Alþýðublaðið - 10.08.1965, Qupperneq 3
IVSIKIL ÖLVUN
Á ÞJÓÐHÁTÍÐ
Rvík, ÓTJ.
GEYSIMIKIL ölvun var í Vest-
mannaeyjum með'an á Þjóðhátíð-
inni stóð, og læti svo mikil að lögr
reglumenn sem hafa starfað þar í
tæp tuttugu ár, segjast ekki hafa
lent I öðru eins. Ekkert gerðist
þó mjög stórra táðinda.
Vann lögreglan sleituiaust að
því alla dagana að flytja burtu
berserkina, þá föllnu, og þá sem
verst létu af þeim er uppi stóðu.
Týs-menn, sem fengu nú almenni
legt þjóðhátíðarveður í fyrsta
skipti í mörg ár, aðstoðuðu lög-
regluna eftir megni, og einnig
voru inni í dalnum skátar með
tjöld og veittu hjálp undir eft-
irliti læknis. Munu milli 140—50
manns hafa leitað á náðir þeirra,
og meiðslin verið frá skrámum
| upp í beinbrot. Eins og nærri má
geta var mjög glatt á hjalla alls
I staðar og var góða veðrinum þar
nokkuð um að þakka. Segja menn
að þrátt fyrir ýmis óhöpp, hafi há
tíðin tekist ágæta vel.
Skattsekta-
nefnd skipuð
SAMKVÆMT 7. gr. laga nr. 70
21. maí 1965, skal nefnd, er í eiga
sæti ríkisskattstjóri, skattrannsókn
arstjóri og lögfræðingur, er full-
nægir embættissskilyrðum liéraðs- ;
dómara og ráðherra skipar, ákveða |
sektir samkvæmt 1., 3. og 4. mgr. :
greinarinnar, nema ríkisskattstjóri
eða sökunautar óski, að málinu sé
vísað til dómstóla. Ríkisskattstjóri
er formaður nefndarinnar. Nefnd
þessi ákveður og sektir samkvæmt
25. gr. laga nr. 10, 1960, um sölu
skatt, nema fjármálaráðherra eða
sökunautar óski, að máli sé vísað
til dómstóla.
Ráðuneytið hefur með bréfi,
dags. 23. júní sl., skipað Sigurð
Líndal, hæstaréttarritara í nefnd
þessa.
Stal bíl og
Akureyri — GS — OÓ
AÐFARANÓTT sunnudags stal
maður bíl af tjaldstæðinu, sem
hér er. Hann hafði ekki ekið hon-
öðru leyti. emm.
hans. sem hann ók umsvifalaust á
og stórskemmdi bílinn. Við rann-
sókn kom í ljós að bílþjófurinn
var bæði undir áfengisáhrifum og
hafði ekki bilpróf. Þessi óheppni
ökumaður byrjaði á að stela bíl-
lyklunum úr vasa eigandans, sem
hann þekkti lítilsháttar, og eftir
það var auðvelt að stela bílnum.
Húsið sem ekið var á er traustlega
byggt úr steini og skemmdist lít-
ið sem ekkert við áreksturinn.
LAUK
PRÓFI í USA
Reykjavík. —
Jón S. Jónsson, sem um all-
langt skeið hefur skrifað tónlist-
argagnrýni fyrir Alþýðublaðið
lauk í júlí doktorsprófi í tónlist
og tónsmiðum við North Western
liáskólann í Evanston, sem er há-
skólabær, skammt frá Chicago.
Jón lauk við prófið 27. júlí, en
þá stjórnaði hann leik liljómsveit-
ar, sem flutti eingöngu tónsmíðar
eftir hann sjálfan.
ANNIR HJÁ SLÖKKVI-
LIÐINU Á AKUREYRI
Akureyri — GS OÖ geymslunni og urðu nokkrar
MIKIÐ annríki hefur verið hjá skemmdir bæði á húsinu og vörum
slðkkviliðinu hér um helgina. Á sem þar voru geymdar.
föstudagskvöld var það kvatt að K 1---"nrriagskv'öld kom upp eld
Gránufélagsgötu 27. Þar hafði ur í húsinu Lækjargötu 13, sem
kviknað í út frá miðstöð. Eldun- er tveggja hæða gamalt timbur-
inn var fljótlega slökktur og urðu hús með viðbyggingu. Eldurinn
skemmdir ekki miklar. Snemma á kom upp í viðbyggingunni og var
laugardagsmorgun kviknaði í vöru orð’nn töluvert magnaður þegar
geymslu sem sápuverksmiðjan slökkviliðið kom á vettvang. Tókst
Sjöfn á og stendur á Oddeyrar- að ráða niðurlögum lians áður en
tánga. Mikill eldur var í -vöru- i hann breiddist út mn allt húsið.
FJÖLMENNT Á FLUG-
DEGI Á SAUÐÁRKRÓKI
Reykjavlk. — ÓTJ.
FLUGDAGUR sem haldinn
var á Sauöárkróki um helg-
ina fór mjög vel fram, og var
þar mesti mannfjöldi, sem
nokkurntima hefur komiö þar
saman. Hér var ekki um aö
ræöa Flugdag íslands, eins og
eitt dagblaðanna segir, heldur
var þetta „privat” fyrir Norð-
anmenn. Flugdagur íslands
veröur hins vegar haldinn í
Reykjavík 15. ágúst næstk. á
vegum Flugmálaféjflgsins eins
og venjulega.
Flugdagurinn á Sauðárkróki
var settur af Agnari Kofoed-
Hansen, flugmálastjóra, kynnir
var Ásbjörn Magnússon. Flug-
vélar voru ekki eins margar
og gert hafði verið ráð fyrir,
þar eð margar þurfti í loft-
brúna til Eyja. Tólf vélflugur
og tvær svifflugur sýndu þar
getu sína og að því loknu
gafst mönnum tækifæri til
þess að fara i hringflug. Flug-
áhugi er mikill á Sauðárkróki
og þar hefur starfað sviffiug-
klúbbur um nokkurt skeið. —
Einn af stofnendum hans og
forráðamönnum er Hákon
Pálsson, og Alþýðublaðið ræddi
lítillega við hann í gær.
— Flugdagurinn tókst með
ágætum að því er okkur
fannst, og ég vona að hann
verði enn frekar til þess að
ýta undir flugáhuga hér hjá
okkur.
— Hver er flugvélakostur
ykkar nú sem stendur?
— Hann er nú heldur fá-
tæklegur. Við eigum eina svif-
flugu sem við drögum á loft
með spili. Eiginlega var það
fyrst í fyrra, sem við gátum
byrjað. Þetta er búið að vera
mikið strit fyrir þennan fá
menna hóp að koma tækjun-
um fyrir, en nú förum við líka
að njóta ávaxtanna af erfið-
inu.
— Það eru einkum ungir
menn sem skipa klúbbinn —
spyrjum við?
— Jú, nær eingöngu, og
þeir eru sífellt að bætast við,
og við vonum að þegar fé-
laginu vex fiskur um hrygg,
geti það látið kveða dálítið að
sér. Við verðum auðvitað að
fara rólega I sakirnar, því að
fjárráðin eru ekki alltaf mik-
il, en við erum að láta okkur
dreyma um viðbótarflugvélar,
jafnvel vélflugur. Það verður
auðvitað ekki strax, en ég held
að að því komi.
133 á norrænu
Ijóstæknimóti
Reykjavik. — ÓTJ.
LJÓSTÆKNIMÓT, Norrænna
Ijóstæknifélaga veröur haldiö í
Reykjavík dagana 17.-20. ágúst, og
sækja þaö fulltrúar frá öllum hin-
um Noröurlöndunum. Til umræöu
verða m. a. vörumerking heimilis-
lampa, lýsingatækni, skrifstofu-
lýsing, hitun frá Ijósgjöfum, lýsing
listaverka og Ijós sem skynjunar-
f.vrirbæri.
Ljóstæknifélög hafa að mark-
miði hlutlausa fræðslu um allt er
varðar Ijós og hagnýtingu þess,
og beita þau sér fyrir ýmis kon-
ar upplýsingastarfsemi um þessi
mál.
Norrænu félögin eru öll aðilar að
alþjóðasamstarfi og hafa á undan-
förnum árum lagt kapp á að sam
einast um sem flest mál og koma
fram sem einn aðili. Þátttakendur
á mótinu verða alls 133, þar af
83 erlendis frá, en mótið verður
sett af prófessor Steingrími J. Þor-
steinssyni í Hagaskóla. Formaður
Ljóstæknifélags íslands er Aðal-
steinn Guðjohnsen verkfræðingur.
Innbrotsþjófur
vildi kveikja í
Reykjavik. — ÓTJ.
INNBROT var framiö i ísafold-
arprentsmiöju við Þingholtsstræti
á laugardagsnóttina, og gengið;
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. ágúst 1965 3