Vísir - 04.12.1958, Page 1

Vísir - 04.12.1958, Page 1
^foiaóönanr enaianna Þetla er fyrstí jólasálmunnn, sem allir aðrir sækja efni sitt til, jólasöngur engianna. Eitt stef er varðveitt af söng Kinna tignu gesta, og það hefur mikinn fögnuð að flytja. Vögguvísan, sem englarnir sungu við fæðingu mannkyns- frelsarans, er forspá um líf hans og starf. Ðýrð Guði í upphæðum. Aherzlan hvílir ekki fyrst og fremst á loígerðinni. Til þess skcríir mennma þekkingu og ímyndunarafl að veg- sama Guð. Söngur englanna bernir huga vorum að þeirri ljóssins veröld, sem er ofar vorri og unaðslegri en oið fá lýst. Sá heimur var mikill veruleiki í augum frumkristn- mnar: Guð býr í því Ijósi, sem enginn fær til komizt. Þaðan koma himneskir sendiboðar, umvafðir Ijósi sólu bjartara. Þaðan kom Kristur, sem sjálfur var nefndur heimsins ljós, með sínu bjarta föruneyti. Þangað hvarf hann aftur að lokinni jarðvist sinni kallandi alla þá, sem á hann trúa, til þess undursamlega ljóss, sem er arfleifð heilagra. Og þaðan mun hann koma við endalok tímanna með hersveitum engla, eins og hina fyrstu jólanótt. Þannig var dýrð upphæðanna alls staðar nálæg í hug- arheimi hinna fyrstu lærisvema Drottins. Þeirra beið ver- öld, sem gædd var meira ljósi og lífi en vor. Þar bjuggu englar. Þar ríkti birta, fegurð, friður og heilagleiki. Tvö jólaljóð. Mér kcm í hug tvö jólaljóð eftir Matthías Jochumsson. Þetta er úr öðru: Bjartara, bjartara yfir barni ljúfu hvelfast Guðs haliir á heigri nóttu; cg herskarar himinbúa flytja Guðs föður frið á jörðu. Hlustar húm, hlusta þjóðir, hlustar alheimur, hlusta uppsalir; hlustar hvert hjarta, því að heimi brennur ein óþrotleg ódauðleg þrá. Þannig var án efa hlustað á jólasöng englanna í upphafi. En getum vér nú sagt það með sönnu, að hvert hjarta hlusti, eða heilar þjóðir ag jafnvel heimunnn allur brenm af þrotlausri þrá eftir þessari björtu veröld, sem englarnir sungu um hma fyrstu jólanótt? Vera má, að innst inni elskum vér öll ævintýrið. En vill ekki oft fara svo í þungu stríði lífsbaráttunnar, að þessi ljóssins veröld hverfi oss sýn, eins og draumur, sem var fagur, en á sér engan veruleika. Svartur skýjaflóki áhyggjunnar byrgir fyrir oss stjörnuskm jólanna. Um þetta fjallar hitt jólaljóðið: Dýrð Guði i upphœðum, og friður ó jórðu með þeim mönnum, sem hann hefur velþóJcnun á. Þú Betlehemsstjörnu blíðast Ijés, hvar býrðu í Drottins geimi? Stíg fram, ó, ljúfa logarós i cg lýstu betur heimi! Ö, gnmma stríð, sem geisar hér, ó, gcislabrot, sem kemur cg fer á tímans táraskýjum. Geislabrot, sera kemur og fer? Jólin eru kær saklausum börnum og öllum þeim, sem enn hafa ekki orðið úti í gernmgaveðri efnishyggjunnar. Jafnvel ýmsir, sem engu trúa í venjulegri merkingu þess orðs, elska jólin. Með tilkomu þeirra verður hversdags- heimur vor örlítið hlýlegri en áður. Enda þótt menn eygi ekki nema geislabrot af stjörnu jólahöfðingjans, verða þeir vingjarnlegri í viðmóti, gjöfulli og góðviljaðn. Og góð er hver sú hátíð, sem því fær áorkað. Sú spurning, sem allt veltur þó á í hátíðahaldinu og mestu varðar, hlýtur þó alltaf að vera þessi: Er hún til þessi ljóssins veröld með hersveitum engla, sem jólasagan segir að snöggvast hafi breitt ljóma sinn yfir jörðina hina fyrstu jólanótt? Er hún veruleikur eða einungis hverfull draumur, geislabröt, sem kemur og fer í tímans táraskýj- um einu sinni á ári, þegar skammdegismyrknð er svartast? Eru til englar? Eðlilegt væri nú að spyrja mjög ákveðinnar spurningar og leita svars við henni: Eru englar til og ef svo er, hvar er þá þeirra heimur? Skáldið Jónas Hallgrímsson kemst þannig að orði í al- kunnri vísu: Jólunum mínum unni ég enn, og þótt stolið hafi hæstum Guði heimskir menn: hefi ég til þess rökin tvenn, að á sælum sanni er enginn vafi. Jónas á sennilega við hinn trúarlegu og vísindalegu rök. Það er eftirtektarvert, að í ritgerð, sem hann sknfar í skólablað á Bessastöðum um meðferð dýra, kemst hann þanmg að orði: „Varla getum vér deyft hjá oss þá hugsun, að fyrr en keðjan þrýtur við hásæti hins eilífa, hljóta enn þá að finnast þúsund lifandi verur, að baki hverra mað- urinn stendur eins langt og rjúpan að baki veiðimannsins. Vei oss, ef þessir máttkari vildu fylgja því dæmi, sem vér gefur þeim.“ Framh. á bls. 32.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.