Alþýðublaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 1
Miffvikudagur 1. riesember 1965 - 45. árg. - 273. tbl. - VERÐ 5 KR.
SAMKVÆMT úrskurði Kjaradóms, sem kveðinn var upp klukk
an 18 í ffær fá opinherir starfsmenn 7% kauphækkun. Nokkrir I
allf jölmennir starfshópar færast upp um einn launaflokk eg t& þann
ig 4% viðhótarhækkun og er taiið að það eigi við um 1/5 þeirra
fimm þúsund opinberra starfsmanna, sem taka laun samkvæmt
ákvæffum Kjaradóms.
Litlar- breytingar urðu á vinnutíma samkvæmt Kjaradómi,
laugardajsfrí hjá þeim stofnunum sem geta lokað é laugardögum
á sumriu lengjast um tvær vikur, vaktaálag og deilitala er óbreytt,
en næturvinnuálag lækkar úr 100% í 90%.
Tveir dómendur Kjaradóms skiluðu sératkvæðum þeir Eyjólfur
Jónsson, sem vildi 12% launahækkun og Jóhannes Nordal, sem
vildi 5% hækkun.
Fjölmennastar þeirra stétta,
sem samkvæmt úrskurði Kjara-
dóms færast upp um einn launa-
flokk eru þessar: Barnakennarar,
gagnfræðaskólakennarar, sem
voru í 16. launaflokki, hjiíkrunar-
konur, lögregluþjónar, tollverðir,
ritarar 2. og dómarafulltrúar við
dómaraembættin í Reykjavík.
Auk þessara starfshópa færast \
nokkrir fleiri upp um flokk, og a \
það til dæmis við um vélstjóra, I
tæknifræðinga, htlsverði o. fl. en |
ríkið hafði áður gert tilboð um
þá hækkun og er hún innifalin í
úrskurði Kjaradóms.
„ OF LÍTIL
HÆKKUN"
GUÐJÓN B. BALDVINSSON,
sem sæti á í stjórn BSEB og er
ritari Kjararáðs, sagði í gærkvöldi
er AlþýðublaOið leitaði álits hjá
honum á nýuppkveðnum Kjara-
dómi:
Mér finnast tilfærslur milli
launaflokka litlar og ófullnægj-
andi. Hvað viðvíkur vinnutíma,
yfirvinnukjörum og þess háttar,
þá hefur tekizt að fá lagfærð ým-
is atriði, sem áður voru óljós,
og það sem meira er, að tekizt
hcí'ur að yerjast þeim kröfum,
sem hafðar voru uppi, um lækk-
un deilitölu og vaktaálags.
Uni- launaákvörðun meirihluta
Framhald á 15. síðu
oooo ooooooooooooc
Taflan hér að ofan sýnir mán
aðarlaun (grunnlaun) í hverjum
launaflokki samkvæmt hinum
nýja kjaradómi. Neðrí myndin er
tekin.þegar. fulltrúar ríkisins og
opinberra starfsmannahöfðu feng
ið' dóminn í hendur (Mynd: JV).
í forsendum Kjaradóms segir
m. a. á þessa leið:
„Dómtirinn hefur kynnt sér:
framlögð sóknár- og varnargögn
aðila og fengið hjá fyrirsvars-
mönnum þeirra upplýsingar um
ýmis atriði málinu til skýringar..
Þá hefur dómurinn eftir föngum
aflað sér gagna og upplýsinga í
samræmi við ákvæði 18. gr. lag-
anna.
Sérstaklegá hefu"r dómurinn
reynt að afla sér upplýsinga um,
hver séu hin raunverulegu laun
ríkisstarfsmanna, einstaklinga og
hópa, svo og hver séu raunveru-
leg laun launþega, er starfi hjá
einkafyrirtækjum, að störfum,
sem sambærileg megi teljast þeim
störfum, sem starfsmenn ríkisins
hafa með höndum.
Viðfangsefni Kjaradóms í máli
þessu greinist í þrjá meginþætti:
1. Ákvörðun um fjölda launa-
flokka og skipting starfsmanna í
þá.
2. Ákvörðun um föst laun í
hverjum launaflokki.
3. Reglur um vinnutíma, yfir-
vinnugreiðslur og önnur starfs-
kjör.
Að því er fyrsta viðfangsefnið
varðar, þá oru málsaðilar sam-
Framhald á 15. síSu
Byrjunarlaun kr. Laun eftii ¦ -
Launa-flokkur lár kr. 3ár Jkr. 6 ár kr. 10 ár kr. - 15 ár kr.
1. 5695 ' : í
2- . 5931 t
3. 6193
4, 6441 6797 7069 7354 ' 7652 .• . 7960 ,
5. 6702 7069 7354 7652 7960';% 8268
6. 6975 7354 7652 7960 8268 ' 860.1
7. 7248 7652 ' 7960 8268 .8601 8945
8. 7545, 7841 8149 8482 8814 9170
9. 7841 8149 8482 8814 9170 9538,;
10. 8149 &482 8814 9170 ' 9538 ' 9917
11. 8482 8814 9170 9538 ' 9917 10320
¦12*:: 8814 9170 9538 9917 10320 10724
13. • 9170 9538 • •9917 10320 10724. 11162
14. 9538 9917 10320 10724 11162 11601
15. 9917 10320 10724 11162 11601 Í2064
16. 10320 10724 11162 11601 12064 1.2550
17. 10724- 11162 11601 12064 12550 13049
18. 11162 11601 12064 12550 13049 13571
19. 11.779 12419 13108 13832 14591
20. 12419. 13108 13832 14591 15397 ¦
21. 13108 = 13832 • 14591 15397 16240
22. 14591 ' 15397 16240 17130
23. 16240 17130 18079
24. 17130 18079 19063
25. ¦ 18079 19063 20118 •
26. | 20118 21222 .T
27. |22384
28, 123618