Alþýðublaðið - 17.11.1965, Blaðsíða 3
Síma landstjórans
í Salisbury lokað
Salisbury, 16. nóv. (ntb-reuter).
í kvöld var ennþá simasambands
laust viö embættisbústað Sir
Humphrey Gibbs landsstjóra i
Salisbury, og skýringar, sem á
\
LIK EINARS
ER FUNDIÐ
LÍK Einars Sigurðssonar fannst
í skurði við Njarðargötu um kl.
11 í gærmorgun. Einar, sem var
61 árs að aldri var til heimilis
að Vesturgötu 50 í Reykjavík. —
Einar sást síðast á gangi við höfn-
ina milli kl. 7 og 8 á sunnudags-
morgun. Þegar beðið var um að-
stoð var hjálparsveit skáta í
Reykjavík kvödd út, og leituðu um
20 manns að Einari frá kl. 2 í fyrri
nótt til hálf sex um morguninn,
en án árangurs. Njörður Snæhólm
lijá rannsóknarlögreglunni sagði
Alþýðublaðinu að tveir vegfarend-
ur hefðu fundið lík Einars af til-
viljun. Gengu þeir fram á það,
þar sem það lá í skurðinum sem
var hálffullur af vatni. Mun Ein-
ar hafa fallið þar ofan í og drukkn-
að.
þessu voru gefnar, stönguðust á.
Ian Smith var að því spurður
hvort hann hyggðist grípa til ann
arra ráðstafana gegn landstjóran
um en að slíta símasambandi við
embættisbústaðinn. Hann svaraði
því til, að enn mundi sennitega
ekki gera meira. En seinna skýrði
upplýsingamálaráðuneytið frá
V”' að síma-sambandinu hefði
ekki verið slitið heldur að bilun,
hefði orðið vegna hinnar miklu
úrkomu. Sir Humphrey hefur
neitað að flyja úr stjórnarhúsinu.
Hann hefur ótakmarkað ferða-
frelsi og fær að taka á móti gest
um.
Stjórnin í Salisbury hélt langan
fund í dag, en engin fréttatil-
kynning var gefin út. Ráðherr-
arnir vildu ekkert segja um af-
stöðu landstjórans. Einn af ráðu
nautum Sir Humphreys sagði, að
aðrir símar í hágrenninu væru í
ágætu lagi. Hann kvaðst hafa
kvartað við póststjórnina en verið
vísað á Ian Smith.
Hvítir og afrískir stúdentar við
háskóla Rhodesíu undirrituðu í
dag skjal, sem afhent var í dag
í stjórnarhúsinu. Þar láta stúd-
entarnir í ljós hollustu við brezku
krúnuna og buðu þjónustu sína
Framhald á 10. síðu.
lan Smith
undirritar
IAN SMITH undlirritar einhliða sjálfstæðisyfirlýsingu
Rhodesíu. Bretar hafa lýst því yfir að stjórn Smiths sé ólögrleg
og eina löglega yfirvaldið í Rhodesíu sé brezki landstjórinn,
Sir Humphrey Gibbs. Hann hefur nú ekkert samband við um-
heiminn þar sem sima hans hefur verið lokað.
Fyrirlestur um sálfræðileg-
ar bókmenntaskýringar
'OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO'OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Ný greinargerð væntan-
leg um umferðargjaldið
Sigurjón Björnsson sálfræðing-1
ur flytur fyrirlestur á vegum
Stúdentaráðs Háskóla íslands í |
kvöld, miðvikudaginn 17. nóv. kl. j
21 í 1. kennslustofu háskólans og !
er öllum heimill aðgangur. Fyr-
irlesturinn nefnist „Sálfræðileg-
ar bókmenntaskýringar” og fjallar
m. a. um tilraunir sálarfræðinnar
og þá sérstaklega málkönnunar-
innar til að útskýra bókmennta-
verk með hliðsjón af skapgerð og
æviferli höfundanna. Mun sál-
fræðingurinn ræða um tilgátur
um upptök skáldgáfunnar og
hvaða samband geti verið með
skáldgáfu og sálsýki. Þess má og
geta, að ekki alls fyrir löngu kom
út bók eftir Sigurjón Björnsson,
sem nefnist „Leiðin til skáld-
skapar” og fjallar um Gunnar
Gunnarsson.
Sem áður segir verður fyrir-
lesturinn fluttur í kvöld í 1.
kennslustofu liáskólans og hefst
kl. 21. Öllum er heimill aðgang-
ur.
I Reykjavík. — EG.
Ingólfur Jónsson sarrigöngumála-
ráðherra skýrði frá því á fundi
neðri deildar í dag, að væntan-
leg væri ný greinargerð frá ráðu-
neytinu um umferðargjaldið á
Keflavíkurveginum og þá sérstak-
lega að því er varðar gjöld fyrir
bíla, sem eru yfir fimm tonn að
stærð.
Jón Skaftason (F) mælti í gær
fyrir frumvarpi um breytingar á
vegalögum, en það gerir ráð fyrir
að felld verði úr gildi reglugerðin
um innheimtu umferðargjalda af
Keflavíkurveginum nýja, en
heimild til að ákveða umferðar-
gjald þess í stað sett í vegaáætl-
un, en ekki látin vera hjá ráð-
herra eins og nú er. Sagði Jón,
að lækka mætti gjaldið af stærri
bílunum mikið og samt borga veg
inn að fullu upp á 20 árum.
Ingólfur Jónsson samgöngu-
málaráðherra <S) sagði, að um-
ferðargjaldið væri að flestra dómi
sanngjarnt, og væri fjarri því að
bílstjórar yndu gjaldinu illa. —
Vörubilstjórar hefðu átt við sig
viðræður um gjaldið og nú væri
væntanleg ný greinargerð frá sam
göngumálaráðuneytinu er einkum
mundi fjalla um gjaldið fyrir
stærri bílana, og hefðu vörubíl-
stjórar ákveðið að bíða með mót-
mæli unz þeir sæju hvað í þeirri
greinargerð mundi sagt. Ráðherra
kvað frumvarp Jóns vera ótíma-
bært og byggt á skökkum for-
sendum.
Jón Skaftason kvaddi sér
hljóðs aftur og svaraði ráðherra
honum nokkrum orðum, en að því
búnu var umræðunni frestað.
Eldur í bát
Akureyri. — GS-ÓR.
SLÖKKVILIÐIÐ á Akuréyri
var tvisvar kallað út í gærmorg-
un. í fyrra skiptið hafði fjögurra
Framhald á 10. síðu.
Ný revía 1 Sigtúni
Reykjavík. — ÓR.
ÞESSA DAGANA er að Ijúka
æfingum á nýrri revíu sem sýnd
verður i Sigtúni á næstunni. Mun
það vera borgarbúum fagnaðar-
efni, þvi að langt er nú liðið, síðan
rcvíur hafa verið settar á svið
hér, en þær voru geysivinsælt
skemmtiefni hér áður fyrr, þegar
þær voru upp á sitt bezta.
Blaðið náði í gær tali af Sig-
mari Péturss.vni veitingamanni í
Sigtúni, en liann stendur fyrir
flutningi reviunnar. Hann sagði,
að það hefði verið nokkuð langur
aðdragandi að þessu revíumáli, og
hefði hann lengi haft hug á að
ráðast í slíkt fyrirtæki, því að
allt of lítið væri nú orðið flutt
af léttu skemmtiefni. Sigmar var
tregur til að upplýsa nafn þessar-
ar nýju revíu, en kvað hana vera
í mjög léttum dúr, að mestu
byggða á tónlist, en leikarar væru
fimm talsins. Hann sagði æfingarn-
ar hafa gengið vel og væri þeim
nú langt komið, en ennþá væri
samt ekki fullákveðið hvenær
frumsýning yrði. Sigmar sagði rev-
íuna lið I þeirri viðleitni sinni
að bjóða gestum Sigtúns líflegt
skemmtiefni, og kvaðst gjarnan
vilja komast í samband við aðila,
sem ættu slíkt efni í fórum sin-
um.
Jólafargjöld
til íslands
HINN 1. desember nk. ganga
hin lágu jólafargjöld Flugfélags
íslands í gildi.
Jólafargjöldin gilda nú frá
fleiri erlendum borgum en áður,
eða alls fimmtán.
Jólafargjöldin eru um 30%
lægri en venjuleg fargjöld á
sömu flugleiðum. Þau gilda sem
fyrr segir frá 1. des. til 1. jan.
1966, en auk þess er gildistími
hvers farseðils einn mánuður frá
því ferð er hafin.
Þessi sérstöku ódýru jólaíar-
gjöld munu enn sem fyrr quð-
velda námsfólki, svo og öðrum
íslendingum sem erlendis dvelja,
að halda jól og nýár lieima , á L
Fróni.
Flugfélagið beinir þeim tilmæl-
um til aðstandénda námsfójjks
ytra, og annarra þeirra er háfa
í hyggju að notfæra sér þessi
sérstöku fargjöld, að hafa sám-
band við skrifstofur Flugfélags
íslands, sem veita allar nánari upp
lýsingar.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. nóv. 1065 3