Alþýðublaðið - 17.11.1965, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 17.11.1965, Blaðsíða 9
um fleiri lögreglumenn kemur þetta í 1 jós: Það er lífshættulegt að búa í New York Menn eiga yfir höfði sér morð á götum úti, í friðsælum ibúðum og neðanjarðar- járnbrautinni og geta búizt við innbrotum hvar sem er og hvenær sem er. Hér er á ferðinni nýtt form glæpa, sem framin eru af kornungu fólki, sem engrar mennt- unar hefur notið og enga atvinnu hefur, og af ástæðum, sem virðast með öilu tilgangslausar, og á eit- urlyfjanautn hér drjúgan hlut að máli. Þannig eru öll borgarvandamál- in hlaðin sprengiefni, þótt þau virðist einföld í fljótu bragði: ★ Það vantar fleiri kennara og bötri skóla, því að menntun skóla barna er svo bágborin í fátækari bprgarhverfum, að þau eru ólæs og óskrifandi þegar þau leggja út í lífsbaráttuna. ★ Það vantar hetri sorphreins- un, því að sorp er einfaldlega ekki fjarlægt reglulega í þessum borg- arhverfum og af þessari ástæðu deyr uggvænlega mikill fjöldi barna í New York af völdum rottu- bits. ★ Það vantar bætta samgöngu- þjónustu, því að það er óþolandi að milljónum þeim, sem ferðast til vinnu sinnar úr 'útborgunum, sé boðið upp á neðanjarðarjárn- braut og lestir í svo bágbornu á- standi að fólk er farið að flytj- ast frá New York, auk þess sem ferðir járnbrautarlestanna eru stopular og standa illa áætlun. Það vantar fleiri skemmti- garða í hinum mörgu fátækra- hverfum borgarinnar, ma. vegna þess að fólk getur orðið viti sínu fjær ef það fær ekki ferskt loft og grænan grasblett. ★ ÁBYRGÐ DEMÓKRATA Það liggur í augum uppi, að New York þarfnast styrkrar stjórn- ar. Ástæðan tii þess að málefni borgarinnar eru í ólestri er meðal annars sú andúð sem Bandaríkja- menn hafa sýnt hvers konar að- gerðum af hálfu hins opinbera. Margt hefur verið gert með einka- framtaki, en tortryggni ríkir í garð framtaks af hálfu hins op- inbera. En á því getur ekki leikið nokk- ur vafi, að Demókrataflokkurinn í ;New York ber þunga ábyrgð á því, sem aflaga hefur farið.„Flokks vélin“ eins og Bandaríkjamenn verða. Á undanförnum árum hafa menn séð íbúa New York skipt- ast í æ ríkari mæli í tvo hópa, stór efnað fólk og bláfátækt, en milli- stéttirnar yfirgefa borgina í stór- um stíl, því að þær geta ekki sætt sig við ástand fátæklinganna og hafa ekki efni á því að kosta börn sín í einkaskóla ríka fólksins. Þær hafa heldur ekki efni á því að borga fyrir sorphreinsun og samgöngutæki, sem rekin eru af einkaaðilum eins og skólarnir. Niðurstaðan af þessum fólks- flutningum er sú, að tekjur borg- arinnar af sköttum hafa miirnk- að til mikilla muna, og nú er svo komið, að þær svara á engan hátt þörfum borgarinnar. New York þarfnast því aðstoðar stjórnarinn- ar í Washington til þess að kom- ast úr þessum vítahring. En í Was- hington vita menn ekki ennþá hvernig leysa skuli málin í New York og í sífellt fleiri borgum víðs vegar um landið, sem eiga Framhald á 10. síðu. kalla það, þ.e. þröngur hópur manna, sem hugsað hafa um það fyrst og fremst að gæta sérhags- -muna ótrúlega margra hópa og manna, hefur öllu ráðið í stjórn málunum. Vitaskuld hefur margt gott verið gert fyrir hópa inn- flytjenda, en við aðstæður þær, sem nú ríkja, er þessi flokksvél máttlaus. Lindsay hefur lýst því yfir, að hann muni segja skilið við alla þessa stjórnmálahefð og reyna að tryggja New York dug- lega og nýtízku stjórn manna, sem sérfróðir eru um þau vandamál sem við er að stríða. Og það var þess vegna sem íbúar New York kusu liann, þótt meirihluti þeirra fylgi demókrötum að málum. Nú verða menn aðeins að bíða og fylgjast með því, hvort honum tekst að efna loforð sín. ★ FORDÆMI í BARÁTTUNNI Aðrir lilutar landsins ættu að láta sér ástandið í New York og baráttu Lindsay að kenningu i • •'-*•; - BÁTAR TIL SÖLU ■ t • • j [:. í Hólmav£k eru eftirtaldir bátar til sölu. : Guðmundur frá Bæ ST. 55 38 lestir. Hilmir ST. 1 27 lestir. Sigurfari ST. 117 13 lestir. Farsæll ST. 28 12 lestir. v Víkingur ST. 12 10 lestir. Hafdís ST. 120 9 lestir. Kópur ST. 62 9 lestir. Upplýsingar gefur Karl E. Loftsson í síma < 28, Hólmavík. : l'. Rafveitustjórastarf Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Silglufjarðar, 5. nóv- ember sl.. er hér með auglýst laust til umsóknar fram- kvæmdastjórastarf við Rafveitu Srglufjarðar. Umsóknarfrestur er til 1, febrúar 1966 og starfið veitist - frá 1. marz það ár. ' Nánari upplýsingar igefa formaður Rafveitunefndar, Baldur Eiriksson, og undirritaður. | ' - .. • : Siglufirði.ll. nóv. ‘65. Bæjarstjórixm í Siglufirðr. ■ - 't ..... "".... 1 ............ .....«• Bifreiðaeigendur Höfum opnað varahlutaverzlun að Laugavegi 168 i undir nafninu .( ■/, - ‘ ■ ................. -1 I '■»' STIMPILL, varahSutaverzEtin s.f, Mikið úrvai af varahlutum í flestar teg. bifreiða. STIIVIPILL, varahfutaverzlun s.f. Laugavegi 168. ALLAR VIÐGERÐIR OG STILLINGAR Á OLÍUDÆLUM OG ELDSNEYTISLOKUM FRAMKVÆMDAR AF SÉRMENNTUÐ- UM FAGMÖNNUM OG MEÐ NÝJUSTU TÆKJUM. Björn & Halldór hf. Einkaumboð á Islandi fyrir: Síðumúla 9. — Símar 36030 og 36930. OLÍUDÆLUR '<i* ELDSNEYTÍSLOKAR TENGI við oiíudælur --'-Í DÝSUR og aðrir vara- ' hlutir HRÁOLÍU og SMUR- i OLÍUSÍUR jafnan fyrirlíggjandi. : ALÞÝÐUBLAÐíÐ - 17. nóv. 1065

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.