framfarir hafa orðið í þekk
' ingu á þessum kvillum og lækningu þeirra, og er nauð
(synlegt fyrir þjóðina að hagnýta þá þekkingu vel.
' Til þess þarf margvíslega aðstöðu, sem stenzt kröf
‘ ur nútímans án þess að setja stimpil á sjúklinga, eins
og hætt hefur verið við hér á landi.
Miklar sjúkrahúsabyggingar hafa staðið yfir, og
er vonandi að þar verði bætt úr vanrækslu liðinna
ára. Þarf bæði að auka sjúkrahúsarými og endur-
skoða ýms ákvæði tryggingarlöggjafar viðkomandi
geðs j úkdómum.
t
Auglýsingasíml
ALÞYDUBLAÐSINS
er 14906
4 8. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FJALLAJEPPINN HAFLINGER
nu
legur
á íslandi
Ein elzta bifreiðaverksmiðja heims, Steyr-Daimler-Puch A.G í Graz og
Vín í Austurríki framleiðir alveg nýj a gerð jeppabifreiða til notkunar við
erfiðustu aðstæður og í landbúnaðinum.
HAFLINGER er léttasti jeppi heims. með undraverðum afköstum.
HAFLINGER-jeppinn verður til sýnis að Baldursgötu 10 á þriðjudaginn 10.
og miðvikudaginn 11. ágúst kl. 4—8 e.h. Þá verður einnig tæknifræðingur
frá Graz-verksmiðjunum í Austurríki til viðtals fyrir áhugamenn.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
S K O R R I H F.
Bakkakoti, Skorradal
Skrifstofur í Reykjavík: Baldursgötu 10
Sími 1-81-28
GLEÐIHÁTÍÐ EDA
SORGARMESSA?
ORRUSTA, sem Danir og Svíar
háðu sín á milli fyrir 400 árum,
sem er ein af skelfilegustu stríðs-
minjum, þessara þjóða, hefur nú
sett allt í bál og brand í hinum
friðsama bæ, Varberg, sem er á
vesturströnd Sviþjóðar. Orsök
þessa nýja ófriðar er að Malm-
gren nokkur, sem er yfirmaður
herdeildar, sem staðsett er á þess-
um slóðum, ætlar að halda upp
á 400 ára gamla innrás Svía í
Varberg. í ágúst árið 1565 her-
tóku Svíar bæinn og hröktu Dani
úr honum, þetta var í sjö ára
striðinu. Síðar hröktu danskir
Svía aftur úr bænum.
Malmgren ofursti ætlar hinn
21. ágúst næstk. að halda mikla
hersýningu, þar sem 800 her-
menn í einkennisbúningum frá
16. öld munu sýna hvernig Sví-’
arnir tóku Varberg með skyndi-
áhlaupi á sínum tíma, afmælis
ins verður einnig minnzt með
fleiri skrautsýningum. Sagnfræð-
ingurinn og fyrrverartdi yfirsafn-
vörður Albert Sandklef hefur nú
mótmælt þessum skrípaleik harð-
lega óg snúið sér til ríkisstjórn-
arinnar og heimtar að komið
verði í veg fyrir þessa ósmekk-
legu sýningu.
Sandklef bendir á að taka Var-
bergs sé eitt af ógeðslegustu
dæmum um hernað á Norðurlönd-
um og bendir á, að þarna hafi
sænski innrásarherinn hagað sér
mjög grimmdarlega, brennt bæ-
inn, nauðgað konum og drepið
karlmenn. Sandklef heldur fram
í bréfi til ríkisstjórnarinnar að
ekki sé minnsta ástæða til að
halda upp á> þann atburð, þegar
sænskir hermenn „slátruðu for-
feðrum okkar,” og sé það ekki
sæmilegt menningarþjóðfélagi.
Það eigi ekki að halda gleði-
hátíðir til’ minningar um mann-
dráp, og eigi að minnast þessarar
orrustu á einhvern hátt eigi ekki
að halda neina gleðihátíð, hér sé
um að ræða stríðssýningu, sem
eigi að sýna sögulega heimild og
minna nútímahermenn á harðsnú
inn striðsvilja fyrirrennara
þeirrá. Méiningin er að útskýra
fyrir þeim hvernig miðaldaher-
menn höguðu sér og um herfræði
16. aldai’.
Ríkisstjórnin hefur enn enga
afstöðu tekið í málinu og en»i
munnhöggvast íbúarnir í Varberg
um það, hvort halda skuli upp á
innrásina eða ekki
Hjóll»arðavi$gerðir
OPIÐ ALLA DAGA
(LÍKA LAUGAKDAGA
OG SUNNUDAGA)
FRÁ. KL. 8 TIL 22.
Gúmmívinnustofan h.f.
Skipholtl 35, ReykJavÖc.
Simar: 31055, verkstæílff,
30688, skrlfstofan.