Alþýðublaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 9
orðið of seint. Mér hefur verið
sagt að á árunum upp úr síðari
heimsstyrjöldinni, þegar karfa-
stofninn úti fyrir Vestfjörðum var
farinn að rétta nokkuð við, hafi
togararnir fyllt sig þar á einum
og tveimur sólarhringum og stím-
að með aflann skemmstu leið inn
á ísafjörð eða Patreksfjörð til að
koma honum í bræðslu. Nú þykjast
þeir gera góðan túr, ef þeir fá
150—200 tonn af þessum furðu-
fiski á hálfum mánuði. Þetta er
enn til staðfestingar á þvi, að
öll „stórdrift” er varhugaverð, —
skofti visindalegan grunn.
Enn er hægt að nefna eitt, sem
Flateyri hefur fram yfir samsvar-
andi vestfirzk pláss. Þar var reist
fyrsta hraðfrystihúsið í Vestur-
ísaf jarðarsýslu. Frystihús ' starfar
þar enn, en hvort það er að stofni
til það sama skortir mig þekkingu
til að fullyrða um.
Þannig má segja, að Flateyri
ALLTAF NÝTT
Brauð
og
kökur
að ógleymdum
Kúmen-
hornunum
BRAUÐGERÐIN
FLATEYRI.
,
Skólabækur
Og
ritföng
Fjölbreytt úrval
, Bokaverzlun
Jóns Eyjólfssonar
FLATEYRI.
við Önundarfjörð eigi sér ákaf-
lega litríka sögu og talsvert mikla
hefð sem framkvæmdastaður. í
dag er varla hægt að sjá þessa
mikinn stað. Flateyri er í Iægð
sem stendur.
Samt eru ekki mörg ár síðan
Flateyri var talsverður umsvifa-
staður. Um miðjan síðasta áratug
hafði Einar ríki veraldlega heill
íbúanna í sínum höndum. Hann
rak þar frystihúsið ísfell — og
hafði tvo togara, eftirlegukindur
síðan fyrir nýsköpun, til að fiska
í hítina. Togararnir hétu Guð-
mundur Júní og Gyllir. Hvoru-
tvegg.ia fornfræg skip, en ekki
eilíf. Að því kom að ekki borgaði
sig lengur að halda þeim sjófær-
um og jafnframt tók fyrir hand-
færafiskirí á þeim slóðum, sem
að Önundarfirði lágu. Var þá
sjálfhætt við útgerðina hjá aðila,
sem hafði margfalda útgerð ann-
ars staðar. Þó er sá frægi Sigurð-
ur ennþá skráður á Flateyri, þó
hann hafi ekki komið þangað til
þessa dags nejma sem gestur.
Þegar gesturinn kemur bílak-
andi til Flateyrar nútímans, verða
fyrst fyrir honum tveir vegar-
tálmar. Undanfarin ár hefur ver-
ið unnið að því að breikka og
endurbæta veginn innan úr fjarð-
arbotni og út í kauptúnið. Unnið
hefur verið beggja megin frá og
í framtíðinni getur svo farið, að
vinnuflokkarnir mætist á miðri
leið. Jafnframt er unnið að stór-
felldum vegarbótum á Breiðadals
heiði. Teknar verða af hinar ill-
ræmdu Skógarbrekkur, en vegur-
inn lagður utan í fjallshlíðinni.
Uppi á háheiðinni verða síðan
gerð löng og mikil jarðgöng.
Þegar komið er út undir kaup-
túnið, eða að beygjunni niður að
þéttbýlinu, blasir við skilti sem á
stendur: „Velkomin til Flateyrar”.
Si sona skiltakurteisi þekkist að
vísu víðar, en það sem stendur
hinum megin á skiltinu heyrir til
undantekninganna. „Góða ferð”
blasir við manni, þegar bilnum er
beint út úr þorpinu aftur.
Engin hús myndi ég kalla reisu
Fiskimjölsverksmiðjan á Sólbakka við Önundarfjörð.
leg á Flateyri, miðað við það sem
maður á nú að venjast, en þar má
sjá ótalin hús, sem hafa verið
reist yfir mannlegt líf eins og það
gerist einfaldast og óbrotnast.
Aðalatvinnutæki staðarins eru
nokkrir fiskibátar og hraðfrysti-
húsið, en í fyrravetur urðu Flat-
eyringar fyrir miklu áfalli, er 2
stórir nýkeyptir bátar fórust svo
að segja sömu nóttina og með
þeim sjö menn.
Erlend skip sækja allmikið
þjónustu inn til Flateyrar. Þar er
vélsmiðja og sjúkraskýli.
Samgöngur að og frá Flateyri
á landi eru greiðar að sumarlagi.
Að sunnan er komið yfir Gemlu-
fallsheiði, sem er lægsti fjallveg-
ur sýslunnar og að norðan yfir
Breiðadalsheiði, sem er hins vegar
sá næsti. Breiðadalsheiði er erfið-
ur fjallvegur á vetrum, brattur og
snjóþungur.
Blómlegt búsýslulíf er í Önund-
arfirði. Þar virðist og miklu minm
af eyðibýlum en í Dýrafirði, sem
er næsti fjörður fyrir sunnan.
Merkustu bæir myndu vera Holt
og Hestur. Annar er frægt höfuð-
ból og prestsetur, en á hinum ólst
Ljósvíkingurinn upp við harðræði
mikið. Prestur Flateyrar situr í
Holti. Þar þjónar nú séra Lárus
Guðmundsson og lætur allmikið
að sér kveða.
Kirkjuból eru fjögur í Önund-
arfirði, en ekki er nema eitt þeirra
kirkjustaður, Kirkjuból í Val-
þjófsdal, sem er utar með firðin-
um sunnan megin. Þá er Kirkju-
ból í Bjarnardal, þar sem þeir
bræður Halldór og Guðmundur
Ingi Kristjánssynir búa stórbúi,
Kirkjuból i Korpudal og loks er
Selakirkjuból.
Yzta byggð í Önundarfirðl
sunnanmegin, er Ingjaldssandur.
Þangað verður ekki komizt landveg
frá Flateyri, nema fara fyrst yfiv
í Dýrafjörð og þaðan um erfiðaa
fjallveg. Norðanmegin er engin
byggð utar en Flateyri, enda und-
irlendi ekkert alla leið út ó
Straumnes.
Önundarfjörður er í heild sæ-
brattur og umkringdur háum f jöll-
um, en undirlendi er nokkuf.t
beggja megin í firðinum innan-
verðum og eins í botninum.
Látum við svo lokið spjalli u:w
Flateyri og Önundarfjörð, mdO
þeirri ósk að rætast megi úr uan
atvinnuna til lands og sjávar ay
fólk geti haldið áfram að iðkw
fagurt mannlíf vestur þar.
II 1
Verztun Smíðum i
fnrpin^ fiiihhiartwinar - ... '.b. jM
VJIGIjJj VJUUUJQI IjjUI IQI huröir, glugga og innréttingar. -;j
FLATEYRI Tökum að okkur allskonar byggingavinnU. ,
Matvörur ' ;
Hreinlætisvörur ; Ig,. j
Glervörur
Vinnufatnaður Tresmiojan Askur I
Tóbak
Sælgæti FLATEYRI SÍMI 71. |
Ö1 og gosdrykkir. V '^t ||
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. okt. 1965 .§•