Alþýðublaðið - 08.08.1965, Síða 6
INN
C
1. CLAUDIA Cardinale, 24
ára, U ikur nú í stríðsmynd á
-Spáni á móti þeim Alain Delon og
Anthonv Quinn. Claudia leikur
aisírska stúdínu, sem njósnar fyr-
ir FLN, verður skotin í Alain
-Delon o.s.frv. Hér sést hún klædd
í anda myndarinnar.
2. Hérna er Claudia komin úr
FLN-uniforminu og hefur brugðið
sér í Chaplins-gervi til að
skemmta samstarfsmönnum sín-
um í vínnuhléi. Það virðist vera
í tízku í sumar að leika Chaplin:
Brigitte Bardot, erkióvinur Clau-
. diu, gerði það í Mexíkó á dögun-
um og hin sænska Anita Lind-
blom gerði það í þarlendri revíu.
3. Alain Delon neytir hér
„knosara-hæfileika” sinna og
striplast með Claudiu á strönd-
inni. í rauninni er hann gamall
elskhugi hennar en 1964 giftist
hann Ijósmyndaranum Nathalie
Barthéléy, og eiga þau einn son
barna, Anthony, sem er eins árs.
En þó að CC hreppti ekki Alain,
hreppti hún hins vegar Silfur
bandið (Óskars-verðlaun Ítalíu)
fyrir skömmu fyrir leik sinn í
uýrri kvikmynd.
Brúðkaupsíerðin
endaði í skurði
SVO óheppilega vildi til, þegar
dönsk nýgift hjón voru á ferða-
lagi í Noregi, til að halda upp á
brúðkaupið, að bíllinn, sem þau
voru á, fór út af þjóðveginum og
niður í skurð. Atburður þessi átti
sér stað síðastliðinn mánudag 5
km. norðan við Fokkstua í Nor-
egi. Bæði hjónakornin meiddust
nokkuð og voru fyrst flutt til
læknis í Dombás, en síðan á
sjúkrahúsið í Lillehammer, þar
sem þau liggja enn.
Slysið varð við slæma beygju
og er talið sennilegast, að öku-
maðurinn hafi sofnað við stýrið.
Píanóleikarinn Bud Powell, sem
fyrir skömmu var skýrt frá að
lægi fyrir dauðanum er nú látinn,
41 árs að aldri. Banamein hans
var lungnabólga en síðustu árin
hafði hinn snjalli jazzpíanisti verið
þjáður maður, — bæði til likama
og sálar. Bud Powell var einn
snjailasti maður á sínu sviði með
an hann var og hét og jazzunn
endur um heim allan eru djúpt
snortnir við fráfall hans.
:
.
ísí:n . K ■. ^ Sí
Herútboð
BANDARÍSKA varnarmálaráðu-
neytið kvaddi nú fyrir skömmu
27.400 manna viðbótarlið til her-
þjónustu í septembermánuði og
33.600 í október. Þetta er mesta
herkvaðning í Bandarikjunum allt
frá Kóreustyrjöldinni. Herkvaðn-
ingin í september fór 17.000
mönnum fram úr fyrirframgerðri
áætlun. Þetta viðbótarherútboð er
afleiðing þess, að Lyndon B. John
son forseti hefur tekið ákvörðun
um að senda 50.000 hermenn til
viðbótar til Suður-Vietnam.
Elzti Rússinn
á ferðalagi
HANN Sjirali Mislinov, sem er ' Leiðin er um 60 km. og fór hann
nú 160 ára gamall, og viðurkennd | til skiptis í bílum og á hestum.
ur sem elzti íbúi Sovétríkjanna, j Honum leizt bara nokkuð vel á
fór í sína fyrstu ferð núna um ^ Baku, en hann hafði aðeins séð
daginn, samkvæmt upplýsingum borgina á myndum áður. Allra
Tass fréttastofunnar. Fór Sjirali ! bezt kunni hann við sig úti í sveit-
gamli frá þorpinu, sem hann býr inni, þar sem um það bil helming
í, en það er í Azerbaidsjan, yfir 1 ur f jölskyldu hans býr, eða nálægt
til borgarinnar Baku, sem íslend- j 100 af hinum 200 afkomendum
ingar þekkja úr skipafréttunum. i hans.
£ 8. ágúst 1965 - ALÞÝflUBLAÐIÐ
ÞETTA er hin góðkunna blökkusöngkona Eartha Kitt með hvítu
barni sínu, hinni þriggja ára dóttur Kitt, sem liún eignaðist með
hvítum manni, kaupmanni, sem hún skildi við fyrir skömmu. Þær
mæðgur dveljast um þessar mundir hér á Noröurlöndum, nefnilega
í Danmörku, þar sem Eartlia skemmtir í Tívólí og gerir niikla lukku.
Eartha segir, að þær mæðgur hafi það ágætt, þó að pabbinn sé liorf-
inn út í buskann.
— Hann er einmana þessi litli
snáði, þó að foreldrar hans séu
„Númer reykinga-
mannanna"
EITT númeranna í flestum
bandarískum símaskrám hljóðar
upp á „Smokers Dial” eða m. ö.
o. „númer reykingamannanna.”
Þar er svarað allan sólarhringinn
og geta forfallnir reykingamenn,
sem hafa í hyggju að hætta, leit-
að sér uppörvunar og styrktar. —
Væri ekki tilvalið að koma á svip-
uðu fyrirtæki hér uppi á íslandi?
María Schell í
skilnaðarmáli
ÞÝZKA leikkonan Maria Scliell,
39 ára, og maður hennar Horst
Hachler, eiga nú í skilnaðarmáli
og berjast bæði um yfirráðin yfir
3-4 ára gömlum syni sínum, Oli-
ver. Talið er, að upptök skilnað-
arins séu hjá Mariu, sem fest hafi
ást á Veit Relin, sem lék á móti
henni í hjúskapardrama Ibsens,
„Nora.” — Maria og Horst hitt-
ust fyrst í Júgóslavíu 1955 við
töku kvikmyndarinnar „Síðasta
brúin,” giftu sig í apríl 1957 og j
fæddist sonur 1962. Þau hafa lif-
að hamingjusömu heimilislífi á rík
mannlegu heimili sínu í Wasser-
burg síðustu ár, og var húsið
nefnt „Marienhorst” af almenn-
ingi...
bæði frægir og ríkir. Nafn hans
er Nicolas Charrier og hann er
sonur sjálfrar Brigitte Bardot og
fyrrverandi eiginmanns liennar,
Jacques Charrier. Hvorki mamm-
an né pabbinn hafa tíma aflögu
til að sinna litla syninum, hann
fer á mis við móðurumhyggju og
föðurástúð, en reikar um göturn-
ar með barnfóstrunni. Hann hef-
ur farið þess á mis, sem börn-
um er dýrmætast, vegna þess að
foreldrarnir eru uppteknir af
sjálfum sér og heimurinn af þeim.