Alþýðublaðið - 30.12.1965, Síða 7
X:
mmsmmm
Eftirfarandi grein er eftir
Henry Shapiro, fréttaritara
UPI í Moskvu.
EF opinberar og óopinberar yf-
irlýsingar kínverskra embættis
manna eru teknar bókstaflega
hafa Kínverjar greinilega í hyggju
að sölsa undir sig stór landsvæði
af Rússum og Indverjum. Stjórn-
in í Peking hefur gert kröfu til
IV2 milljónar ferkílómetra land
svæðis af Rússum og 250 þúsund
ferkílómetra landssvæðis af Ind-
verjum eftir þessum upplýsing-
um að dæma.
Kínverjar hafa formlega afsal-
að sér tilkalli sem þeir þóttust
eiga til landsvæða í Burma, Mongó
líu og Pakistan, en í Moskvu hafa
menn áhyggjur af lengstu landa-
mærum heims — landamærum
Sovétríkjanna og Kína, sem eru
rúmlega 8000 kilómetra löng, og
hin tvö stórveldi kommúnista hafa
ekki ákvarðað þessi löngu landa-
mæri í formlegum samningi sín
í milli.
Svo snemma á árinu 1954, þegar
sambúð Sovétríkjanna og Kína var
enn á „hveitibrauðsdögunum”,
gáfu Kínverjar út landakort, þar
sem stórir hlutar Síberíu, Mið-
Asíu og Kyrrahafshéraða Sovét-
ríkjanha voru auðkenndir sem
kinverskt land. Á sumum kortum1
voru einnig Nepal, Bhutan, Mala-
ya, Indó-Kína og Kórea auðkennd
■sem „teínversk lönd“.
Kínverjar gera formlegt tilkall
til indverskra landsvæða og hafa
Sqvjet
Moncöuöú
l-andamæri Kíni og Sovétríkjanna eru 8 þúsund kílómetra löng.
Þetta eru lengstu landamaéri heimsins
gengið svo langt að beita vopna-
valdi til þess að fá kröfum sínum
framgengt. Kínverskar hersveitir
reyndu síðla árs 1962 að hrekja
Indverja burtu úr austanverðu
Bhutan og hluta Kasmírs og frá
hinni svokölluðu MacMahon-línu
í norðaustanverðu Indlandi, sem
brezkir og tíbezkir fulltrúar á-
kváðu 1910. Það var aðeins sam-
staða Bandaríkjamanna, Breta og
Rússa sem aftraði Kínverjum frá
því ,að binda endahnútinn á þessar
tilraunir sinar að þessu sinni.
,.RÚSSAR NÝLENDU-
SINNAR” ■
Kínverjar hafa enn sem komið
er að minnsta kosti ekki borið
fram formlega kröfu til sovézkra
landsvæða, en í marz 1963 for-
dæmdi Peking-stjórnin í fyrsta
sinn „hina ýmsu samninga, sem
neýddu kínverska keisara til þess
að afsala sér kínverskum landsvæð
um í hendur evrópskum stórveld-
um”. Þrír þessara samninga voru
gerðir við keisarastjórnina rúss-
nesku, og Kinverjar halda því
fram, að hinir veikgeðja Mansjú-
keisarar háfi á sinum tíma vei-ið
neyddir til að undirrita þá. Með
siíkum samningum og með land-
vinningum náðu Rússar á sitt vald
landsvæðum sunnan og austan við
fljótið Ámur í Siberíu og mest-
öllu því landsvæði, sem nú skipt-
Mvndin er frá Samarkand í sovézku Mið-Asíu, sem Kínverjar
igera tilkall til.
ist í sovétlýðveldin fjögur í Mið-
Asíu: Kazakhstan, Uzbekistan, Ta-
dzjikstan og Kirgizia Á 18. öld
höfðu Kínverjar nokkurs konar
yfirráð yfir þessum landsvæðum,
en Kínverjar hertóku þau aldrei
í vénjulegum skilningi og gerðú
þau heldur ekki að nýlendum.
LANDAMÆRAÁTÖK OG
VIÐBÚNADUR
Á hinn bóginn hafa Rússar af-
dráttarlaust vísað landakröfum
Pekingstjórnarinnar á bug og allt
að því hótað styrjöld ef Kínverjar
reyni að leggja undir sig sovézk
landsvæðr. Landamæri Sovétríkj
anna verða aldrei samningsatriði,
sagði fyrrverandi forsætisráðherra
Rússa og aðairitari kommúnista-
flokksins Nikita Krustjov, án þess
þó að nefna hina „sósíalistísku
bræður” sína í Kína Hann gerði
gys að kröfum þeirra, sem ekkl
hefðu við neitt að styðjast nema
„ummæli löngu grafinna forfeðra
og álíka þokukennd ummæli”.
Árið 1963 héldu Rússar því frara
að Kínverjar hefðu 5000 sinnym
gerzt sekir um ögranir og yfir
gang á landamærúm, og síðan hafa
báðir eflt landamæravörð sinn, og
samkvæmt óopinberum heimild-
um kemur það stundum fyrir, atf
kínvei'skir og sovézkir landamæra-
verðir Iendi í smábardögum. Pek;
ingstjórnin vill greinilega Iialda
þessari landamæradeilu við og
geiúr sig æ ofan í æ seka urn það
sem Rússar kalla „ögranii' á landa-
mærunum”.
Hins vegar er mjög vafasariit
hvort Kínverjar, sem hafa aldrei
sakað Rússa um að vex-a „pappíj's;
björn” eins og þeir hafa sakað
Randaríkjamenn um að vera „papp
írstígrisdýr” og bera mikla virp-
ingu fyrir sovézka. heraf Janum,
í'eyni að söisa undir sig so.vézkt
landsvæði með vopnavaldi.
Svipuðu rnáli gegnir með afstöðu
Kínverja gagnvart Indverjyxp.
Meðan Indverjar geta reitt sigjá
stuðning allra VestuiTanda og
Sovétríkjanna telja kunnugir, í
Moskvu óhugsandi að Kínverjur
ryðjist yfir landamæri Indlands
öðru sinni Talið er að þeir gori
sig ánægða með taugastríð og ögr-
anir samtímis þvi sem þeir reyjni
að .fæi'a sér hið. óti’yggá ástandi á
Indlandsskaga
að sinni köku.
í nyt og skara -eád
Margar öiíkár þjóðir búa i Sovétríkjunum. Hér sjást nokkrir Mið-Asíubúar gera sér glaðan dag.
Framhald á 10. síðu. \
KASTLJÓS
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. des. 1965 f
aiöAJSÚQÝ'UA -- 'oÝl zí‘l .Uc- ^