Alþýðublaðið - 08.08.1965, Qupperneq 15
Rhodesía
Framhald af 1. síðu.
stæði að veruleika gæti borið
heilladrjúgan árangur innan
landamæra ríkisins.
lan Smith hvatti landsfundinn
til að styðja hann persónulega og
styðja hann í samningaviðræðun-
um við brezku stjórnina um sjálf-
stæði án nokkurra skilyrða.
Kínverjar
Framhald af 2. síðu
ilvægur liður í hinni sósíalistisku
sókn til kommúnismans.
★ Reutersfrétt frá Peking herm-
ir, að varaforsætisráðherra Kína,
Li Hsien-piao hafi í gær hyllt Rú-
mena fyrir sjálfstæða stefnu
þeirra og glæsilegan árangur í
hinni „sósíalistísku uppbyggingu.”
Ráðherrann sagði í ræðu, er
liann hélt fyrir rúmenskum ráð-
herrum, að efling vinsamlegra
samskipta og samvinnu Rúmena og
Kínverja sýndi að sjálfstæðis
stefna Rúmena væri vænleg til ár-
angurs og að áhrif þeirra mundu
sífellt aukast á alþjóðavettvangi.
| Úrval af bílum - ÚRVALSBÍLUM
ÞÉR getiö valiö úr 4 gerðum af Opeí Kadett: Kadett fólksbíllinn með 46 ha vél,
fjórskiptan gírkassa, þægileg skálarlaga framsæti, sparneytinn, rúmgóður og lipur.
Kadett ”L” Deluxe-bíllinn með alla Kadett eiginleika og auk þess 24 atriði til þæg«
inda og prýði, s. s. rafmagnsklukku, vindlakveikjara, teppi, hjóldiska .....
Látinn
Framhald <af síðu 1,
bifreiðastjóri og á efri árum bóka
vörður.
Ungmennahreyfingin snart Svein
björn fyrst, en við stofnun Alþýðu-
flokksins og Alþýðusambandsins
fyrir tæplega hálfri öld fann hann
köllun sína. Var hann aðalhvata-
maður að stofnun Verkalýðsfélags
Akraness og lengi formaður þess.
Mæddi hvað mest á honiun á
fyrstu árunum, er samtökin mættu
takmörkuðum skilningi almenn-
ings og beinni andstöðu atvinnu-
rekenda.
Sveinbjörn gegndi fjölmörgum
trúnaöarstööum um ævina, ekki
aðeins innan verkalýðshreyfingar-
innar og Alþýðuflokksins, heldur
og á sviði bæjarmála. Hann var
sívakandi, síhvetjandi sér yngri
menn og síhugsandi um velferð
þeirrar vinnandi alþýðu, sem hann
lielgaði öll störf sín.
Körfubolti
Framhald af 11. síðu-
Pólland-Sovétríkin 61-75
Júgóslavía-Ítalía 83-82
,S víþ j óð-Ungver j aland 66-79
Rúmenía-V-Þýzkaland 74-63
Finnland-Spánn 58-65
Frakkiand-A-Þýzkaland 66-57
Tékkóslóvakía-Grikkland 116-71
Búlgaría-Ísrael 63-51
Pólland-Ítalía 86-70
Sovétríkin-Júgóslavía 58 49
Endanleg úrslit:
1. Sovétríkin
Evr'ópumeistarar.
2. Júgóslavía
3. Pólland
4. ítaíia
5. Búlgaría
6. ísrael
7. Tékkóslóvakía
8. Grikkland
9. Frakkland
10. Au.-Þýzkaland
11. Spánn
12. Finnland
13. Rúmenía
14. V-Þýzkaland
15. Ungverjaland
16. Svíþjóð
Kadett Coupé, sportbíllinn með 54 ha. vél, útlitseinkenni sportbíla og deiuxe útbúnað.
Caravan lOOO, station bíllinn fyrir a) 2 farþega og 50 rúmfet af farangri b) 4-5 far*
þega og stóra farangursgeymslu c) 6-7 farþega (með barnasæti aftast).
Auk þessa má velja úr litum, litasamsetningum og fjölda aukahluta til þæginda
og prýði.
Hringið, komiö, skrifið, - við veitum ailar upplýsingar.
ÁRIWÚLA 3, SÍMI 38900.
Norðmenn mótmæla lönd-
unarleyfi til íslendinga
FRÉTT ÞESS EFNIS, að ís-
lenzkt síldarflutningaskip mundi
ianda farmi sínum í norskri höfn,
hefur vakið mikla og „réttláta”
reiði meðal norskra sjómanna og
útgerðarmanna, að því er segir í
norska fiskveiðitímaritinu „Fisk-
aren.”
Eiskimannasamband Suður-Mæ-
is og Útgerðarmannafélag Ála-
sunds hafa tekið málið til athug-
unar. Mótmæla þessi samtök
löndunarleyfi til íslendinga á
þeim forsendum, að miklir lönd-
unarerfiðleikar séu fyrir norska
báta og vegna þess, að íslending-
ar hafi ævinlega þverneitað að
veita Norðmönnum samsvarandi
réttindi í höfnum hér við land.
Einnig hafi á síðustu árum verið
erfitt fyrir norska báta að fá af
greiðslu á ís og olíu í íslenzkum
höfnum.
Bjarne Flem, stjórnarmeðlim-
ur í Fiskimannasambandi Suður-
Mæris, hefur haft stöðugt sam-
band við Fiskimannasamband Nor
egs vegna máls þessa. Hann bend
ir á, að svo framarlega sem síld-
in sé ekki veidd í botnvörpu, hafi
íslendingar leyfi til að landa
henni, en telur jafnframt að nú
sé tími til kominn, að norskir
fiskimenn fái samsvarandi rétt-
indi í íslenzkum höfnum. Sér-
staka áherzlu leggur hann á það,
að norskir fiskimenn geti losað
sig við afla sinn án þess að fara
langar leiðir með ströndum fram
í því skyni.
Formaður Útgerðarmannafé-
lags Álasunds, Johs. K. Vartdal,
leggur mikla áherzlu á, að út-
gerðarmenn líti málið alvarlegum
augum. Sérstaklega bendir hann
á tregðu íslendinga gagnvart
„smámunum” eins og þeim, að
leyfa Norðmönnum umhleðslu síld
arafla, sem fer illa í lest, — og
hættulegt getur verið að sigla
með yfir hafið á fiskibátum.
Það veldur mönnum einnig á-
hyggjum, segir í Fiskaren, að ís-
lenzki síldveiðiflotinn leitar nú
mjög til Shetlandseyjasvæðisins,
og hefji hann löndun við Noreg,
vaxa mjög vandamál norskra
snurpunótaveiða frá þvi, sem nú
er.
Tek aS mér hvers konar þýVingar
úr og á ensku.
EIÐUR GUÐNASON
IBggiltur dómtúlkur og sKjala-
þýðandi.
Skipholti 51 - Sími 3?933.
SMURSTÖÐIN
Sætúni 4 — Sími 16-2-27
Bflliim er smurður fljótt og vel.
Seljum allar tegundir af smuroliu
Laugavegi 178. — Simi S80M.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. ágúst 1965 ^