Alþýðublaðið - 17.11.1965, Blaðsíða 8
I
skugga stríðsins
Sigríður Thorlacius:
MARÍA MARKAN
Endurminningar
Setberg, Reykjavík 1965. -
173 blaðsíður.
Endurminningar eru í tízku.Og
verði þeir sem hafa séð, reynt
: og lifað eitthvað sögulegt ekki til
þess sjálfir að segja sögu sína
! takast aðrir verkið á hendur í
' þeirra stað. „Skrifdrauga' kallar
Halldór Laxness þvílíka höfunda
sem burðast við að skrifa í umboði
annars aðila eða forsögn hans.
1 Ekki kémur skrifdraugur sjálfur
fram í þeim orðum sem hann skrif
, <ar, og því síður 'sá maður sem
! .ihann skrifar fyrir, segír Lax-
1 íiess, samt hefur þessi sagna-
| grein æxlast hér í ýms-
i um afbrigðum og mörgum mis-
! jöfnum bókum allt frá því þeir
| Guðmundur Hagalín og Þórberg-
ur Þórðarson hófu ævisagnagerð
| með þessum hætti, og er ekkert
i lát að sjá á henni enn. En einatt
■ i er það ankannalegt að sjá „skrif-
drauginn" uppsettan sem höfund í
venjulegri merkingu á titilblaði
bóka sem gerðar eru með þessu
i móti: þar sem sögð er í fyrstu per-
sónu saga annars manns og höfð
eftir sjálfum honum.
í í þeirri bók sem hér um ræðir
hefur Sigríður Thorlaciús fært i
letur endurminningar Maríu Mark-
i an. En María Markan var fyrsta
, menntaða söngkonan á íslandi,
I fyrsti óperusöngvari íslenzkra
j kvenna og nafnkunnust þeirra
allra. I’að má ætla að sá frægðar-
• ferill sé tilefni þessarar bókar.
j Söngferill Maríu Markan varð
j glæsilegur - en hann varð skamm-
. ■ vinnur. Og stríðið bar skugga á
ihann allan. Á námsárum hennar
';í Þýzkalandi er nazisminn í upp-
gangi; hún hrökklast frá Þýzka-
landi undan stríðinu eftir að hafa
sungið við góðan orðstír í tveim-
ur óperuhúsum, í Hamborg og
Zittau; hún syngur í Glyndebo-
Urne-óperunni á Englandi, berst
■síðan til Ástralíu í hljómleikaför;
;þaðan beinir stríðið henni til Ame-
jríku. Og þar nær hún hæst á
jferli sínum þegar hún er ráðin að
.Metropolitan-óperunni í New York
haustið 1941. En María Markan
var ekki laus undan skugga stríðs-
ins fyrir það. Fortíð hennar í
Sigríður Thorlacius
Þýzkalandi vekur tortryggni gegn
henni sem hún telur að hafi stað-
ið sér fyirir eðlilegum frama í
óperunni, og loks tekur hún þá
ákvörðun að segja upp samningi
sínum vorið 1944. „Ég mun ekki
heldur neita því að hugur minn
beindist þá meira að því að vera
móðir oghúsfreyja en sinna söngn
um að staðaldri," 'segir hún. Og
þar með var tæpum tíu ára óperu-
ferli hennar lokið.
Lítil saga í bókinni er til marks
um það hvernig heimsviðburðirn-
ir beinast gegn Maríu Markan
persónulega á þessum árum.
Haustið 1941 hyggjast vinir henn-
ar hnekkja róginum og tor-
tryggninni gegn henni við Metro-
politan með því að efna til veizlu
henni til heiðurs með mörgu
frægðarfólki, þar á meðal sjálfri
Eleanor Roosevelt forsetafrú, sem
fyrirsjáanlega yrði henni mikil
uppreisn. Veizlan er ákveðin lOda
desember. En þann 7da berst frétt-
in um 'árásin.a á Pearl Harbour og
Bandaríkin eru komin í stríðið.
„Smámunir" eins og veízlur fyrir
söngkonur hurfu að sjálfsögðu
með öllu úr hugum manna, og boð-
inu var 'aflýst."
María Markan hugðist í æsku
leggja fyrir sig hjúkrun og fór
fyrst utan í því skyni. Hennar
upprunalegu hæfileikar, og tilvilj-
unin beina henni út á listabraut-
ina án þess að einbeittur ásetn-
Dulskynjanir og
dulreynsla
Dulskynjanir og dulreynsla nefn
st bók eftir Louisa E. Rhine sem
jókaútgáfan Fróði hefur gefið út
3íra Sveinn Víkingur þýðir bók-
1 na og ritar formála um höfundinn
>g verkið. Louisa Rhine er kona
íins nafnkunna sálfræðings J. B.
thine sem stendur fyrir rannsókn
arstofnunum í dularsálfræði við
g 17. nóv. 1065 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Duke-háskólann í Bandaríkjunum.
En dularsálfræði fæst við rannsókn
ir á svonefndum „dulrænum“ eða
„sálrænum” fyrirbærum, og fjall
ar bókin að mestu um ýmiskonar
fjarhrif, drauma, fyrirboða og for
spá, hreyfifyrirbæri og furður.
Bókin sem nefnist Hidden Chann
Framhald á 10. síðu.
4
María Markan.
ingur eða metnaður virðist koma
til; en úr því út í þetta er komið
færist hún í fang að læra list sina
til hlítar og kosta öllu til. Frá-
sögn þeirra Sigríðar Thorlacius
er einföld og yfirlætislaus og held-
ur sig að staðreyndum ævisögunn-
ar; húh bregður upp svipmynd
skapstilltrar raunsærrar konu er
tekur ltfi sínu eins og það kemur
fyrir, dfmetnast ekki af sigrum
sínum i|é miklar fyrir sér mótlæti.
En að |:h.ve miklu leyti kemur
María Jflarkan „sjálf“ fram í þess-
ari frásögn? Ekki er því að neita
að hér segir fæst af hug hennar,
tilfinningum, einkamálum um dag-
ana; það er látið nægja að greina
frá ytri atvikum æviferilsins. Og
María Markan fjölyrðir ekki um
sjálfa list sína, þann „fögnuð og
sársauka" sem fylgdu henni; hún
leggur í staðinn áherzlu á erfitt
og þreýtandi starf söngvarans sem
í senn krefjist mikilla uppruna-
legra hæfileika og traustrar mennt
unar til undirbúnings. Þetta yfir-
lætisleysi er reyndar höfuðprýði
frásagnarinnar og þeirrar mann-
lýsingar sem hún miðlar, ásamt
hlýlegri gamansemi sem einatt
lifvar upp frásögnina, ellegar
næsta þurrlega með köflum.
Hvort tveggja ber vel söguna
vinnubrögðum Sigríðar Torlaeius
við 'bókina. Aftur á móti er eftirsjá
að því að María Markan skuli ekki
lýsa nánar ýmsum samtiðarmönn-
um sínum á listaferlinum — til að
mynda öðrum íslenzkum söngv-
urum erlendis sem hún hefur
kynnzt við. Eins og frá henni er
gengið er bókin ekki til frásagnar
um annað en æviferil Maríu sjálfr-
ar, ekkert tillag til íslenzkrar
menningar- eða músíksögu um-
fram hana.
Endurminningar Maríu Markan
er snyrtilega gerð bók af hálfu
forlagsins. Þó leturflötur óeðli-
lega gisinn á sumum síðum og
sumar myndasíðurnar ónákvæm-
- lega skornar, Engin nafnaskrá er
í bókinrii frekar en öðrum af sairia
tagi sem að vísu kemur að minni
sök hér en einatt í sambærilegum
bókuin. — ÓJ.
KASTLJÓS
ENGINN stjórnmálamaður nýt-
ur eins mikilla vinsælda í Banda-
ríkjunum um þessar mundir og
republikaninn John Lindsay, sem
vann það afrek að verða kosinn
borgarstjóri í New York 2. nóv-
ember s.l., þótt yfirgnæfandi meiri
hluti borgarbúa hafi ávallt fylgt
demókrötum að málum. En starf
haris líans er síður en svo öfunds-
vert. Borgarstjóraembættið er á-
litið vonlaust starf, og þess vegna
eru margir þeirrar skoðunar, að
Lindsay ætli að nota embættið
fyrir stökkpall upp í ennþá hærri
embætti, ef til vill sjálft forseta-
embættið.
Lindsay er ungur og metnaðar-
gjarn maður og ætlar sér áreið-
anlega lengra. En honum reynist
ekki auðvelt að nota New York
fyrir stökkpall, því að ef honum
mistekst fara allar vonir hans
um meiri frama út í veður og vind.
En ef honum tekst að leysa hin
ótrúlega flóknu vandamál heims-
borgarinnar verður hann áhrifa-
mikill boðberi nýtízku stefnu í
flokki sínum.
★ SUMMA VANDAMÁLANNA
í New York eiga menn við að
stríða öll þau vandamál, sem
Bandaríkin sem heild standa and-
spænis. Það verður verkefni banda
rískra stjórnmálamanna, repúblik-
ana ekki síður en demókrata, að
leysa þessi vandamál á næstu ára-
tugum. í svipinn ganga þessi
flóknu vandamál sem eiga við líf
fólks í stórborgum, undir hinu
skáldlega nafni „ stóra þjóðfé-
lagið“.
í kosningabaráttunni í New York
komu vandamálin fram í lista yfir
vandamál, sem í fljótu bragði virð
ast einföld: Fleiri lögreglumenn,
slökkviliðsmenn og kennarar ..,
betri skólar, bætt heilbrigðiseftir-
lit og betri samgöngumöguleikar,
fallegri skemmtigarðar. Á : bak
við þessi venjulegu stefnuskrár-
atriði, sem ætla mætti að auðug-
asta borg heimsins ætti að geta
leyst á auðveldan hátt, leynast
tröllaukin vandamál. Til þess að
gera málið einfalt má segja, að
fátæktin sé það, sem allt snýst
um. í þessari ótrúlega auðugu
borg hefur fátæktin breiðzt út
eins og farsótt og nú liggur við að
hún sé að gera New York óbyggi-
lega.
★ GLÆPIR OG ROTTU-
GANGUR
Sé skyggnzt á bak við það, sem
menn eiga við þegar þeir biðja