Alþýðublaðið - 08.08.1965, Side 10
iiiiinimhiiíiliimiitniiiiiiimiiiiiuiiliiiiiiiimiiiuiiiMjt
Bréfakassinn.
Framhald úr opnu.
um við brunnið, að íhaldinu
væri annað betur gefið en að
bera umhyggju fyrir þeim, sem
þarna eiga hagsmuna að gæta.
Rétt er að geta þess, að þau
frávik, sem heimiluð voru í
Reykjavík, voru einnig heimil-
uð á ísafirði, auk þeirra mikils-
verðu atriða, sem ekki voru
heimiluð þar.
Þá má einnig minna á það,
að á ísafirði eru svo til öll
gjöld almennings til bæjarfé-
lagsins, önnur en fasteigna-
skattur, vatnsskattur og lóða-
leiga, innifalin í útsvarsupp-
hæðinni, en ekki lögð á sér-
staklega, t. d. sem sorphreins-
unargjald, gangstéttagjald,
skipulagsgjald o. fl. eins og
framkvæmt er í Reykjavík. Þar
verða t. d. húsbyggjendur að
greiða til borgarsjóðs verulega
upphæð fyrir að fá byggingar-
lóð undir hús sín, og er það
alls ekki léttbær aukaskattur á
allan almenning. Slík skatt-
heimta er óþekkt á ísafirði. út-
svörin eru látin nægja til að
standa undir þeim kostnaði
sem leiðir af gatnagerð, vatns-
og skólplögnum o. s. frv. Aftur
á móti hafa ísfirðingar, með
framlögum úr bæjarsjóði, sem
aflað var og er með útsvörum,
myndað sérstakan sjóð, Bygg-
ingalánasjóð ísafjarðar, sem
hefur það hlutverk að lána
þeim, sem íbúðarhús byggja í
kaupstaðnum, allt að 75 hiíc.
und króna lán með hagstæðum
kjörum, (afborgunarlaus tvö
fyrstu árin, vextir lágir, lánað
út á 3. eða 4. veðrétt) Þetta er
mikilvægur stuðningur við hús-
byggjendur, og mætti m. a.
verða öðrum til eftirbreytni,
þar á meðal höfuðborginni.
Af framangreindu má sjá, að
það er næsta villandi þegar
höfundur Reykjavíkurbréfsins
og aðrir málsvarar Reykjavík-
uríhaldsins eru að reyna að
telja almenningi trú um, að út-
svörin séu lægri þar en ann-
ars staðar, enda sést bezt hve
fátt er til fanga, sem af er að
státa hjá þessum herrum, þeg-
ar þeir seilast svo langt í sjálfs
hólinu og blekkingariðjunni, að
geta þess sérstaklega sem mik-
illar tillitssemi við þá snauðu
að þeir hafi fellt niður öll út-
svör 1500 kr. og lægri, þar sem
almenningur veit það vel, að í
kaupstöðum er skylda sam-
kvæmt útsvarslögunum að fella
umrædd útsvör niður. Og þetta
atriði, að fara í þessu efni eftir
landslögum, er aðalskrautfjöðr
in í útsvarsálagningu höfuðborg
ar íhaldsins. ísfirðingur.
Skólastjórar - Kennarar
vegna vaxandi notkunar á Linguaphone tungumálanám-
skeiðum í skólum, eru það vinsamleg tilmæli vor að
þér gerið pantanir yðar sem allra fyrst.
Hljóðfærahús Reykjavíkur hf.
Hafnarstræti 1. — Sími 13656.
Alþýðublaðið
vantar barn eða ungling til blaðburðar, um
tíma á Hvjrfisgötu efri.
Benzínsala Hjólbarðaviðgerðir
Opið alla daga frá kl. 8—23.30.
Hlélbarðaverkstæðið Hraunbolt
-lorni Llndargötu og Vitastígs. — Síml 23900
í. s. í.
LANDSLEIKURINN
K. S. í.
ISLAND - IRLAND
fer fram á íþróttaleikvanginum í Laugardal á morgun (mánudag) og hefst kl.
20.00. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur frá kl. 19,30.
Dómari: Einer Poulsen frá Danmörku. — Línuverðir: Magnús Pétursson og
Guðmundur Guðmundsson.
Aðgöngumiðar og leikskrá selt úr sölutjaldi við Útvegsbankann í dag og á
morgun og við leikvanginn frá kl. 18,45 mánudag. Börn fá ekki aðgang að
stúku, nema gegn stúkumiða. — Vérð aðgöngumiða: Sæti kr. 150.00. Stæði
kr. 100,00. Barnamiðar kr. 25,00.
Forðist þrengsli og kaupið miða tímanlega
Knattspyrnusamband íslands.
»
Happdrætti Háskóla íslands
Á þriðjudag, verður dregið í 8. flokki
2.300. vinningar að fjárhæð 4.120.000 krónur.
Happdrætti Háskóla íslands
Á morgun eru seinustu forvöð að endur-
nýja-
8 flokkur.
2 á 200.000 kr. 400.000 kr.
2 á 100.000 — .. 200.000 —
52 á 10.000 — . . 520.000 —
180 á 5.000 — . . 900.000 —
2.060 - 1.000 — .. 2.060 000 —
Aukavinningar:
4 á 10.000 kr. .. 40.000 kr.
2.300 4.120.000 kr.
aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiijiiiiimiiiiiMiiimiiiiiuiiiiiiimiiiiiHitiiuininiiUiiiiimiiimimiiiuumiumuMuiiHnmHmmmmmmmmHumHiHmMummmm! m
iiiiiimiiimimimmmimiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimimmmmmimmmiumiimmii
imiimm
10 8. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
r
fiimiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiuiHiiiiimiimiiiiiimmmiiiimm