Alþýðublaðið - 01.12.1965, Page 7

Alþýðublaðið - 01.12.1965, Page 7
SUMUM nægja fá kvæði til góðrar skáldfrægðar. Svo var um Magnús Stefánsson, sem gegndi dulnefninu Örn Arnar son. Ný útgáfa af ljóðasafni hans, „Illgresi,” nemur fimm- tán örkum, og er henni þó skor inn víður stakkurinn. Slíkt reyndist ævistarf Arnar Arnar sonar að fyrirferð. Eigi að síð- ur mun hann jafnan talinn í hópi sérstæðra, listrænna og snjallra skálda tímabilsins milli heimsstyrjaldanna tveggja. Þessi fjórða útgáfa af „Illgresi" er fagnaðarefni. Kvæði Arnar Arnarsonar skulu sannarlega ekki liggja í þagn argildi. Magnús Stefánsson sá ég einu sinni af tilviljun, en hafði aldrei tal af honum. Hins veg ar bera vinir hans í Vestmanna eyjum, Hafnarfirði og Reykja vík manninum þannig sögu, að mér finnst ég hafa kynnzt honum sæmilega. Minningar- grein Bjarna Aðalbjarnarsonar um hann frá 1942 er glögg og nærfærin, þó að þar sé stiklað mjög á stóru, og síðan hafa Jóhann Gunnar Ólafsson, Stef án Júlíusson og Kristinn Ólafs son ritað af þekkingu og skiln ingi um Magnús og skáldskap Arnar Arnarsonar. Æviþáttur inn er fljótrakinn: Magnús fæddist 12. desember 1884 aust ur á Langanesströnd og undi kröppum kjörum í æsku og bernsku, en fékk samt ávaxtað hæfileika sína, nam við Flens borg og konnaraskólann og varð sér úti um prýðilega sjálfs menntun. Magnús var sýslu- skrifari í Vestmannaeyjum nokkur ár, en fluttist til Hafn arfjarðar í lok fyrri heimsstyrj aldarinnar og starfaði þar við afgreiðslu og skrifstofustörf og síðast bókavörzlu, en sótti fram eftir ævi sumarvinnu norður í land, var íþróttamaður, víðför ull ferðalangur og einlægur unnandi íslenzkrar náttúru. Magnús kenndi snögglega hjartabilunar 1935 og komst aldrei til heilsu síðan. Ilann lézt sumarið 1942. Örn Arnarson kvaddi sér hljóðs 1920 með ellefu kvæð um í Eimreiðinni og var víst þaðan í frá landskunnur af kveðskap sínum. Fyrsta útgáfan af „Illgresi" kom út fjórum ár um síðar, en eftir það birti Örn aðeins kvæði sín í blöð um og tímaritum meðan hann lifði, nema hvað rímurnar af Oddi sterka voru prentaðar í kveri 1938. Önnur og stórauk in litgáfa ljóðasafnsins kom út að Erni Arnarsyni látnum 1942, og mun þriðja útgáfan 1949 óbreytt frá henni. Nýja útgáfan flytur svo nokkrar þýðingar, sem önnur útgáfan tók ekki til, ásamt þeim frumsömdum kvæðum í fyrstu útgáfunni, er þar voru niður felld, svo og þau sem birtust í minningaþátt um Kristins Ólafssonar um Örn Arnarson, en þeir voru 18. smábók menningarsjóðs 1964. Örn Arnarson var orðinn þroskað skáld, er liann birti kvæði sín fyrsta sinni, hafði ort frá barnsaldri og náð mik illi þjálfun í íþróttinni. Munu og fá skáld rímhagari en hann. Erni var hins vegar öll tilgerð svo fjarri skapi, að hann beitti SPILAKVÖLD Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði verður í Alþýðuhúsinu fimmtudagskvöld 2. desember n.k. kl. 8,30. Félagsvist — Sameiginleg kaffidrykkja. Avarp: Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð- herra flytur. — Skemmtiatriði: Þjóðlaga'- söngur. Þett'a er lokakeppni í þriggja kvölda keppn- inni. — Mætið stundvíslega. Spilanefndin. Auglýsingasíminn er 14906 ORN ARNARSON sjaldan þeirri frábæru leikni nema í stökum og rímunum af Oddi sterka, Kvæðin Ásrún, Stjáni blái, Ljóðabréf til Vest ur-íslendings og Þá var ég ung- ur vitna um hæíni skáldsins að leysa þrautir stórra yrkis efna. Eigi að síður er sérkenni Arnar að ljúka erindi boðskap- ar og listar í stuttu máli.Kvæð in eru undantekningalitið hnit- miðuð, sú var aðferð Arnar Arnarsonar, numin af snillingn um Heine, en framkvæmd með athyglisverðum, sjálfstæðum hætti. Hún ræður þeim úrslit um, að Örn kann sér jafnan hóf, freistast ekki til mælgi í ljóði, kemur skynjun og hugs un skilmerkilega á framfæri. Árangurinn sést bezt á því, að hann lætur naumast lélegt kvæði eftir sig, þó að þau séu vitaskuld misjöfn, ljóðasafnið er líkara úrvali en venjuleg um kvæðabókum. Örn Arnar son reyndi ekki að leggja und- ir sig land eða lieim, þjóð eða mannkyn í skáldskap sín- um, en ræktaði garð reynslu og lífsskoðunar af mikilli alúð. Yfirbragð flestra ljóðanna er glettin beiskja og skaprík á- deila, en bak við kvikar næm- ur tregi og sár harmur. Skáld- ið bjó sér til grímu — sem betur fór. Magnús Stefánsson myndi sennilega aldrei hafa ort um sjálfan sig eins og Örn Arnarson gerði. Örn Arnarson kvað margan kíminn brag. Eitt þeirra ljóða heitir Syndafall: í Eden ástar þinnar ég alsæll lengi sat, las þar epli og aldin og át, eins og ég gat. í Eden má ekki syndga, því útlegðin þá er vís, og nú er ég eins og Adam útlagi úr Paradis. En þar voru epli og aldin eftir. Því er nú ver. Og þau londa öll í öðrum — i öðrum. Guð hjálpi mér. Annað nefnist Tjaldbúðin og er þannig: Hin heilaga Hebreatjaldbúð var hjartfólgin ísraels lýð, og helgasti staður hér á jörð var hún á sinni tið. í forgarðinn komust flcstir, en færri í hið heilaga inn. Hið allra helgasta enginn sá nema æðsti presturinn. Ég mætti ungmey áðan, og ekkert er fegra á jörð. Mér fannst hún tjaldbúð himin helg af höndum drottins gjörð. Hið heilaga er faðmur hennar. Hið helgasta þrái ég mest. Mætti ekki, gæzkan mín góð, gera mig æðsta prest? Svo víkur sögunni ag alvör- unni, treganum og harminum, eins og í kvæðinu Fylgdar- laun: Ég á leið um heiðar og hraun, hjartað mitt, fylgdu mér. Annars fer ég villur vegar, Vel skal ég launa þér. í sjóði á ég silfur og gull. Silfrið er ástin mín. Og gullið, lífs míns leyndu sorgir, læt ég falt til þín. i Gakktu með mér hinn grýtta veg. Gullið í boði er. Sorgina hálfa, ástina alla eg vil gefa þér. Viðhorf Arnar Arnarsonar sem manns og skálds spegl- ast þó kannski bezt í ljóðinu IUgresi. Löngum er ég einn á gangi, einkum þegar sólin skín. Fáum kunn, á víðavangi víða liggja sporin mín. Eins og barn með blóm í fangi, bróðir, kem ég inn til þín. Undir heiðum himni og víðum hvílíkt yndi að skemmta sér, þegar blóm í brekku og hlíðum brosa, hvar -sem litið er. En illgresið er oft og tíðum yndislegast, sýnist mér. Þessi fjórða útgáfa af „111. gresi" er vissulega snotur bók og kærkomin. Samt hefði þurít að búa hana til prentunar af samvizkusamari nákvæmni. Eina prentvillan í annarri út gáfu gengur hér aftur, og nýj ar bætast við. Glöp munu og • að flokka í Eyjum með frum-( ortum kvæðum, og mér gezt <v ckki sú ráðabreytni að láta þýð-\ íngarnar ófeðraðar, minnstat kosti jafn auðrakin ljóð OT' Hrafna, Rósina, Jón Andcrson, og íslenzka smávísu. Minningar ' grein Biarna Aðalbianiarson, ar á hér mætavel heima, þó at> - þar sé raunar hvergi minnzt,' áhrifa Arnar Arnarsonar af erf lendum skáldum. ViðaukinnC < með þessari nviu úi.gáfu er,; hins vegar næsta snubbóttur.i Kurfeisi væri til dærais að láta(X skár getið kversins með minn ingaháttum Kristins Ólafsson:’ ar. Gæt.ir enn beirrar ódvggð-', ar i fari ..nóbelsverðlaunaforf lagsins." sem einkenndi útgáf'V Helgafells af kvæðasafni og' greinum Rteins Steinarr. Helgi Sætnundsson. ALÞÝDUBLAÐIÐ - 1. des. 1965 J , oA-Al -ú: .At í|

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.